01. tbl. 103. árg. 2017

Umræða og fréttir

Heilsugátt í heilsugæslu

Margir möguleikar opnast fyrir notendur Heilsugáttar sem heimilislæknar gætu notið góðs af með lítilli fyrirhöfn og engum kostnaði




Heilsugátt hefur þróast hratt undanfarið og í henni þróast lausnir þar sem upplýsingatækni auðveldar vinnu klíníkera og eykur öryggi sjúklinga. Fjölmargar nýjungar eru í vændum og í þeim felast möguleikar sem gætu ekki síður nýst heilsugæslunni.

Tímalína tekur saman öll sjúkraskrárgögn sjúklings á einni síðu. Heilsugæslulæknir getur í rauntíma séð feril sjúklings á Landspítala og skoðað atburði sjúkraskrár milliliðalaust, svo sem nótur, tölvusneiðmyndir, hjartalínurit og lífsmarkamælingar. Sendingar læknabréfa eru frá þeim tíma þegar hver heilbrigðisstofnun var rekin á eigin gagnagrunni og sjúkraskráin óaðgengileg öðrum. Með samtengingu gegnum Heklu og Tímalínu er sjúkraskráin ekki lengur hólfuð eftir stofnunum.

Læknabréf eru að langmestu leyti afrit „copy-paste“ af nótum og rannsóknarniðurstöðum í legu og því tvírit af því sem þegar er að finna á Tímalínu. Engu að síður er dýrmætum tíma varið í gerð þeirra og sömuleiðis í heilsugæslu að lesa þau yfir, jafnvel þótt erindið sé lítilfjörleg tognun á ökkla. Útskriftarnóta er örstutt samantekt og þýðingarmesti hluti læknabréfs. Með því að senda heimilislækni sjálfvirkar tilkynningar um komur sjúklings og með beinni tengingu á Tímalínu væri hægt að spara tíma lækna og ritara og draga úr sóun.

Skilaboðakerfi gerir notendum kleift að spjalla saman í öruggu umhverfi. Það opnar á nýjar boðleiðir og einfaldar flækjustig og tímaþjófnað tengdan símtölum. Notendur Heilsugáttar eru samtengdir yfir landið og geta því rætt saman innan eða milli stofnana hvar og hvenær sem er. Slík samtenging heils heilbrigðiskerfis er óþekkt erlendis og opnar á byltingarkennda möguleika.

Læknar Landspítala, jafnvel allt teymi sjúklings, gæti rætt beint við lækni og hjúkrunarfræðing í heilsugæslu og sameiginlega undirbúið útskrift eða lokað lausum endum, til dæmis tryggt seinustu blóðrannsókn og sjúklingur útskrifast heim nokkrum dögum fyrr.

Skilaboð í hóp eru þegar komin í prófun í samvinnuverkefni bráðamóttöku og Heilsugæslustöðvar Grafarvogs þangað sem einfaldari erindum er vísað og sameiginleg spjallrás notuð til að einfalda samskipti.

Með Tímalínu við hlið Skilaboðakerfis spjalla starfsmenn saman með sameiginlega sjúkraskrá sjúklings á skjánum.

Héraðslæknir er ekki viss hvort gera þurfi aðgerð á slæmu fótleggsbroti og sendir skilaboð á bæklunarlækni Landspítala sem skoðar röntgenmyndina og svarar innan nokkurra mínútna.

Heilsugátt er þróuð í vafra og því auðvelt að bæta við möguleikum eins og hljóð og mynd í skilaboðaglugganum þannig að samtalið verði „lifandi“.

Héraðslæknir fær í hendur hjartalínurit með STEMI-útliti og gæti fengið strax aðstoð hjartalæknis við túlkun og ákvörðun um sjúkraflutning.

Heimilislæknir sér sjúkling með brottfallseinkenni, vakthafandi taugalæknir gæti séð sjúkling á skjánum og aðstoðað við ákvörðun um tPA-meðferð. Heilsugátt er aðgengileg heiman frá og sérfræðingur á bakvakt gæti því séð sjúkling líka.

Skilaboðakerfi gæti aukið verulega samskipti spítalans og heilsugæslu, styrkt heimilislækna, aukið sjálfstæði stéttarinnar og bætt þjónustu við sjúklinga. Heilsugæslulæknar gætu í vinnudeginum haft meira samráð sín á milli og leitað ráða hvor hjá öðrum. Með Heilsugátt væri hægt að bæta samvinnu milli stofnana og þjappa útstöðvum þess saman þannig að heilbrigðiskerfið færist nær því að vera eitt samfellt þjónustulag þar sem sjúklingurinn hefur vinninginn.

Vinnuhólf bætir við áreiðanleika skilaboða með því að tryggja alltaf viðtöku. Þannig er hægt að innleiða „rafrænar ábyrgðarsendingar" eða boð sem geta aldrei týnst. Þá þurfa læknar Landspítala ekki að treysta á heimilislækni til að fylgja eftir einföldum rannsóknarniðurstöðum sem er augljós hagræðing fyrir lækna og aukin samfellda og öryggi fyrir sjúklinga. Reglan verður sú að læknir sem pantar rannsókn fylgir henni jafnframt eftir.

Vinnuhólf byggir á tökkum sem sýna teljara fyrir óafgreidd skilaboð og tilkynningar og einfaldar lækni alla vinnu með þau þar sem þau tákna í rauntíma stöðu vinnulista og erinda til að klára.

Með Vinnuhólfi verður til áreiðanlegur farvegur fyrir rannsóknarniðurstöður og tilvísanir sem hefði mikilvæga þýðingu fyrir heilsugæsluna.

Heimilislæknir fengi sjálfvirk boð þegar sjúklingur fer á bráðamóttöku, leggst inn eða útskrifast og gæti því fylgt sínum skjólstæðingi í rauntíma.

Sjálfvirk boð verða send heimilislækni þegar tilvísun er móttekin, hún afgreidd og sjúklingur fær bókaðan tíma á göngudeild.

Með tryggðri viðtöku myndi Vinnuhólf opna leið fyrir tilvísanir frá Landspítala til heilsugæslulæknis en engin góð leið er til í dag sem tryggir öryggi formlegra erinda.

Það má vera ljóst að fjölmargir möguleikar eru að opnast fyrir notendur Heilsugáttar sem heimilislæknar gætu notið góðs af með lítilli fyrirhöfn og engum kostnaði (Heilsugátt er kostuð af spítalanum).

Heilsugátt er ekki fyrsta vinnuumhverfi heimilislæknisins og ofangreindar lausnir því nokkrum músasmellum fjær en innan spítalans. Tæknilega lausn á þessu er auðvelt að útfæra þannig að heimilislæknir ynni samfellt í báðum kerfum, bilið yrði brúað. Það má hins vegar vera ljóst að slíkt er ekki mögulegt nema með samstarfi heilsugæslulækna.

Fjallað verður um allt ofangreint í erindi mínu á Læknadögum. Nánar um verkefni Heilsugáttar: https://goo.gl/zs4CVJ

 

Save



Þetta vefsvæði byggir á Eplica