10. tbl. 96.árg. 2010

Umræða og fréttir

Frá öldungadeild LÍ. Af för Öldunga í ríki Ásbirninga. Jón Hilmar Alfreðsson

u09-fig1
Ferðalangar í Miklabæjarkirkju ásamt séra Döllu Þórðardóttur, sóknarpresti og prófasti.
Ljósm. Páll Ásmundsson.

 

Það voru alls 40 félagar og makar þeirra sem þátt tóku í þessari ferð, undir leiðsögn Magnúsar Jónssonar sagnfræðings, 12. til 14. september síðastliðinn.

Veðrið var ekki til að lasta, enda ferðast Öldungar í anda heilags Þorláks, sem aldrei bölvaði veðrinu. Þó er ekki ofsagt að við komumst í hann krappan á göngu í Haugsnesi, lentum þar í norðan þræsings hraglanda, einmitt þar sem mannskæðust hefur orðið orusta á Íslandi.

Mánudagurinn 13. var hins vegar blíður og heiður og frá honum stafa bjartar minningar, til dæmis úr Glaumbæ, Hofsósi og Hólum.

Við gistum á Hótel Varmahlíð og snæddum þar í tvígang kvöldverð. Hlaut sá viðurgjörningur allur einróma lof. Hvílíkt hótel í sveit á Íslandi.

Sagan var snar þáttur í ferðinni. Drangey minnti á Gretti og fjölmörg örnefni í Skagafirði  á Sturlungu. Þessi fornrit voru víða reifuð af Magnúsi leiðsögumanni. Og það voru fleiri sem miðluðu fróðleik. Þórður Harðarson útskýrði dulin tákn sem finnast í frásögnum af landnámum Ingimundar gamla og Helga magra og Jón Þorsteinsson sagði frá hryssunni Flugu sem týndist í Flugumýri.

Það var samkvæmt hefð að gjaldkerinn, Tryggvi Ásmundsson, hafði meðferðis einn ágætan  veiðimeistara og þegar líða tók á dag og sól varð höll á himni skenkti hann mönnum í bikara. Var almennt gerður að þessu góður rómur. Hitt er svo, að gjaldkerinn átti það líka til – og alveg utan dagskrár – að fara í hátalara og segja lítt sannar spésögur af nærstöddum félögum. Páll Ásmundsson gerði og það til gaman að kveða um Gretti, sem synti í land eftir „spólu”, undir hlimrekskum hætti.

Þetta og ýmislegt fleira í þeim dúr var til þess fallið að gera ferðina skemmtilega, en ef til vill er það þó samveran sjálf sem er best, og svo það að allir komu heilir heim.

 

u09-fig2

Skagafjörður

Skagafjörðurinn skín oft við sólu.

Skáldið Hjálmar þar lifði í Bólu.

Þar Geirmundur rokkar

og graðhestur brokkar

og Grettir synti í land til að ná sér í spólu.

                                                               P.Á.

 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica