01. tbl. 105. árg. 2019

Umræða og fréttir

XXIII þing Félags íslenskra lyflækna

                                     
                                      Myndina tók Davíð O. Arnar og á henni eru frá vinstri Helga Ágústa
                                      Sigurjónsdóttir, Karl Andersen, Bára Dís Benediktsdóttir, Hulda Hrund
                                      Björnsdóttir, Margrét B. Andrésdóttir og Þórður Harðarson.

Fyrstu helgina í desember var haldið XXIII. þing Félags íslenskra lyflækna í Hörpu. Að undirbúningnum stóðu stjórn lyflækna, þau Davíð O. Arnar formaður, Gerður Gröndal ritari, Sigurður Ólafsson gjaldkeri, Signý Vala Sveinsdóttir, Runólfur Pálsson, Friðbjörn Sigurðsson og Örvar Gunnarson meðstjórnendur og auk þeirra sérnámslæknar í lyflækningum, þær Bára Dís Benediktsdóttir og Theódóra Rún Baldvinsdóttir. Bylgja Kjærnested hjúkrunarfræðingur sá um skipulagningu fyrirlestra á sviði hjúkrunar.

Þau nýmæli voru að vikuna á undan var vika lyflækninga með hádegisfyrirlestrum á Landspítala Hringbraut og í Fossvogi, og fræðslufyrirlestrum í Petersen svítunni föstudagskvöldið viku fyrir þingið. Læknablaðið gaf út fylgirit með ágripum og dagskrá þingsins, og er efnið varðveitt á heimasíðu blaðsins: laeknabladid.is/fylgirit/

Meðal þess sem þar bar hæst var málþing um uppbyggingu starfsferils í lyflækningum, þar sem Rita Redberg læknir og aðalritstjóri JAMA Internal Medicine, fjallaði um mikilvægi vísindarannsókna og hvernig best er að bera sig að við að birta vísindagreinar, og listina að flétta saman klínískt starf og vísindavinnu.

Um árabil hefur þingið verið helsti vettvangur fyrir kynningu á niðurstöðum vísindarannsókna, margir af okkar fremstu vísindamönnum í læknisfræði hafa þreytt frumraun sína á þingum félagsins. Verðlaun voru veitt úr Verðlaunasjóði í læknisfræði fyrir bestu veggspjöld og fyrirlestra unglæknis og læknanema. Sjóðurinn var stofnaður af Þórði Harðarsyni prófessor emeritus í lyflækningum og Árna Kristinssyni, fyrrum yfirlækni hjartalækninga. Bára Dís Benediktsdóttir, deildarlæknir á lyflækningasviði, og Hulda Hrund Björnsdóttir, læknanemi, hlutu verðlaunin að þessu sinni. Í dómnefndinni voru

Helga Ágústa Sigurjónsdóttir, sem var formaður, Margrét Birna Andrésdóttir og Karl Andersen.

Verkefni Báru heitir „Notkun erfðaupplýsinga til að draga úr hættu á skyndidauða. Stökkbreytingar sem valda heilkenni lengingar á QT-bili á Íslandi”. Samstarfsaðilar hennar eru Garðar Sveinbjörnsson, Hilma Hólm, Daníel F. Guðbjartsson, Davíð O. Arnar og Kári Stefánsson.

Verkefni Huldu Hrundar heitir „Krabbamein verður helsta dánarorsök einstaklinga með T2M. Áhorfsrannsókn á sænskri landsvísu á 457.473 einstaklingum með T2DM borið saman við 2.287.365 pöruð viðmið”. Samstarfsaðilar hennar eru Araz Rawshani, Aidin Rawshani, Stefan Franzén, Ann-Maríe Svensson, Naveed Sattar, Hrafnhildur Soffía Guðbjörnsdóttir.

Auk sigurvegaranna þóttu nokkur rannsóknarverkefni skara fram úr: Gísli Þór Axelsson, læknanemi: „Tengsl millivefslungnabreytinga við heilsutengda þætti“, Unnar Óli Ólafsson, læknanemi: „Gildi MB-LATER skilmerkja til að spá fyrir um árangur rafvendinga vegna gáttatifs“, Rebekka Sigrún Lynch, deildarlæknir: „Lifetime exposure to violence and other life stressors and hair cortisol concentration in women“, Kristján Torfi Örnólfsson, unglæknir: „Lýðgrunduð rannsókn á svörun sjúklinga með primary biliary cholangitis við meðferð með ursodeoxycholsýru“.

Einn af hápunktum þingsins var þegar fjórir læknar voru gerðir að heiðursfélögum í Félagi íslenskra lyflækna, þeir Ari Jóhannesson, Magni Jónsson, Magnús Böðvarsson og Uggi Agnarsson, allir framúrskarandi lyflæknar, virkir á þingum félagsins og hafa gefið mikið af sér til lyflækninga á sínum starfsferli.

Þinginu lauk með kvöldverði og dansleik enda félagsleg efling mikilvæg fyrir þá sem starfa innan lyflækninga.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica