09. tbl. 105. árg. 2019

Umræða og fréttir

Stefna á fullan rekstur sjúkrahótelsins um áramót, segir hótelstjórinn Sólrún Rúnarsdóttir

Jafnvel hundruð þúsunda geta sparast við að útskrifa einstaklinga af Landspítala á nýja sjúkrahótelið við Hringbraut. Um þriðjungur gesta þess í sumar hefðu annars teppt spítalann enn frekar.

                                                                       
                                                                       Sólrún Rúnarsdóttir hótelstjóri á
                                                                       Sjúkrahóteli Landspítala við 
                                                                       Hringbraut sem opnaði í maí.
                                                                       Mynd/gag

hlusta

„Af þeim sjúklingum sem við tókum á móti í sumar hefði um þriðjungur þurft að gista inni á spítalanum ef ekki væri fyrir hótelið,“ segir Sólrún Rúnarsdóttir, hótelstjóri Sjúkrahótels Landspítala. Hótelið lék eitt lykilhlutverka í sumar þegar ástandið á spítalanum var sem verst og loka þurfti legurýmum og deildum vegna sumarfría starfsfólks. Rúmlega 400 sjúklingar auk aðstandenda hafa gist á sjúkrahótelinu frá því það var opnað 6. maí. Hótelið létti ekki aðeins á flæði innan spítalans heldur dró einnig úr kostnaði.

„Það er ódýrara að vera í þessu úrræði en á legudeild. Ef við getum tekið við fólki af legudeildum og komið í veg fyrir að sjúklingar teppist á bráðamóttöku eða gjörgæslu geta sparast töluverðir fjármunir, jafnvel hundruð þúsunda í hverju tilfelli,“ bendir Sólrún á.

„Rannsóknir sýna að ef sjúklingar eru á röngu þjónustustigi og meðferð þeirra er lokið þar, eins og til dæmis á bráðamóttöku þar sem ég vann lengi, eykur það líkur á að eitthvað fari úrskeiðis í meðferðinni. Ég tel því klárlega að nýja hótelið komi til með að hjálpa heilbrigðiskerfinu. Það fækki atvikum og spari fé.“

Stefnt er á að hótelið verði komið í fullan rekstur í árslok með 75 herbergjum. „Við höfum unnið í skrefum bæði til að læra og meðan við erum að manna það,“ segir Sólrún. „Þá hafa ýmsir þættir komið upp í þessari nýju byggingu og krefjandi að fá úrbætur á þeim þegar flestir eru í sumarfríi. Vonandi kemst skriður á það nú að sumarleyfum loknum.“

Hún nefnir leka á einum stað, rangan vatnshalla í nokkrum herbergjum, truflanir á rafmagni og vatni. „Þetta er nýtt hús og ýmislegt sem sást ekki við fyrstu sýn og þarf að laga eins og gengur og gerist í nýju húsnæði.“

Bæði hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar vinna á sjúkrahótelinu. Verkefnin eru margskonar. Þar eru gefin lyf og settir upp æðaleggir og vökvi í æð, fylgst með almennu ástandi fólks, skipt um umbúðir á sárum og fleira. „Fólk þarf að vera sjálfbjarga með daglegar athafnir, geta klætt sig, farið á salerni og komið sér fram í matsalinn. Reglugerðin setur okkur skorður þar,“ segir hún en starfsmenn aðstoði þó eftir þörfum.

Sólrún var meðal annars verkefnastjóri fyrir Landspítala við uppbyggingu sjúkrahótelsins þegar hún tók við stjórnartaumunum. „Ef einhver hefði sagt mér fyrir 20 árum að ég ætti eftir að verða hótelstjóri hefði ég talið að sá hinn sami væri galinn,” segir Sólrún og hlær þar sem við sitjum á fjórðu hæð hótelsins í glersal með glæsilegu útsýni yfir Þingholtin. Hún á nú 20 ára útskriftarafmæli úr hjúkrunarfræði.

„Ég vann lengi á bráðamóttökunni í Fossvogi en fór í meistaranám milli barneigna og hef starfaði síðastliðin 5 ár sem gæðastjóri á flæðisviðinu sem bráðamóttakan tilheyrir. Flæðisviðið er stórt svið. Öldrunarþjónusta og endurhæfing tilheyra því og lengi vel gerði sjúkrahúsapótekið það einnig en það er nú komið yfir á aðgerðarsvið,“ segir hún en sló til þegar tækifærið gafst. „Af hverju ekki? Ég sé ekki eftir því, er með frábært starfsfólk með mér enda geri ég þetta ekki ein. Sækja þarf um dvöl á hótelinu rafrænt í heilsugátt með beiðni í Sögu eða með því að hringja í okkur á sjúkrahótelinu.“



Þetta vefsvæði byggir á Eplica