04. tbl. 109. árg. 2023

Umræða og fréttir

Vilhjálmur sá fyrsti sem útskrifast úr sérnámi í lyflækningum

Vilhjálmur Steingrímsson valdi að verða læknir eftir að hafa starfað í greiningardeild Kaupþings við bankahrunið. Hann segir ekki hafa verið erfitt ákveða að setjast aftur á skólabekk enda verið að velja starfsferil til lífstíðar

Vilhjálmur Steingrímsson varð sá fyrsti til að útskrifast úr 5 ára sérnámi í lyflækningum hér á landi 17. mars síðastliðinn. Sérnámið er kennt í samstarfi við Royal College of Physicians í Bretlandi og hóf Vilhjálmur námið 2016. Hann stundaði doktorsnám samhliða og varði ritgerð sína haustið 2021.

Aðalsteinn Guðmundsson öldrunarlæknir, sem var leiðbeinandi í náminu, Ófeigur Tryggvi Þorgeirsson kennslustjóri í sérnámi lyflækninga, Vilhjálmur Steingrímsson, Tómas Þór Ágústsson framkvæmdastjóri lækninga og Gunnar Thorarensen yfirlæknir sérnáms á Landspítala. Mynd/Helga Ágústa Sigurjónsdóttir.

„Hlutirnir ganga gjarnan upp þegar maður eltir áhugann og reynir að vera praktískur í leiðinni,“ segir Vilhjálmur sem á sama tíma stofnaði fjölskyldu með Kristrúnu Gunnarsdóttir hljóðverkfræðingi.

„Við hjónin eignuðumst fjölskyldu, eigum tvo stráka. Svo hefur starfið hjá konunni minni kallað á að við værum hérna á Íslandi. Þetta er stór ástæða fyrir því að ég kaus að stunda sérnámið hér heima,“ segir hann og er hógvær yfir því að útskrifast fyrstur.

„Fyrst og fremst er gaman að þetta skuli hafa gengið eftir. Frábært að prógrammið hafi gengið svona vel og ég hafi getað klárað allt námið hérna heima. Góðir vinir mínir eru að útskrifast úr prógramminu næstu vikur og mánuði. Það var ekki keppikefli að vera fyrstur.“

Hann er ánægður með sérnámið. „Kalt mat: Það er hrikalega gott. Ég held að í alþjóðlegum samanburði standi það framarlega. Þetta var stundum erfitt, eins og sérnám í lækningum er yfirleitt, en líka þar sem þessi rúmlega 10 manna hópur sem var í fararbroddi og þurfti að finna upp hjólið og takast á við áskoranir og finna lausnir á þeim,“ segir hann og tekur verklega PACES-prófið í Bretlandi á þriðja ári sem dæmi.

„Það var mjög ólíkt þeim prófum sem við höfðum farið í á námsferlinum. Það er gaman að sjá hvernig prógrammið hér hefur náð góðum tökum á því að undirbúa sérnámslæknana sína fyrir prófið sem reyndist áður stóra hindrunin þessi fimm ár.“

Vilhjálmur útskrifaðist úr læknisfræði árið 2015 og skráði sig til leiks eftir efnahagshrunið, en hafði verið stærðfræðingur í vinnu í greiningardeild í Kaupþingsbanka.

„Ég var að vinna þar haustið 2008,“ segir hann og þekkt er að þá hrundu íslensku bankarnir. „Það voru umbrotatímar og maður þurfti að fara í naflaskoðun og endaði ég á fara í læknis-fræðina,“ segir hann en að hugmyndin hafi kviknað nokkuð skyndilega.

„Ég vildi nýta stærðfræðina við rannsóknir tengdar heilbrigðisvísindum og fór þá að hugsa: Af hverju ekki að fara í læknisfræði?“ En var ekki erfitt að setjast aftur á skólabekk, búinn að kynnast föstum tekjum? „Nei, það var ekki erfið ákvörðun miðað við að velja starfsferil fyrir lífstíð.“

Vilhjálmur er sérfræðingur í almennum lyflækningum í Fossvogi. „Nú skoða ég hvort ég ætla að fara í undirsérgrein og þá hvenær.“

 

 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica