12. tbl. 104. árg. 2018

Umræða og fréttir

Frá aðalfundi LÍ. Hvöttu til betra samfélags

                                          
                                          Hópastarf í ætt við þjóðfund, – aðeins 8 manns í hverju holli og auðvelt
                                          að komast að og tjá sig.

Burt með rafretturnar og betri framkomu við erlent vinnuafl var meðal þess sem læknar á aðalfundi Læknafélags Íslands ályktuðu. Hér verður stiklað á þeim ályktunum sem samþykktar voru á fundinum og hægt er að sjá þær í lengra máli á vef félagsins:

Um heimilislækningar: Skorað er á ríkisstjórnina, fjármálaráðuneyti og Alþingi að efla heimilislækningar og tryggja öllum landsmönnum sinn heimilislækni og setja heimilislækningar sem grunnstoð heilbrigðiskerfisins í raunverulegan forgang.

Um erlent vinnuafl: Skorað er á ríkisstjórnina, velferðarráðuneyti og Alþingi að bæta og jafna stöðu erlends vinnuafls á Íslandi. Læknar verði í daglegu starfi sínu vitni að því að endurtekið sé brotið á réttindum erlends vinnuafls. Því sé mikilvægt að upplýsingagjöf til þessa hóps sé bætt og viðurlög hert við brotum.

Um rafrettur og reykingar: Skorað er á yfirvöld að stöðva án tafar sölu á rafrettum eftir því fyrirkomulagi sem nú er því rafrettur eru hættulegar. Finna þurfi viðeigandi lausn á sölu rafretta sem hjálpartækja. Núverandi sölufyrirkomulag sé -óásættanlegt.

Um stuðning við kröfur Læknafélags Reykjavíkur: Fundurinn hvetur heilbrigðisráðherra til að beita sér fyrir því að nýr samningur verði gerður um sérfræðilæknisþjónustu áður en gildandi samningur rennur út um næstu áramót. Án samnings SÍ við sérgreinalækna telur LÍ að hætta aukist á mismunun á aðgengi að læknisþjónustu á grunni efnahags.

Um mannauðsmál: Aðalfundurinn fordæmir ítrekuð brot undirstofnana heilbrigðisráðuneytisins er lúta að störfum lækna. Aðalfundurinn telur þessi mál lýsa stjórnunarstefnu sem fengið hafi að viðgangast óáreitt í heilbrigðiskerfinu þar sem ekki sé brugðist við af stjórnvöldum þegar stjórnendur heilbrigðisstofnana verði uppvísir að ólögmætri stjórnsýslu.

Um heilbrigðisstefnu: Lýst er áhyggjum yfir vinnubrögðum við gerð heilbrigðisstefnu á vegum heilbrigðisráðuneytisins þar sem félögum lækna hafi ekki verið boðið að senda fulltrúa á fjölmarga undirbúningsfundi. LÍ og aðildarfélög þess lýsa sig reiðubúin að taka virkan þátt í gerð heilbrigðisstefnunnar.

Um vinnufyrirkomulag almennra lækna: Aðalfundur hvetur stjórnendur Landspítala og annarra heilbrigðisstofnana að sýna almennum læknum tillitssemi og virðingu í samskiptum er varða almennt vinnufyrirkomulag.

 

#MeToo ýtir við læknum

Ákveðið var á aðalfundi Læknafélagsins að setja á laggirnar sérstaka samskipta- og jafnréttisnefnd. Hún á að stuðla að jákvæðum samskiptum og jafnrétti með áherslu á mál er varða kynferðislega áreitni, kynbundna áreitni og einelti.

Hlutverk nefndarinnar verður að stuðla að fræðslu og forvörnum og tryggja að viðbragðsáætlanir og verkferlar séu til staðar á vinnustöðum lækna og taka við erindum frá félagsmönnum. Tillaga þessi kemur í framhaldi af #metoo- vinnu LÍ.

 

Ný stjórn Læknafélagsins tekur til starfa

Reynir Arngrímsson, formaður

Björn Gunnarsson, gjaldkeri

Frá Félagi almennra lækna: Guðrún Ása Björnsdóttir,  formaður og Ýmir Óskarsson

Frá Félagi íslenskra heimilislækna: Salóme Ásta Arnardóttir, formaður og Jörundur Kristinsson,
varaformaður LÍ

Frá Félagi sjúkrahússlækna: María I. Gunnbjörnsdóttir, formaður og Gunnar Mýrdal, ritari LÍ

Frá Læknafélagi Reykjavíkur: Þórarinn Guðnason, formaður og Guðmundur Örn Guðmundsson.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica