04. tbl. 109. árg. 2023

Umræða og fréttir

Dagur í lífi sérnámslæknis í bráðalækningum. Lára Ósk Eggertsdóttir Claessen

06:30 Vekjaraklukkan hringir en ég er nú þegar vakandi því litla 30 vikna bumbukrílinu mínu finnast næturnar vera tilvalinn tími fyrir sparkæfingar. Hún hefur greinilega hug á ferli sem knattspyrnukona. Læðist niður til þess að vekja ekki manninn minn og dóttur mína. Meira að segja hundurinn nennir ekki að vakna svona snemma og færir sig úr eldhúsinu inn í myrkrið í forstofunni til þess að fá frið.

07:00 Legg af stað niður á Landspítalann á Hringbraut. Um þessar mundir er ég að vinna á svæfinga- og gjörgæsludeild, sem er hluti af sérnáminu í bráðalækningum. Sérnámslæknar í bráðalækningum vinna í 6 mánuði á svæfinga- og gjörgæsludeild til þess að fá þjálfun í svæfingum, öndunarvegameðferð og innsýn í meðferð sjúklinga á gjörgæslumeðferð.

07:15 Renni í hlað á Landspítala. Helstu kostirnir við það að dagurinn á svæfingunni byrjar snemma er að umferðin er lítil og hægt að velja úr bílastæðum!

07:30 Morgunfundur hjá svæfingalæknum. Farið yfir stöðuna á gjörgæslunni, þar sem ég er staðsett þessa vikuna, og dagskipulagið á skurðganginum.


08:00 Læknarnir sem eru á gjörgæslunni þessa vikuna fá ítarlegra rapport frá næturvaktinni um þá sjúklinga sem eru inniliggjandi. Við skiptum með okkur sjúklingunum og vinnan hefst. Sem sérnámslæknir í bráðalækningum er mjög lærdómsríkt að vinna á gjörgæslunni undir handleiðslu svæfinga- og gjörgæslulækna. Hér fæ ég að vera hinum megin við borðið og sinna áframhaldandi meðferð bráðveikra sjúklinga sem í sumum tilfellum flytjast beint af bráðamóttöku á gjörgæsluna. Undanfarið hefur verið nokkuð um sjúklinga með alvarlegar, ífarandi streptó-kokkasýkingar þar sem gjörgæslumeðferð hefur verið nauðsynleg. Sjúklingurinn sem ég sinni í dag lagðist inn með sýklasótt vegna alvarlegrar streptókokkasýkingar en er nú á batavegi eftir gjörgæslumeðferð og kemst líklegast á deild í dag.

15:30 Dagurinn líður hratt enda hefur enginn skortur verið á verkefnum. Þar sem dagurinn á gjörgæslunni byrjar aðeins fyrr er hann líka búinn aðeins fyrr. Ég næ því yfirleitt að vera á undan umferðinni heim til þess að sækja tímanlega á leikskólann.

16:00 Rölti yfir götuna til þess að sækja þriggja ára dóttur mína á leikskólann. Hún er alger félagsvera og hleypur alltaf í burtu þegar hún sér foreldra sína koma. Dagurinn í dag er engin undantekning. Hún er úti að leika sér með vinum sínum og er alls ekki tilbúin til þess að yfirgefa partýið. Ég neyðist til þess að kjaga fram og til baka á leikskólalóðinni áður en ég næ að króa hana af inni í leikkofa. Eftir nokkuð strangar samningaviðræður fellst hún á að koma heim gegn því að fá kex og áframhaldandi útiveru . . .

16:30 Við sækjum heimilishundinn Sölku og förum í fjölskyldugöngutúr niður að Rauðavatni. Litlu dömunni þykir æðislegt að henda steinum í vatnið og Salka fylgist áhugasöm með en er ekki hrifin af því að blotna.

20:00 Háttatími hjá barninu. Bókin sem varð fyrir valinu í kvöld fjallar um hænu sem keypti sér of þröngar gallabuxur en fann á endanum sjálfstraustið til að ganga í þeim óháð því hvað hinum dýrunum fannst. Allt er gott sem endar vel.

20:30 Fullorðinstími! Undanfarin ár hef ég stundað doktorsnám við læknadeild Háskóla Íslands. Rannsóknarverkefnið fjallar um áhrif heilahristings hjá íþróttakonum á sálræna líðan, taugasálfræðileg próf og á heiladingulsstarfsemi og er unnið í samvinnu sálfræðideild Háskólans í Reykjavík. Nú stendur til að framkvæma nokkur hormónapróf til viðbótar svo kvöldið fer í að hringja og senda tölvupóst á þátttakendur. Verðlaunin mín þegar því lýkur eru sjónvarpsgláp og prjónaskapur. Heimferðarsett bumbukrílisins sem er væntanlegt í vor prjónar sig ekki sjálft . . .

 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica