12. tbl. 107. árg. 2021

Umræða og fréttir

Læknar endurskoða Codex, Svanur Sigurbjörnsson stýrði vinnunni

„Siðareglur lækna eru nú efnismeiri en þó jafnlangar,“ segir Svanur Sigurbjörnsson, formaður siðfræðiráðs LÍ

Tveggja ára vinna siðfræðiráðs Læknafélags Íslands við endurskoðun siðareglna lækna (Codex Ethicus) var samþykkt með miklum meirihluta á aðalfundi Læknafélagsins nú í októberlok. Þær verða birtar í janúarblaði Læknablaðsins 2022.

„Laga þurfti ótrúlega margt,“ segir formaður siðfræðiráðs félagsins. Til að mynda hafi verið farið yfir alþjóðasiðareglur lækna; Genfar- og Helsinki-yfirlýsingu Alþjóðafélags lækna (WMA), Lissabon-sáttmálann og sérstakar yfirlýsingar frá Alþjóðafélaginu sem bornar voru saman við íslensku reglurnar.

Svanur Sigurbjörnsson nýtti þekkingu sína úr siðfræði fagstétta í hagnýtri siðfræði við HÍ við endurskoðunina. „Ég kannaði hvort nægilegar og nauðsynlegar ástæður væru til að breyta Codex Ethicus.“ Mynd/gag

„Það var nær ekkert sem vantaði út frá þeim hlutum,“ segir Svanur. „Hins vegar vantaði bæði í megin alþjóðasiðareglur WMA og okkar ákvæði um hlutverk lækna að líkna, skyldu upplýsingagjafar og hið þekkta ákvæði mannhelgi um að læknar umfram allt skaði ekki. Þetta stóð hvergi í meginsiðareglum.“ Þá hafi áminning lækna til annarra heilbrigðisstétta um þagmælsku verið tekin út en viðbætur vegna persónuverndar og varkárni í notkun samfélagsmiðla sett inn.

Horfðu til máttarstólpa

Svanur segir margt það nýja liggja í augum uppi en þurfi þó að standa í siðareglum. „Þess vegna fórum við mjög ígrundað yfir meginreglurnar. Þær eiga að tryggja að þau fjögur meginviðmið sem hafa verið almennt viðurkennd í samfélögum lækna síðustu 50 árin; velgjörð, mannhelgi, sjálfræði og óhlutdrægni. Þessi fjögur atriði hafa þótt máttarstólparnir í grundvallargildismatinu.“

Svanur segir nýju útgáfuna einnig lýsa siðferðilegum tíðaranda. „Við tökum út karllæg orð eins og bræðralag og setjum inn að forðast skuli áreitni og kynbundið ofbeldi. Hegningarlög taka á því en þó er rík ástæða til að leggja áherslu á það í ljósi baráttunnar í samfélaginu.“

Svanur hefur leitt þessa gagngeru endurskoðun á reglunum. Vinnan hófst í ársbyrjun 2018 og lauk vorið 2020. „Sjónarhorninu hefur verið breytt þannig að Læknafélagið setur ekki lengur félags-mönnum reglurnar heldur gangast læknarnir sjálfir undir þær og tengsl þeirra við læknaeiðinn eru styrkt.“

Svanur bendir á að eina lagalega skylda siðfræðiráðsins sé reglubundin endurskoðun á siðareglunum. „Ég vissi af þessu þegar ég tók við formennsku í siðfræðiráði 2015 og fór að skoða reglurnar. Þær voru að meginhluta frá árinu 2005 þegar síðasta heildarendurskoðunin var gerð út frá reglunum 1992. Þá urðu einnig lítilsháttar breytingar 2013.”

Nýtti siðfræðinám

Svanur segir að meistaranám hans í hagnýtri siðfræði við HÍ hafi nýst sem grundvöllur breytinganna. „Ég var í áfanga um siðfræði fagstétta og skrifaði ritgerð þar sem ég kannaði hvort nægilegar og nauðsynlegar ástæður væru til að breyta Codex Ethicus. Það kom ýmislegt í ljós. Kennaranum fannst niðurstaðan vel ígrunduð og ég lagði hana fram sem upphafsreit við þessa endurskoðun,“ segir Svanur.

Fjöldi lækna hefur unnið að endurskoðuninni. Níu meðlimir siðfræðiráðs og 10 álitsgjafar. Auk Svans hafa þau Áslaug Heiða Pálsdóttir, Gunnar Thorarensen, María Soffía Gottfreðsdóttir, Ólafur Árni Sveinsson, Þórunn Jóhanna Júlíusdóttir og Björn Hjálmarsson, frá byrjun 2020, setið í ráðinu og þær Rún Halldórsdóttir, sem sat í rúm tíu ár og Þórhildur Kristinsdóttir á árunum, sem var í tvö ár, til ársins 2019.

„Já, ég er mjög ánægður með verkið og ánægður með þau öll sem tóku þátt. Þetta var afskaplega gefandi ferli. Frjóar og góðar umræður, málefnalegar og gagnlegar.“

 

Sérstakir álitsgjafar siðfræðiráðs LÍ

• Jón Snædal læknir, fyrrverandi formaður siðfræðiráðs LÍ. Fulltrúi LÍ hjá WMA

• Sigurður Guðmundsson læknir, prófessor emeritus, fyrrv. landlæknir

• Ástríður Stefánsdóttir læknir, BA og MA
í heimspeki

• Björn Einarsson læknir, BA í heimspeki

• Guðmundur Þorgeirsson læknir, prófessor

• María Sigurjónsdóttir læknir, BA í heimspeki

• Stefán Hjörleifsson læknir, prófessor,
BA í heimspeki

• Vilhjálmur Árnason, heimspekingur, prófessor

Álitsgjafar frá opna umsagnarferlinu

• Halldóra Ólafsdóttir, læknir

• Arnar Hauksson, læknir

 

 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica