11. tbl. 106. árg. 2020

Umræða og fréttir

„Mikill meirihluti er sammála aðgerðum” segir Alma landlæknir

Alma D. Möller landlæknir segir að rekja megi þriðju bylgju
COVID-19 faraldursins til eins einstaklings

Alma hefur sannarlega staðið í ströngu undanfarnar vikur og mánuði. Hún segir þriðju bylgju COVID-19 faraldursins hafa komið svolítið aftan að heilbrigðisyfirvöldum og hana megi rekja til einstaklings sem kom til landsins í ágúst eins og áður hefur komið fram.

Alma telur að bóluefni verði tilbúið til notkunar um mitt næsta ár. Mynd/Hávar Sigurjónsson

„Við töldum okkur vera að ráða niðurlögum annarrar bylgjunnar sem var frekar lítil þegar sú þriðja skall á okkur. Mér finnst ótrúlegt til þess að hugsa að við fengum þessa óvæntu útbreiðslu faraldursins út frá einum einstaklingi. Við raðgreinum alla og vitum með vissu hvenær veiran kom til landsins í þessari bylgju og hvað hún hefur náð að dreifa sér síðan kemur verulega á óvart,” segir Alma og bætir því að vissulega séu nokkur vonbrigði að grípa hafi þurft til hertari aðgerða að nýju.

„Við höfum haft að leiðarljósi frá upphafi að aðgerðir séu ekki harðari en nauðsynlegt er en það er þó ánægjuefni að svo virðist sem við séum að snúa þróun bylgjunnar okkur í hag og smitum sé að fækka. Við erum eitt af þremur löndum í Evrópu sem er með fækkun smita á milli vikna. Aðrir eru á leiðinni upp með fjölgun smita.”

- Mun okkur takast að halda þessu niðri þegar faraldurinn er í vexti allt í kringum okkur?

„Ég held að það verði erfitt en okkur tókst það í sumar og tvöfalda skimunin á landamærunum virðist árangursrík. Við misstum nokkuð af smituðum einstaklingum inn í landið með einni skimun en ef okkur tekst að halda þessu niðri núna má leyfa sér einhverja bjartsýni. Við getum aldrei treyst því fullkomlega að missa ekki smitaða einstaklinga út í samfélagið en þetta virðist gefa góða raun. Það er reyndar frekar mild ráðstöfun að setja fólk í 5 daga sóttkví við komu til landsins. Til samanburðar má benda á að mörg nágrannalanda nota 10-14 daga sóttkví.”

Alma segir að þrátt fyrir að farsóttarþreyta hafi vissulega gert vart við sig í haust og að ýmsar skoðanir hafi verið viðraðar á aðgerðum þá sé mikill meirihluti fólks sammála þeirri stefnu sem heilbrigðisyfirvöld hafa tekið.

„Könnun Félagsvísindastofnunar staðfestir það og hér er almennt meiri stuðningur við aðgerðir heldur en víða annars staðar í Evrópu.”

Hún segir að við verðum að takast á við veiruna þar til bóluefni kemur fram og almenn bólusetning getur orðið. „Ég er ekki eins bjartsýn og þeir sem telja að bóluefni verði tilbúið til notkunar í lok þessa árs. Ég tel að það gerist ekki fyrr en á miðju næsta ári og við þurfum einfaldlega að viðhafa áfram allar grunnreglur í sóttvörnum í samfélaginu þangað til bóluefni kemur fram og bólusetningar eiga sér stað. Við þurfum að vera viðbúin því að staðbundin smit komi upp og okkar verkefni er að vera viðbúin því og bregðast hratt og rétt við.”

 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica