12. tbl. 101. árg. 2015

Umræða og fréttir

Árshátíð Læknafélags Reykjavíkur 2016!


Þessi mynd er af prúðbúnu fólki í veislu Læknafélags Íslands á Hótel Íslandi 26. júní 1922.
Þriðji aðalfundur Læknafélagsins var haldinn 26.-28. júní í þingsal neðri deildar í Alþingishúsinu.
Í júlíblaði Læknablaðsins árið 1922 segir um þetta: „Að kvöldi þess 26. júní héldu læknarnir,
ásamt konum sínum, veislu á Hótel Ísland. Var fyrst borðhald og dansað langt fram á nótt. Sátu
milli 50 og 60 manns veisluna. Hafði stjórn Læknafél. Reykjavíkur séð um undirbúninginn.“
Ljósmyndari óþekktur.

Nú styttist óðum í Læknadaga sem haldnir verða að venju þriðju vikuna í janúar, að þessu sinni þann 18.-22. janúar 2016. Og auðvitað endum við þessa frábæru fræðsluviku með því að hittast öll og gera okkur glaðan dag á árshátíð Læknafélags Reykjavíkur laugardaginn 23. janúar í Hörpu.

Sú skemmtilega hefð hefur haldist gegnum tíðina að árgangar sitja saman, þeir sem útskrifuðust saman sitja við sama borð og nota tækifærið til að treysta böndin og rifja upp gamla góða daga. Þessa hefð vilja flestir halda, hún skapar þó ákveðin vandamál við niðurröðun á borð ef gerðar eru breytingar á síðustu stundu og einkum og sér í lagi ef fólk er að láta frá sér miða til annarra sem ekki eru úr sama árgangi.

Eins og þátttakendur Læknadaga þekkja hefur Fræðslustofnun Læknafélagsins komið til móts við þá sem leggja til vinnu (fyrirlestrahald eða fundarstjórn) með frímiðum á árshátíð. Þetta fyrirkomulag hefur mælst vel fyrir. Þessir árshátíðarmiðar eru alls ekki framseljanlegir til annarra en þeirra sem hafa unnið sér þá inn og fær hver einstaklingur aðeins einn miða (jafnvel þó viðkomandi taki þátt í fleiri en einu málþingi). Hér er ekki um greiðslu að ræða heldur viðurkenningu og þakklætisvott til þeirra sem hafa fengið tækifæri til að koma fram á Læknadögum og gera þá mögulega. Þeir sem hafa fengið árshátíðarmiða af öðrum ástæðum, svo sem vegna stjórnarsetu, nýta þann miða en fá ekki aukamiða ef viðkomandi er með erindi á Læknadögum. Fræðslustofnunin kaupir miðana af LR, þetta er einn af stærstu útgjaldaliðunum og nauðsynlegt að gæta aðhalds til að geta haldið sama staðli á Læknadögum og áður.

Læknafélag Reykjavíkur hefur niðurgreitt miða fyrir alla árshátíðargesti. Í ár verður allt kapp lagt á að árshátíðin standi undir sér þannig að ekki verði gengið á sjóði LR. Ferðaskrifstofan Icelandtravel mun sjá um skráningu á Læknadaga eins og verið hefur en að þessu sinni verður einnig skráning á árshátíð með sama hætti, það er á sömu skráningarsíðu á netinu. Þetta er nýtt og ætlað til að auðvelda niðurröðun á borð í tíma. Þegar blásið er til kvöldverðar fyrir 500-600 manns þurfa staðarhaldarar að fá niðurröðun á borð með góðum fyrirvara. Það þarf að skrá sig til þátttöku á árshátíð í síðasta lagi miðvikudaginn 20. janúar sem er í Læknadagavikunni.

Þeir sem fá miða vegna framlags frá Fræðslustofnun þurfa að merkja við á skráningarsíðu hvort þeir ætla að nýta miðann sinn. Ef viðkomandi ætlar ekki að nota miðann er afar mikilvægt að hann afbóki sig svo að ekki verði auður stóll og dýr matur sem fer til spillis.

Árshátíð LR er einn af hápunktunum í félagslífi lækna á Íslandi og mjög nauðsynleg til að efla andann í stéttinni. Árshátíðin í janúar 2016 verður að venju afar glæsileg, í þetta skiptið verða bæði veislustjórar og hljómsveit mönnuð læknum og læknanemum! Við viljum hvetja alla lækna til að mæta. Nú er rétti tíminn til að ákveða að fara á árshátíð, hóa í gömlu vinina úr læknadeild, skipuleggja veisluhöld, draga fram árshátíðargallann og koma sér í  árshátíðargír.

Með stuðkveðju!



Þetta vefsvæði byggir á Eplica