03. tbl. 109. árg. 2023

Umræða og fréttir

Innkalla Staklox og stöðva ávísun á sýklalyfið vegna ónæmra baktería

 

Einstaklingur hér á landi sem tekið hafði lyfið Staklox í júlí 2022 hefur greinst með sýkingu af völdum sýklalyfjaónæmra baktería. Lyfjastofnun stöðvaði sölu og ávísanir lyfið 7. febrúar og kallaði inn birgðir

Alls leystu 12.190 einstaklingar út 14.851 pakkningar af lyfinu staklox á árinu 2022, sem 4970 læknar höfðu ávísað. Sjúkratryggingar Íslands tóku tölurnar saman fyrir Lyfjastofnun en stofnuninni er aðeins kunnugt um þetta eina tilvik sýkingar. Í skriflegu svari stofnunarinnar segir að ekki sé fordæmi fyrir innköllun lyfja vegna fjölónæmra baktería hér á landi. „Lyfjastofnun tekur atvikinu alvarlega og bregst við í samræmi við það.“

Bakterían sem greindist er sú sama og greinst hefur í nokkrum einstaklingum í Danmörku sem fengu sýklalyfið Dicillin í hylkjum frá september 2022 til janúar 2023. Lyfið er sambærilegt Staklox og bæði framleidd af fyrirtækinu Sandoz, samkvæmt fréttum á vefjum Lyfjastofnunar og Embættis landlæknis.

Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir segir fylgst með málinu því öll frekari útbreiðsla sýklalyfjaónæmra baktería sé alvarlegt lýðheilsumál. Þessi baktería sé þó ekki mjög meinvirk. „Hún er næm fyrir öðrum sýklalyfjum eins og Keflex.“

Í svari Lyfjastofnunar segir að þegar staðan hafi verið ljós hafi apótek verið upplýst. Starfsfólk þeirra hafi verið beðið um að taka við þeim Staklox-hylkjum sem einstaklingar skiluðu inn og afhenda sama fjölda af Dicloxicillin Bluefish-hylkjum til þeirra sem voru í virkri lyfjameðferð. „Þetta var gert til að birgðastýra því sem til var af Dicloxacillin Bluefish í landinu.“

Læknar hafi verið upplýstir og sms send úr Heilsuveru á alla þá 1100 einstaklinga sem höfðu fengið Staklox ávísað síðustu tvær vikur. Samkvæmt upplýsingum Lyfjastofnunar er ekki vitað hve langan tíma rannsóknin mun taka, en allt kapp er lagt á að finna orsök mengunarinnar. Danmörk sé leiðandi í rannsókninni og sé í samskiptum við framleiðanda lyfsins.

 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica