03. tbl. 109. árg. 2023

Umræða og fréttir

Stormur í lífi lækna, - Jóhannes Kr. Kristjánsson lýsir gerð heimildaþáttanna á RÚV

„Ég fann aldrei á íslenskum læknum að þeir væru skelkaðir eða hræddir.
Mun fremur að heilbrigðisstarfsfólk væri spennt að takast á við nýjan sjúkdóm,“
segir Jóhannes Kr. Kristjánsson, einn þeirra þriggja sem standa að sjónvarpsþáttunum Stormi, um fyrstu viðbrögðin við COVID-faraldrinum

„Allir voru að bíða eftir frekari upplýsingum og það streymdu inn nýjar á hverjum degi. Ég sat á kaffistofu á gjörgæslunni. Talað var um fræðigreinar: Varstu búinn að sjá þessa sem birtist í gær? Vitneskja um veiruna var að þróast. Nýjar og nýjar upplýsingar komu fram og þá gátu læknar brugðist við á nýjan hátt,“ lýsir blaðamaðurinn Jóhannes Kr. Kristjánsson.

Jóhannes Kr. og Sævar Guðmundsson við tökur á Galtarvita. Mynd/Baldur Kristjánsson

Alls 375 tökudagar voru fyrir heimildaþættina Storm sem sýndir eru á sunnudagskvöldum á RÚV. Þættirnir veita einstaka sýn á störf heilbrigðisstarfsfólks þegar heimsfaraldur skellur á. Jóhannes er oftar en ekki á hælum Þríeykisins svokallaða.

„Kvöldin hjá Þórólfi fóru í að lesa skýrslur. Sara konan hans lýsir þessu vel í þáttunum,“ segir hann en einnig hversu einstakt það var að vera fyrir vestan í 6 vikur þegar veiran stakk sér þar niður á hjúkrunarheimilinu Bjargi í Bolungarvík. Þá elti hann Súsönnu Ástvaldsdóttur umdæmislækni sóttvarna sem skugginn og lýsir hann því hvernig senda þurfti mjög veika COVID-sjúka suður.

„Ég fann að henni fannst það erfitt. Hún þekkti sjúklingana og söguna, en það voru ekki aðstæður til að sinna þeim fyrir vestan.“ Hann segir hana mikinn nagla. Henni hafi verið hælt fyrir atvik sem gengu vel.

„Hún svaraði: Vitiði, að í endurlífgun sem gengur vel þurfum við samt að fara yfir hvað við hefðum getað gert betur. Það lýsti þankagangi hennar.“ Öll hafi gert sitt allra besta.

Jóhannes segir þættina sýna hvernig handtökin eru í takti við þekkinguna hverju sinni. Horfa verði á tímann með réttum augum. „Fólk er svo fljótt að gleyma í hvaða andrúmslofti við vorum hérna í mars og apríl 2020.“

Hann segist margoft hafa verið spurður hvernig hann þyrði að vera á spítalanum á Ísafirði en þar gisti hann um tíma á þriðju hæðinni. „Heilbrigðisstarfsfólk var ekki að spá í þetta. Það passaði sig og var með grímu,“ segir hann.

„Ég fann ekki fyrir ótta en ef maður fann fyrir einhverjum ótta var það tengt því að viðkomandi ætti veika foreldra eða ættingja — en það óttaðist ekki um sjálft sig.“

Veiran náði svo Jóhannesi sumarið 2022. „Það var ótrúlegt að hafa sloppið allan þennan tíma. Ég var mikið í kringum veikt fólk og inni á stöðum þar sem var smithætta. Ég passaði mig mjög vel því ef ég hefði smitast hefði ég dottið út úr tökum. Það gat ég ekki hugsað mér.“

Jóhannes vann heimildaþættina átta með Sævari Guðmundssyni og Heimi Bjarnasyni. Nóg er til af myndefni. „Við erum að skjóta á að þetta sé 1% af efninu.“

Stoltur? „Veistu, já ég er stoltur,“ segir hann. „Stoltur af traustinu sem við nutum allir í þessu. Líka að sjá afraksturinn, nú þegar afurðin er tilbúin, því maður sér hvað þetta er mikilvæg heimild til framtíðar.“

Líta verði til heilsu heilbrigðisstarfsfólks

„Ég tel að við séum ekki búin að sjá fyrir endann á því hvernig þessi vinna og álag í COVID-faraldrinum fór með heilbrigðisstarfsfólk,“ segir Jóhannes Kr. Kristjánsson blaðamaður sem fylgdi starfsfólkinu eftir við gerð þáttanna Storms.

„Ég þekki dæmi um það að læknar og hjúkrunarfræðingar hafi verið í 30% starfi eftir svona útkall. Það er rétt að komast í fullt starf. Þetta er kafli sem við þurfum að gera upp í framtíðinni,“ segir hann.

 

 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica