02. tbl. 106. árg. 2020
Umræða og fréttir
Wuhan-veiran krefjandi fyrir kerfið komi hún til landsins, segir Ólafur Guðlaugsson
Kórónaveiran frá Wuhan reynir á heilbrigðiskerfið allt og ekki síst innviði Landspítala komi hún til landsins. Þetta segir Ólafur Guðlaugsson, yfirlæknir sýkingavarnadeildar Landspítala.
Vandi skapast verði Landspítali að takast á við kórónaveiruna eða alvarlega inflúensu. Þetta segir Ólafur Guðlaugsson, yfirlæknir sýkingavarnadeildar Landspítala. Spítalinn hafi þó lært af heimsfaröldrum eins og svínaflensunni sem hafi tekið mjög á starfsemi spítalans árið 2009. Þá lögðust á annað hundrað manns inn á spítalann og tæplega 30 á gjörgæslu. Margir þurftu öndunarvélameðferð og 3 að fara í hjarta- og lungnavél.
Ólafur Guðlaugsson, yfirlæknir sýkingavarnadeildar Landspítala. Mynd/gag.
„Það var ansi alvarlegur faraldur,“ segir Ólafur. Læknablaðið spyr hvort aðstæður á spítalanum séu alvarlegri nú en þá segist hann ekki alveg geta svarað því. „Hins vegar er það þannig að allt sem eykur álagið, slys eða veirusýkingar, valda spítalanum ákveðnum vanda.“
Ólafur hefur fundað reglulega með sóttvarnarlækni, sóttvarnarlæknum í héraði, Almannavörnum og öðrum hagsmunaaðilum til að undirbúa heilbrigðiskerfið undir hugsanleg smit hér á landi. Hann segir mörgum ferlum fylgt þegar svona ný veira vakni. Allir viðbragðsaðilar séu virkjaðir svo þeir þekki hvernig flæði sjúklinga eigi að vera.
„Verði tilfellin mörg kemur það til með að reyna enn frekar á innviði stofnunarinnar og heilbrigðiskerfisins alls,“ segir hann. „Við vonum að tilfellin verði fá og að kórónaveiran verði ekki íþyngjandi fyrir íslensku þjóðina. Vona það innilega,“ leggur hann áherslu á.
„Við komum alltaf til með að gera allt eins vel og við getum,“ segir hann og viðurkennir að á sama tíma að allt umfram dagleg verkefni á spítalanum sé mjög krefjandi. „Þannig að ég vona að þetta verði viðráðanlegt ástand,“ segir Ólafur.
Fregnir af alvarlegum lungnasýkingum bárust í desember frá Wuhan-borg í Kína. Áður þekkt kórónaveiruafbrigði var staðfest sem nú kallast 2019-nCoV. Á vef Embættis landlæknis segir að sennilega sé veiran upprunnin í dýrum en sýki nú menn.
Embættið hefur gefið út að undirbúningurinn miðist við uppfærðar áætlanir frá HABL/(SARS)-faraldrinum 2002. Unnið sé að því að gefa út leiðbeiningar til heilbrigðisstarfsmanna en einnig almennings um hvernig eigi að hafa samband við heilbrigðiskerfið vakni grunur um sýkingu af völdum nýju veirunnar, Novel coronavirus eða 2019-nCoV Wuhan-veiru.
Ólafur segir að reynt verði að stýra sjúklingum frá Landspítala. Ferðamönnum sé kynnt að þeir eigi að að hringja í 1700, síma heilsugæslunnar, finni þeir fyrir einkennum. Allar heilsugæslustöðvar eigi að vera undirbúnar til að taka á móti sjúklingum sem smitaðir séu af kórónaveirunni.
„Ef sjúklingar eru veikir eða metið þannig að þeir þurfi frekara mat er hægt að vísa þeim á Landspítala,“ segir hann. „Þar er hægt að taka þá beint upp á A7 eða í gegnum bráðamóttökuna.“ Ólafur segir handtökin hafa verið snör enda einungis hálfur mánuður frá því að veiran greindist þegar þetta er ritað og innan við hálfur mánuður í að greiningarprófin berist til landsins.
Ólafur segir spítalann nú undirbúinn. „Ekki má gleyma að þetta er sjötti faraldurinn sem við lendum í, með svipuðum vandamálum. Við höfum lært af hverjum og einum og sú þekking nýtist við þessum vanda.“
Hvetur starfsfólk til að verja sig
„Við getum ekki sagt til um hvort einstaklingar séu með faraldurinn eða inflúensu. Það er ekki hægt að ráða í það nema með greiningu,“ segir Ólafur Guðlaugsson, yfirlæknir sýkingavarna hjá Landspítala og gagnrýnir starfsmenn fyrir að undirbúa sig ekki sem best.
„Við vitum að inflúensa kemur á hverju ári. Við vitum að við þurfum að vera undirbúin og því er hjákátlegt að heilbrigðisstarfsmenn séu ekki ákafari í bólusetningu inflúensunnar á hverju ári,“ segir hann.
„Við vitum aldrei hversu slæm hún verður og við getum gert heilmikið til að verjast henni,“ segir hann.