02. tbl. 108. árg. 2022

Umræða og fréttir

Dagur í lífi sérnámslæknis í Iowa. Bergljót Rafnar Karlsdóttir

05.00 Vakna í straumlínulagaða morgunvenju, klæðist spítalafötum, gríp kaffibolla úr Nespresso dýrgripnum og hjóla í vinnuna. Ég bý strategískt um 1,5 km frá spítalanum til að geta varið sem stystum tíma í samgöngur (meiri svefn) og fengið frískt loft um leið.

Skurðstofulíf í Bandaríkjunum, - einhver ljómi yfir því í öllum skilningi. Frá vinstri: ég, Ásgeir Þór Másson sérnámslæknir, Lulua læknanemi, Dr Garcia sérfræðingur í bráða- og slysaskurðlækningum.

05.30 Í sérnámi í almennum skurðlækningum förum við á ýmsar deildir og þennan mánuð er ég á bráðaskurðteyminu. Dagurinn hefst með því að næturvaktin skilar af sér vaktinni til bráða- og slysaskurðteymisins. Í kjölfarið er genginn (hlaupinn) sérnámslæknastofugangur sem þarf að klárast áður en aðgerðir dagsins hefjast. Ég er svo heppin að vera með annan reyndan sérnámslækni á teyminu, Ásgeir Þór Másson, svo við getum skipt listanum með okkur, tekið hvorn sinn yngri sérnámslækninn og séð 30-40 sjúklinga vítt og breitt um spítalann á skömmum tíma til að keyra af stað áætlanir dagsins. Þetta er í fyrsta skiptið sem við Ásgeir höfum verið saman á teymi og það er mikil gleði að geta deilt svörtum lakkrís og harðfiski með smjöri þegar stund er milli stríða, kollegum okkar til mikillar furðu.

06.30 M&M (morbidity and mortality) fundur þar sem sérnámslæknar kynna valin tilfelli þar sem eitthvað hefði mátt betur fara og lærdómsríkar umræður fylgja. Grand Rounds-fundur tekur við þar sem er farið yfir málefni sem varða skurðdeildina. Þessir fundir eru rafrænir svo það gefst tími til að borða morgunmat með sem er yfirleitt snarl á vinnuherberginu. „Wellness snacks” er nýtt og verulega vinsælt framtak frá stjórn sérnámsprógrammsins þar sem þau fylla reglulega á ísskápinn á vinnuherberginu.

08.15 Aðgerðir hefjast, seinna en venjulega vegna fundahaldsins. Á bráðateyminu eru framkvæmdar valaðgerðir auk bráðaaðgerða sem upp koma hverju sinni. Á dagskrá í dag eru tvær stórar kviðslitsaðgerðir vegna kviðslita frá fyrri skurðaðgerðum, gallblöðrutaka og loks nárakviðslitsaðgerð í kviðsjá. Við Ásgeir vinnum saman að fyrstu kviðslitsaðgerðinni en svo skilja leiðir, hann leiðir fyrsta árs sérnámslækni í gegnum gallblöðrutöku á meðan ég geng í nárakviðslitið. Sérfræðilæknirinn, Dr. Garcia, fylgist vel með, kennir og hjálpar þar sem þarf. Á milli aðgerða hrannast inn konsúltbeiðnir og auk þess þarf að fara með sérfræðinginn á stofugang svo hann geti lagt formlega blessun sína yfir teymið.

11.00 Sjúklingur með botnlangabólgu er skoðaður og bókaður á skurðstofuna.
Áður en botnlangatakan er hafin kemur inn mjög veikur einstaklingur með víðtækt drep í görn og fyrri sögu um margar kviðarholsaðgerðir. Við drífum viðkomandi á skurðstofuna „class 1” eða innan klukkustundar og fjarlægjum stóran hluta af smáþörmum, kviðurinn skilinn eftir opinn og sjúklingurinn fluttur á skurðgjörgæsluna til frekari meðferðar svo hann verði í góðu standi þegar görnin er sett aftur saman og kviðnum lokað.

15.00 Botnlangatakan kemst loks að á skurðstofunni og yngri sérnámslæknir rúllar henni upp meðan ég fæ að velja tónlistina, vandamesta hlutverk skurðlæknisins!

18.00 Teymin hittast aftur í kvöldrapport, farið yfir vandamál inni-liggjandi sjúklinga og væntanlegra sjúklinga frá öðrum stofnunum.

18.15 Hjóla heim í samfloti við Ásgeir og við stoppum á leiðinni í gleðistund sérnámslæknanna á Stellu, hverfisbarnum nálægt spítalanum. Við sérnámslæknarnir erum dugleg að hittast þegar COVID-aðstæður leyfa og styðja hvert við annað utan vinnu. Þarna fæ ég fyrstu alvöru máltíð dagsins frá morgunmat og 50% afsláttar Cajun jambalaya rennur ljúflega niður.

19.30 Kem heim og langar ekkert frekar en að sökkva í sófann og horfa á heilalaust sjónvarpsefni. Kærastinn er ekki alveg til í það og drífur mig út í göngutúr sem frískar heilastarfsemina og skrefafjöldinn er upp úr öllu valdi. Eitt það allra fallegasta við Iowa er himinninn enda mikið að sjá af honum í hreinu flatlendi.

21.30 Hef alltaf verið kvöldsvæf og það breytist ekki þegar dagurinn er langur en jafnframt fjölbreyttur, gefandi og skemmtilegur. Sofna nánast samstundis yfir góðri fantasíubók á Kindlinum.

 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica