Sérfræðingur í heimilislækningum - Heilsugæslan Fjörður
Heilsugæslan Fjörður óskar eftir að ráða sérfræðing í heimilislækningum til starfa. Um er að ræða 90-100% ótímabundið starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. maí nk. eða eftir nánara samkomulagi. Til greina kemur að ráða áhugasaman almennan lækni sem hefur hug á sérnámi í heimilislækningum, fáist ekki sérfræðingur í starfið.
Við leitum að læ Sérfræðingur í heimilislækningum - Heilsugæslan Fjörður
kni sem hefur áhuga á að taka þátt í fjölbreyttum, krefjandi og skemmtilegum verkefnum í starfi sem er í stöðugri þróun. Heimilislæknir mun starfa í þverfaglegu teymi með læknum, hjúkrunarfræðingum og öðru fagfólki í lærdómsríku starfsumhverfi.
Hjá Heilsugæslunni Firði starfa sérhæft og metnaðarfullt starfsfólk í hvetjandi og áhugaverðu starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði fær að njóta sín. Hjá okkur ríkir góður starfsandi og áhersla er lögð á náið samstarf fagstétta og teymisvinnu.
Heilsugæslan Fjörður býður upp á fjölskylduvænt vinnufyrirkomulag og gott starfsumhverfi. Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).
Helstu verkefni og ábyrgð
Heimilislæknir sinnir einstaklingum á öllum aldri og er starfið víðtækt og krefjandi. Heimilislæknir sinnir almennum lækningum, mæðravernd, ungbarnaeftirliti, heilsuvernd og síðdegisvakt. Læknir á heilsugæslustöð er virkur þátttakandi í þróun og uppbyggingu heimilislækninga, sinnir kennslu starfsfólks og nema og tekur þátt í vísinda-, þróunar- og gæðastarfi.
Hæfniskröfur
Íslenskt lækningaleyfi
Sérfræðimenntun í heimilislækningum
Skipulagshæfni, sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð
Reynsla af kennslu er æskileg
Góð hæfni í mannlegum samskiptum
Reynsla og áhugi til samstarfs við aðrar starfsstéttir og þátttaka í teymisvinnu
Áreiðanleiki, faglegur metnaður, jákvæðni og sveigjanleiki
Góð almenn tölvukunnátta
Íslenskukunnátta skilyrði
Hreint sakavottorð
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og kynningarbréf þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um læknismenntun, læknisstörf, vísinda- og rannsóknarstörf. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt til þess að óska eftir hreinu sakavottorði.
Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Starfshlutfall er 90-100%
Umsóknarfrestur er til og með 14.03.2025
Nánari upplýsingar veitir
Thelma Björk Árnadóttir - thelma.b.arnadottir@heilsugaeslan.is - 513 5400
Sandra Ásgeirsdóttir - sandra.asgeirsdottir@heilsugaeslan.is - 513 5400