Öldungadeild Lí

Öldungadeildin. Er gaman? Kristjana Kjartansdóttir

Þegar í vinnuna er komið, fyrsti kaffibollinn með útsýni til suðurs yfir Reykjanesið og Kópavoginn sem rétt grillir í. Gaman að kynnast nýju fólki og eiga gott samstarfsfólk á öllum aldri en sakna líka þeirra sem eru farnir.

Lesa meira

Öldungadeildin. Hugleiðingar við starfslok. Halldóra Ólafsdóttir

Timinn er skrýtinn skepna. Þegar ég lít til baka yfir 45 ár í geðlækningum er eins og þetta tímabil hafi liðið eins og örskot. Það reyndist mér erfiðara en ég hafði haldið að hætta störfum þótt á árunum þar á undan hafi verið notalegt að geta unnið minna eftir því sem ellitengdir heilsubrestir fóru að herja á. Þegar ég að lokum kvaddi síðasta sjúklinginn sat eftir tómarúm, sorg og söknuður.

Lesa meira

Öldungadeildin. Haustferð Öldungadeildar LÍ 2025. Lára Halla Maack

Öldungadeildin fór í tveggja daga ferðalag í september 2025. Núverandi stjórn deildarinnar tók við í maí 2025 en inn-gilding nýrrar stjórnar tók marga mánuði, illskiljanlegt með áhugamannafélag. En allar skráningar tókust á endanum og ferðalagið var skipulagt með amríkuhraða, klíku og nepótisminn brúkaður út og suður.

Lesa meira

Öldungadeildin. Læknaróman Art Nouveau. Lára Halla Maack

Hér fylgir mynd af næturljósi, sem Magga frænka gaf mér 1980, það var gjöf frá gömlum hjónum í Kanada. Ekki var ég fyrr búin að mynda það og setja á fb-síðu styrktarfélagsins, en tölvupóstur barst mér frá uppboðsfyrirtækjum í Evrópu sem buðu mér milljónir fyrir litla Möggulampann, sögðu hann vera frá 1910.

Lesa meira

Öldungadeildin. Minni og heilahreysti. Jón Eyjólfur Jónsson

Margar rannsóknir hafa sýnt að krefjandi hugarstarf og reglubundin hreyfing minnka líkurnar á því að greinast með heilabilunarsjúkdóm. Það var því augljóst fyrir mig að reyna að fella hreyfingu inn í daglega rútínu en læknisstarfið býður upp á krefjandi hugarstarf og ríkuleg samskipti.

Lesa meira

Öldungadeildin. Bókaskápurinn minn. Pétur Lúðvígsson

Í bókaskápnum mínum geymi ég nokkrar gamlar námsbækur, sem ég hef ekki tímt að henda, þótt ég sé löngu hættur að lesa það sem í þeim stendur. Þarna er Gray´s Anatomy, og Lehrbuch der Topgraphishen Anatomie, báðar svo níðþungar að þær myndu sliga hvern þann læknanema sem reyndi að bera þær í bakpoka heim til sín á kvöldin.

Lesa meira

Öldungadeildin. Seyðisfjörður fyrir hálfri öld. Geir Friðgerisson

Mínar hugleiðingar eru meðal annars um að erfið verkefni koma gjarnan upp í afskekktum héruðum og geta verið þung fyrir lítt þjálfaða unglækna, sem ekki hafa lokið kandidatsárinu og þeirri starfsþjálfun sem það inniber.

Lesa meira

Öldungadeildin. Verslunarmannahelgin í Húsafelli 1969. Hildur Viðarsdóttir

Verslunarmannahelgina 1969 tókum við hjónaleysin, Lúðvík og ég, að okkur að sinna heilbrigðisþjónustu á útihátíðinni í Húsafelli. Við höfðum þá lokið 5. ári í læknadeild HÍ. Hátíðin stóð frá 1.-4. ágúst. Er þetta enn í dag fjölmennasta útihátíð um verslunarmannahelgi sem haldin hefur verið hér á landi. Sóttu hana um 20 þúsund manns. Margt er gleymt, upplifunin er enn fersk.

Lesa meira

Öldungadeild LÍ. Á slóðum Kaldalóns 7.-9. júní. Helga M. Ögmundsdóttir, Óttar Guðmundsson

Kaldalónsferð Öldungdeildar LÍ var aug-lýst með tölvupósti 4. febrúar og á innan við tveimur klukkustundum var fullbókað! 

Lesa meira

Öldungadeild LÍ. Á slóðum Kolum Killa. Helga M. Ögmundsdóttir, Óttar Guðmundsson

Heilagur Kolum Killi var á 77. aldursári og farinn að heilsu þegar hann stofnaði klaustur á eynni helgu, Iona, árið 563. Þetta er líklega nálægt meðalaldri 44 hraustra félaga Öldungadeildar LÍ og maka þeirra sem lögðu leið sína þangað í fótspor pílagríma fyrri alda 

Lesa meira



Þetta vefsvæði byggir á Eplica