11. tbl. 105. árg. 2019

Umræða og fréttir

Doktorar í læknisfræði 2018-2019

                                         
                                          Myndir: Kristinn Ingvarsson

SAMÚEL SIGURÐSSON varði doktorsritgerð sína í læknavísindum við læknadeild Háskóla Íslands. Ritgerðin heitir: Áhrif bólusetningar með prótein-tengdu pneumókokka bóluefni á pneumókokka í nefkoki og sýkingar af völdum pneumókokka í íslenskum börnum.

Andmælendur voru Adam Finn, prófessor í barnalækningum við Háskólann í Bristol, og Richard Malley, prófessor við Harvard-háskóla í Boston.

Umsjónarkennari var Ásgeir Haraldsson, prófessor, og leiðbeinandi Karl G. Kristinsson, prófessor. Auk þeirra sátu í doktorsnefnd Birgir Hrafnkelsson, prófessor við raunvísindadeild, Helga Erlendsdóttir, aðjúnkt við læknadeild, og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.

Ágrip af rannsókn: Streptococcus pneumoniae, pneumókokkar, eru á meðal algengustu baktería sem valda miðeyrnabólgu og lungnabólgu í börnum og geta valdið alvarlegum sýkingum eins og heilahimnubólgu og blóðeitrun. Bólusetningu gegn 10 algengustu, meinvirkustu og/eða sýklalyfjaónæmustu hjúpgerðunum var bætt í ungbarnabólusetningar á Íslandi árið 2011. Markmið rannsóknarinnar var að meta áhrif bólusetningarinnar á berahlutfall pneumókokka og á sýkingar af völdum þeirra í bólusettum íslenskum börnum samanborið við fyrri árganga. Rannsóknin sýnir að sjúkdómsbyrði pneumókokka hefur minnkað umtalsvert í íslenskum börnum frá upphafi bólusetningar árið 2011.

Doktorsefnið: Samúel Sigurðsson (1988) lauk B.Sc.-prófi í læknisfræði 2013 frá Háskóla Íslands og kandídatsprófi í læknisfræði frá sama skóla 2017.

                                 

ANDRI LEÓ LEMARQUIS varði doktorsritgerð sína í lækna-vísindum við læknadeild Háskóla Íslands. Ritgerðin heitir Klínísk mynd og ónæmissvar einstaklinga með sértækan IgA skort.

Andmælendur voru Rita Carsetti, prófessor við Ospedale Pediatrico Bambino í Róm, og Valtýr Stefánsson Thors, aðjunkt í barnalækningum við læknadeild.

Umsjónarkennari og leiðbeinandi var Björn Rúnar Lúðvíksson, prófessor við læknadeild, og meðleiðbeinandi var Una Bjarnadóttir, lífefnafræðingur. Auk þeirra sátu í doktorsnefnd Ásgeir Haraldsson og Ingileif Jónsdóttir, prófessorar við læknadeild, og René Toes, prófessor við Leiden University Medical Center í Hollandi.

Ágrip af rannsókn: Markmið rannsóknarinnar var að greina klíníska og ónæmisfræðilega mynd sértæks IgA-skorts (sIgAD). Notast var við klíníska greiningu, frumugreiningu eitilfrumna, sjálfsónæmismótefna-mælingu og boðefnamælingar til betri skilgreiningar á einstaklingum með gallann. Meginniðurstöður eru því að í sértækum IgA-skorti er tenging milli klínískrar myndar sjálfsónæmis, sýkinga, ofnæmissjúkdóma og röskunar ónæmissvars er tengist B-frumuþroskun með tilheyrandi ofseytingu ónæmisþátta og sjálfsónæmismótefnaseytingu.

Doktorsefnið: Andri Leó Lemarquis (1989) lauk kandídatsnámi í læknisfræði frá Háskóla Íslands 2017. Andri Leó hóf doktorsnám samhliða kandídatsnámi í læknisfræði árið 2013 undir handleiðslu Björns Rúnars Lúðvíkssonar prófessors. Auk þessa hefur Andri unnið að skrifum og erfðagreiningu undir handleiðslu prófessors Olovs Ekwall og sérhæfir sig í barnalæknisfræði við Sahlgrenska sjúkrahúsið.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica