02. tbl. 112. árg. 2026

Umræða og fréttir

Liprir pennar. Sofandi að feigðarósi? Ólöf Birna Margrétardóttir

Nú eru komin 11 ár síðan við fluttum til Gautaborgar til að fara í sérnám. Við byrjuðum bæði ferilinn á Sahlgrenska, eiginmaðurinn á lyflækningasviði og ég á skurðsviði. Þegar ég lít til baka skil ég ekki hvernig við fórum að þessu. Nýtt land, nýtt tungumál, nýr vinnustaður, þrjú börn á leikskólaaldri. Þetta var erfitt en íslenska seiglan kom okkur langt. Við kláruðum sérnám fyrir nokkrum árum. Eftir rúmlega átta ár á Sahlgrenska söðlaði ég um og færði mig á Högsbo närsjukhus (HN). Þar er göngudeild ólíkra sérgreina, skurðstofur, blóðsýnataka og röntgen. Skurðsviðið sinnir sjúklingum með gallsteina, kviðslit, æðahnúta og endaþarmsvandamál. Sjúkrahúsið er opið á dagvinnutíma og þar eru gerðar valkvæðar aðgerðir. Sjúkrahúsið er glænýtt og tilheyrir Sjukhusen i Väster sem eru rekin af Västra Götalandsregion.

HN hefur verið starfandi í tvö ár. Kostnaðurinn við byggingu sjúkra-hússins var mikill. Augu stjórnmálamanna hafa verið á HN í ljósi þess og háværar kröfur um framleiðni. Ekki hefur verið tekið tillit til þess að það tekur mikið á að flytja starfsemi heils sjúkrahúss á nýjan stað. Á sama tíma átti framleiðnin að aukast. Skurðstofurnar urðu níu í stað þriggja. Þegar sjúkrahúsið tók til starfa var ekki fullmannað á skurðstofunum en samt átti að framleiða af fullum krafti. Í haust varð ljóst að sjúkrahúsið næði ekki settum markmiðum. Ákveðið var að leigja út eina hæð til Sahlgrenska fyrir göngudeildastarfsemi. Núverandi starfsemi á umræddri hæð verður dreift um sjúkrahúsið þrátt fyrir að skipulagið á hæðunum bjóði ekki upp á það. Starfsfólkið hefur mótmælt fyrir daufum eyrum. Hvers vegna geta stjórnendur ekki endurskoðað markmið sem voru óraunhæf frá upphafi? Hvers vegna fær HN ekki möguleikann að vaxa og dafna til fulls? Þessir sömu stjórnendur hafa fylgt ákveðnu „konsepti“ hvernig skal unnið á sjúkrahúsinu. Meðal annars er byggingin skipulögð í opnum rýmum og það sem Svíinn kallar „aktivitetsbaserat arbetssätt“. Þá á starfsmaðurinn að velja sér nýja vinnustöð á hverjum degi. Læknarnir mótmæltu, þetta vinnulag hentar ekki í okkar starfi. Það er óskilvirkt að þurfa að færa sig um set daglega fyrir utan skort á ró og næði til að sinna krefjandi sjúklingavinnu. Okkur var gert að gefa þessu séns, sem við og gerðum. Niðurstaðan varð sú sama – þetta hentar ekki. Enginn hlustar.1,2

Flestir læknar vilja vinna klínískt. Læknum sem eru í stjórnunarstöðum innan sjúkrahúsa fer fækkandi.3Þeir sem taka ákvarðanir um það hvernig sjúkrahús eru rekin eru sjaldnast læknar. Ef þeir eru læknar þá eru það iðulega kollegar sem hafa ekki komið nálægt sjúklingavinnu í fjölda ára og hafa algjörlega tapað tengingunni við vinnuna á gólfinu. Ákvarðanir eru teknar út frá tölum á pappír án þess að það sé hlustað á þá sem eiga að koma hlutunum í verk. Læknar hafa misst völdin yfir sinni vinnu með því að leyfa öðrum að taka stjórnina. Það er bara eitt í stöðunni. Við getum ekki treyst öðrum til að skipuleggja vinnuna okkar, það er fullreynt. Við verðum að muna að þegar sjúklingunum vegnar ekki vel þá er það á okkar ábyrgð. Það er enginn sem hengir millistjórnandann sem tók ákvörðun sem reynist sjúklingahópi illa eða verkefnastjórann sem setti fjármuni í gæluverkefni til að „laga“ tölur á pappír. Við verðum að grípa inn í, sjúklinganna vegna en einnig fyrir okkur sjálf. Við læknar getum ekki látið þetta viðgangast lengur, við höfum verið sofandi of lengi. Ég skora hér með á alla kollega að kasta sér í þær stjórnunarstöður sem bjóðast, þó það sé á kostnað klínískrar vinnu. Breytingin hefst hjá okkur sjálfum. Tökum stökkið og öxlum ábyrgð, ábyrgðin sem er frá upphafi okkar!

Heimildir

1. Bygg om Högsbo närsjukhus – vi läkare kan inte arbeta i öppna kontorslandskap. Göteborgs-posten. 2025. – janúar 2026. https://www.gp.se/3f2208cf-808d-49b8-ac45-0dfe153d7271

2. Skyddsombud larmar om arbetsmiljön på nybyggda Högsbo närsjukhus. 2025. – janúar 2026. https://lakartidningen.se/nyheter/skyddsombud-larmar-om-arbetsmiljon-pa-nybyggda-hogsbo-narsjukhus/

3. Vårdens ledarskap Chefsenkäten 2022. Sveriges läkarförbund. – janúar 2026. rapport-vardens-ledarskap-2022.pdf



Þetta vefsvæði byggir á Eplica