12. tbl. 104. árg. 2018

Umræða og fréttir

Tugþúsundir nota Heilsuveru, segir Ingi Steinar Ingason

„Um 10% allra lyfja­ávísana byggja á beiðnum um endurnýjun úr Heilsuveru,“ segir Ingi Steinar Ingason, teymisstjóri hjá Embætti landlæknis

                                         
                                          Ingi Steinar Ingason frá Embætti landlæknis fór yfir þróun Heilsuveru á
                                          heilbrigðisþinginu.

Alls 66.000 einstaklingar hafa nýtt Heilsuveru fyrstu 10 mánuði ársins. Notendum þessarar rafrænu heilbrigðisgáttar hefur fjölgað hratt og eru þetta nærri tvöfalt fleiri nú en í fyrra. Þetta er annað árið í röð þar sem fjöldinn svo gott sem tvöfaldast, því árið 2016 notuðu tæplega 17.000 skrána.

                                  

„Við sjáum hvernig beiðnum um lyfjaendurnýjun í Heilsuveru hefur fjölgað, úr því að vera ríflega 2000 í september 2016 í yfir 14.000 tveimur árum seinna. Það nemur um 10% allra lyfja-ávísana á mánuði,” segir Ingi Steinar Ingason, teymisstjóri Miðstöðvar rafrænnar sjúkrarskrár hjá Embætti landlæknis. „Margir heimilislæknar taka daglega á móti tugum beiðna um endurnýjanir lyfseðla í gegnum kerfið.“

Á heilbrigðisþingi velferðarráðuneytisins kom fram að þessir einstaklingar hafa tileinkað sér notkun vefjarins, því frá ársbyrjun 2017 hafa innskráningarnar verið tæplega 686.000 og lyfjaendurnýjanir 164.300 talsins. Alls tæplega 23.000 sinnum hafa sjúklingar bókað tíma rafrænt á þessu tímabili.

„Við sjáum að eftir því sem stöðvunum fjölgar á bakvið Heilsuveru eykst notkunin. Við höfum nú tengt allar heilsugæslustöðvar landsins við vefinn og því er bæði hægt að panta þar tíma og biðja um að lyfseðlar séu endurnýjaðir. Þá hafa 23 heilsugæslustöðvar opnað fyrir almennar fyrirspurnir,“ segir Ingi.

„Við sjáum einnig að einkareknu stöðvarnar sjá tækifæri í Heilsuveru. Þær geta dregið úr kostnaði og sparað tíma sem annars færi í utanumhaldið,“ segir hann. „En við erum þó að bíða eftir betra tilvísunarkerfi, því við sjáum að margir sérfræðingar eru svo umsetnir að þeir vilja ekki fá tímabókun frá hverjum sem er. Þó eru nokkrir sérfræðingar á stofu farnir að bjóða upp á rafrænar tímabókanir.“

Ingi Steinar segir að gagnvirkir matslistar á þjónustuþörf, eins og verkjameðferð og þunglyndi, verði aðgengilegir í Heilsuveru á næstunni. Þar verði einnig hægt að nálgast einstaklingsmiðaðar meðferðarleiðbeiningar, fá aðgang að mæðra- og fæðingaskrá ásamt leiðbeiningum fyrir verðandi mæður. Þá verði komið á tengingu við notendagátt Sjúkratrygginga Íslands.

„Heilsuvera mun þróast áfram, við erum til að mynda komin í samstarf við krabbameinsdeildina á Landspítalanum. Þá getur fólk fyllt út verkja- og ógleðikvarða sem læknar og hjúkrunarfræðingar þeirra geta fylgst með og gripið inn í með viðeigandi meðferð ef þeir telja þörf á því,“ segir hann.

En hvernig notar svo almenningur Heilsuveru? „Fer inn á vefinn, velur mínar síður og skráir sig inn með rafrænum skilríkjum.“



Þetta vefsvæði byggir á Eplica