04. tbl. 112. árg. 2026

Ritstjórnargreinar

Ritstjórnargrein. Brotin bök! Freyr Gauti Sigmundsson


Freyr Gauti Sigmundsson

Ný rannsókn, sem sagt er frá í þessu hefti Læknablaðsins, beinir sjónum að hryggbrotum á brjóst- og lendhryggjarmótum sem urðu vegna háorkuáverka á tímabilinu 2003 til 2022 en rannsóknin takmarkaðist við gagnasafn Landspítalans. Rannsókn Hjartar V. Sigurðssonar o.fl. gefur góða innsýn í faraldsfræði hryggbrota á þessu tímabili og er áhugaverð aflestrar.

Er sætan of dýru verði keypt?


Tryggvi Helgason

Nú blása nýir vindar í ráðuneytinu og mjög ánægjulegt að stefnan er tekin á að Ísland fylgi öðrum þjóðum í Evrópu og leiðrétti það að sykur sé notaður í matariðnaði vegna bragðs og þess hve ódýr hann er. Kostnaðurinn sem samfélagið þarf að bera af mikilli sykurneyslu er verulega hár og því ekki eðlilegt að þeir sem nota sykur í sína framleiðslu njóti hagnaðarins á meðan ríkið og einstaklingarnir sem tapa heilsunni bera kostnaðinn. Best væri fyrir alla ef minna væri notað af sykri í mat, en það er þekkt afleiðing af vel heppnuðum sykurskatti.

Fræðigreinar




Þetta vefsvæði byggir á Eplica