
Sérfræðingur
í heimilislækningum - Heilsugæslan Glæsibæ
Laust
er til umsóknar ótímabundið starf sérfræðings í heimilislækningum við
Heilsugæsluna Glæsibæ. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 1. maí n.k. eða
eftir nánara samkomulagi. Starfshlutfall er 100% eða eftir
samkomulagi. Um er að ræða ábyrgðarmikið og krefjandi starf í
spennandi starfsumhverfi.
Heilsugæslan
er fjölskylduvænn vinnustaður og góð samvinna er á milli starfstétta. Á
stöðinni starfa sérfræðingar í heimilislækningum ásamt hjúkrunarfræðingum,
ljósmæðrum, sjúkraþjálfara, sálfræðingi, félagsráðgjafa og
riturum. Heilsugæslan Glæsibæ þjónar fyrst og fremst íbúum Voga- og
Heimahverfis, en allir eru velkomnir á stöðina.
Mikil
þróunarvinna er í gangi og stöðugt er unnið að því að bæta þjónustu við
skjólstæðinga.
Nánari
upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar
(www.heilsugaeslan.is).
Helstu
verkefni og ábyrgð
Starfssvið
sérfræðings í heimilislækningum er víðtækt og felst m.a. í almennri
læknismóttöku, heilsuvernd, bráðaþjónustu á daginn og síðdegisvakt. Hann er
virkur þátttakandi í þróun og uppbyggingu heimilislækninga, sinnir kennslu
starfsfólks og nema og tekur þátt í vísinda-, þróunar- og gæðastarfi. Um er
að ræða spennandi vettvang fyrir lækni sem áhuga hefur á nýsköpun og
framþróun í heilsugæslu.
Hæfniskröfur
- Íslenskt
lækningaleyfi
- Sérfræðimenntun í
heimilislækningum
- Skipulagshæfni,
sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð
- Reynsla af
kennslu er æskileg
- Góð hæfni í
mannlegum samskiptum
- Reynsla og áhugi
til samstarfs við aðrar starfsstéttir og þátttaka í teymisvinnu
- Áreiðanleiki,
faglegur metnaður, jákvæðni og sveigjanleiki
- Góð almenn
tölvukunnátta
- Góð
íslenskukunnátta æskileg
- Góð enskukunnátta
Frekari
upplýsingar um starfið
Laun
samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og
viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn
skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá þar sem gerð er grein fyrir
ástæðu umsóknar og kynningarbréf þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir
hæfni viðkomandi í starfið. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um
læknismenntun, læknisstörf, vísinda- og rannsóknarstörf. Gögn sem ekki er
hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdastjóra
mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109
Reykjavík. HH áskilur sér rétt til að óska eftir hreinu sakavottorði.
Mat
á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur.
Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað
þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Starfshlutfall
er 100%
Umsóknarfrestur
er til og með 29.01.2025
Nánari
upplýsingar veitir
Marta
Lárusdóttir - marta.larusdottir@heilsugaeslan.is -
513-5700
|