12. tbl. 101. árg. 2015

Umræða og fréttir

Unglæknirinn Inga Hlíf Melvinsdóttir heldur fyrirlestur á þingi bandarískra hjartalækna


Mynd: Anna Björnsdóttir.

Árlegt þing samtaka bandarískra hjartalækna (American Heart Association) var haldið í nóvember í Orlando í Flórída en það sækja hátt í 20.000 manns og er eitt stærsta læknaþing í heimi.

Á þinginu flutti Inga Hlíf Melvinsdóttir kandídat á Landspítala fyrirlestur um faraldsfræði ósæðarflysjunar í brjóstholi á Íslandi. Rannsóknin er einstök þar sem hún tekur til heillar þjóðar og nær bæði til sjúklinga sem fóru í aðgerð og þeirra sem ekki náðu lifandi inn á sjúkrahús. Um er að ræða rannsókn sem Inga hefur unnið að meðfram læknanámi síðustu tvö árin og hefur aðalleiðbeinandi verið Arnar Geirsson hjartaskurðlæknir og aðstoðarleiðbeinandi Tómas Guðbjartsson prófessor. Óvenjulegt er að læknanemar og kandídatar fái tækifæri til að kynna rannsóknir sínar í fyrirlestri á American Heart.

Með Ingu á myndinni er Martin Ingi Sigurðsson sem er að ljúka sérnámi í svæfinga- og gjörgæslulækningum við Brigham and Women's sjúkrahúsið í Boston. Hann kynnti einnig rannsóknir sínar á þinginu við góðan orðstír.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica