Liprir pennar

Liprir pennar. Skógrækt lækna. Hjörtur Oddsson

Það hefur komið mér á óvart hvað læknar tengjast allskonar ræktun mikið. Á Íslandi hafa þeir verið mjög áhugasamir að gróðursetja plöntur og rækta matjurtir. Bjarni Pálsson landlæknir (1719-1779) ræktaði matjurtir og reyndi akuryrkju á Seltjarnarnesi. Hans J. G. Schierbeck var landlæknir á Íslandi seinnihluta 19. aldar. Hann fékk leyfi til að hefja þar garðrækt og var það tilraunagarður matjurta og trjáa.

Lesa meira

Liprir pennar. Hugleiðingar um þróun sérnáms á Íslandi. Magnús Karl Magnússon

Hér má einnig velta fyrir sér álagi og fjölbreytileika tilfella á spítölum sem þjónusta milljónir íbúa samanborið við Landspítala sem þjónustar um 400 þúsund manns. Er líklegt að sérnám í mörgum greinum á Íslandi geti orðið sambærilegt við nám sem milljónaþjóðir í hinum vestræna heimi geta boðið?

Lesa meira

Liprir pennar. Sofandi að feigðarósi? Ólöf Birna Margrétardóttir

Nú eru komin 11 ár síðan við fluttum til Gautaborgar til að fara í sérnám. Við byrjuðum bæði ferilinn á Sahlgrenska, eiginmaðurinn á lyflækningasviði og ég á skurðsviði. Þegar ég lít til baka skil ég ekki hvernig við fórum að þessu. Nýtt land, nýtt tungumál, nýr vinnustaður, þrjú börn á leikskólaaldri. Þetta var erfitt en íslenska seiglan kom okkur langt.

Lesa meira

Liprir pennar. Hvernig fer maður af öldrunardeild í Lillehammer inn í A-landslið kvenna í knattspyrnu? Aðalheiður Jóhannesdóttir

Þá gat ég ekki lengur skýlt mér á bak við ósátta eigin- eða yfirmenn og var allt í einu lögð af stað til Algarve. Ég lenti ósofin og hálfrugluð í Faro, var skutlað beint upp á hótel og troðið í íþróttagalla sem gerði ekkert sérstaklega mikið fyrir mig.

Lesa meira

Liprir pennar. Þorum, viljum, getum. Ebba Margrét Magnúsdóttir

Nú þegar hálf öld er liðin frá fyrsta kvennafrídeginum koma konur og kvár saman með kröfuspjöld og vilja breyta því sem betur má fara. Man vel eftir þegar ég sjö ára tók þátt með móður minni að mér fannst margmennið yfirþyrmandi og kröfuspjöldin skrýtin. En gleðin, baráttan og stoltið sem skein úr augum kvenna þennan dag gleymist ei. Eitthvað stórt var í vændum. Þær þorðu, vildu og gátu.

Lesa meira

Liprir pennar. Berlín, Virchow, segulómun, tónlist eða „þangað og heim aftur“, hjartalæknir í námsleyfi. Gunnar Þór Gunnarsson

Það var mikil tónlist í Berlín, ég náði 20-30 tónleikum með djass, samtímatónlist og klassík. Þetta varð ein allsherjar samtenging fyrir mig í tíma og rúmi, stundum ljúfsár. Það væri gaman að lýsa því öllu en hámark þessa pistils er 600 orð.

Lesa meira

Liprir pennar. Hvað get ég sagt? Pétur Guðmann Guðmannsson

Orðelskir læknar hafa ávallt viljað gefa íslenskunni stað í sérfræðimálinu. Framtakssemin náði hápunkti í lok síðustu aldar með heildarþýðingum á Nomina Anatomica og ICD 10. Þó margar klókar þýðingar standi á gulnuðum síðum þessara bóka er þar líka sitthvað afkáralegt. Voru líffæraheitin þýdd vitandi til að hvert og eitt þeirra kynni í raun að verða notað einhvern tíma í texta?

Lesa meira

Liprir pennar. Hin hliðin á lækninum. Egill Rafn Sigurgeirsson

Að sjálfsögðu tók ég með mér nokkur býflugnabú þegar við fluttum heim. Eftir námskeið sem ég hélt í býrækt árið 2000, stofnuðum við nokkrir áhugamenn og konur Býflugnaræktendafélag Íslands (Bý). Ég hef nú kennt ríflega 220 manns býrækt á undanförnum árum, þar af nokkrum kollegum.

Lesa meira

Liprir pennar. Bakþankar og bróderingar. Karl Erlingur Oddason

Nú er komið eitt og hálft ár síðan ég flutti heim og kominn tími fyrir mig sjálfan að spýta í lófana og framkvæma hluti sem hafa setið á hakanum. Eitt af því sem ég hef byrjað að gera er að taka upp bróderingu þar sem ég kaupi gömul verk á nytjamörkuðum og fylli í.

Lesa meira

Liprir pennar. Litið yfir farinn veg. Gríma Huld Blængsdóttir

Þegar ég lít yfir farinn veg, hef ég verið heppin með samstarfsfólk gegnum árin. Starfið er mjög gefandi og fjölbreytt. Ég er mjög ánægð með núverandi samstarfsfólk og góða yfirmenn. Þetta byggist allt á gagnkvæmu trausti og samvinnu allra fagaðila.

Lesa meira

Liprir pennar. Leiðin til Curacao liggur í gegnum safnkerfi nýrans. Halla Fróðadóttir

Það er afar hressandi að skipta svona alfarið um vinnu umhverfi og kynnast nýju fólki, nýrri þjóð og nýrri menningu. Fjölskyldan er alsæl. Yngsti sonur okkar er í alþjóðlegum skóla og annar af eldri sonum okkar kom með og vinnur hjá köfunarfyrirtæki. Maðurinn minn vinnur heiman frá í fyrirtækinu sínu á Íslandi.

Lesa meira

Liprir Pennar. Vinur á vaktinni. Óskar Jóel Jónsson

Alveg sama hversu mikið eða lítið er að gera, langar mann oft að ræða hlutina, bera sýklalyfjavalið eða blóðprufuna undir reyndari augu. Stundum fær maður líka spurningar frá sérnámsgrunnslæknum eða læknanemum sem maður reynir að þykjast vita svarið við.

Lesa meira

Liprir pennar. Snemmmiðaldra kona með stofnana blæti. Stella Rún Guðmundsdóttir

Í Bandaríkjunum settist nýlega á valdastól maður með ólík gildi þeim sem hafa viðgengist á Vesturlöndum. Forsetinn talar gegn vísindum, ráðleggingum sérfræðinga og heilbrigðisstofnana. Til að mynda dró forsetinn Bandaríkin út úr Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni, í miðjum kórónuveirufaraldri.

Lesa meira

Liprir pennar. Stoðsendingar. Bjarni Þorsteinsson

Nú er liðið hálft ár síðan við fjölskyldan fluttum heim frá Svíþjóð. Ef eitthvað er að marka fyrri pistla lipurra penna þá eru þetta varhugaverð tímamót. Drunginn yfir landinu og duttlungarnir í þjóðarsálinni skella á manni eins og stórsjór. Aðlögunarröskunin nær hámarki og maður bíður eftir að loks … aðlagast.

Lesa meira

Liprir pennar. Heimþrá og hamingja. Margrét Brands Viktorsdóttir

Rauði þráðurinn er samstarfsfólkið. Á heimsvísu hefur aldrei verið jafn mikilvægt að hlúa að mannauðnum sem býr í heilbrigðisstarfsfólki og nú. Fólk sem fórnar tíma með fjölskyldunni, afmælum, stórhátíðum og fleiru, til að sinna og hlúa að öðrum.

Lesa meira

Liprir pennar. „Vituð þér enn eða hvað?“ Ludvig Guðmundsson

Helstu þættir sem við Íslendingar gætum lagfært snúa að verndun votlendis og gróðurþekju, draga úr notkun jarðaefnaeldsneytis, minnka mengun af völdum stóriðju, gera matvælaframleiðslu og matarvenjur/matarsóun umhverfisvænni, minnka losun tengda byggingariðnaði og fleira.

Lesa meira

Liprir pennar. Skiptinám í Bretlandi. Sólveig Bjarnadóttir

Fyrir rúmu ári síðan laust þeirri hugmynd niður hjá mér að fara í skiptinám til Bretlands. Kærastinn minn er þar í námi og það vill svo til að sérnám í lyflækningum á Íslandi er skipulagt eftir breskri fyrirmynd sem opnar á þennan möguleika. Ég hafði alltaf séð fyrir mér að fara í sérnám á Norðurlöndunum, og það er raunar enn planið, en allt í einu var Bretland líka á borðinu.

Lesa meira

Liprir pennar. Út að borða. Gróa Björk Jóhannesdóttir

Gróa Björk Jóhannesdóttir barnalæknir er lipur penni Læknablaðsins. „Það sem ég ætla að segja um Lífið Sjálft eru engin geimvísindi og ekki einkauppgötvun. Útivist er kjarninn. Mér finnst sorglegt að hafa ekki fattað ánægju útivistar fyrr en um miðjan aldur.“

Lesa meira



Þetta vefsvæði byggir á Eplica