Stöðuauglýsingar

Sérfræðingur í heimilislækningum - Heilsugæslan Efra Breiðholti

Heilsugæslan Efra Breiðholti óskar eftir að ráða sérfræðing í heimilislækningum. Um er að ræða 100% ótímabundið starf en möguleiki er á lægra starfshlutfalli. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.

Um er að ræða ábyrgðarmikið og krefjandi starf í spennandi starfsumhverfi þar sem áhersla er á nýsköpun og framþróun.

Heilsugæslan Efra Breiðholti leggur áherslu á góða þverfaglega samvinnu og góða vinnustaðamenningu. Stöðin þjónar fyrst og fremst íbúum Efra Breiðholts en öllum er frjálst að skrá sig á stöðina. Mikil þróunarvinna er í gangi og stöðugt er unnið að því að bæta þjónustu við skjólstæðinga.

Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfssvið sérfræðings í heimilislækningum er víðtækt og felst m.a. í almennri læknismóttöku, heilsuvernd, bráðaþjónustu á daginn og síðdegisvakt. Heimilislæknir er virkur þátttakandi í þróun og uppbyggingu heimilislækninga, sinnir kennslu starfsfólks og nema og tekur þátt í vísinda-, þróunar- og gæðastarfi. Um er að ræða spennandi vettvang fyrir lækni sem áhuga hefur á nýsköpun og framþróun í heilsugæslu.

Hæfnikröfur

  • Íslenskt lækningaleyfi
  • Sérfræðimenntun í heimilislækningum
  • Skipulagshæfni, sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð
  • Reynsla af kennslu er æskileg
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Reynsla og áhugi til samstarfs við aðrar starfsstéttir og þátttaka í teymisvinnu
  • Áreiðanleiki, faglegur metnaður, jákvæðni og sveigjanleiki
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Íslenskukunnátta skilyrði

Nánari Lýsing

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og kynningarbréf þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um læknismenntun, læknisstörf, vísinda- og rannsóknarstörf. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Sigurborgu Jónsdóttir, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt til þess að óska eftir hreinu sakavottorði.

Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.

Starfshlutfall er 100 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 20.10.2025

Nánari upplýsingar veitir

Nanna Sigríður Kristinsdóttir - nanna.sigridur.kristinsdottir@heilsugaeslan.is - 513-5300

Vildís Bergþórsdóttir - vildis.bergthorsdottir@heilsugaeslan.is - 513-5300

HH Efra Breiðholti lækningar
Hraunbergi 6
111 Reykjavík

Sækja um starf »

Þetta vefsvæði byggir á Eplica