11. tbl. 101. árg. 2015

Umræða og fréttir

Aðalfundur Læknafélags Íslands 2015

Snarpur fundur en tíðindalítill

Læknafélag Íslands hélt sinn árlega aðalfund í Stykkishólmi að þessu sinni dagana 1.-2. október. Fundurinn gekk hratt og vel fyrir sig, fundarmenn voru einbeittir og saumuðu að fulltrúa ráðherra fyrri fundardaginn og smíðuðu ályktanir um ýmis þjóðþrifamál seinni daginn. Til skemmtunar og fróðleiks var boðið til fyrirlestrar um bakverkjameðferð sem farið hefur fram við góðan orðstír um tveggja áratuga skeið á Sjúkrahúsi Stykkishólms undir styrkri stjórn Jóseps Blöndal skurðlæknis. Jósep fræddi fundarmenn ítarlega um inntak meðferðarinnar og að því loknu var haldið til höfðingjans Hildibrands Bjarnasonar bónda í Bjarnarhöfn sem tók fagnandi á móti hópnum. Segir nánar af því á bls. 503 hér í blaðinu.


Þorbjörn Jónsson formaður Læknafélagsins ávarpar aðalfundinn. Stjórn félagsins situr óbreytt þetta árið.

Þorbjörn Jónsson setti fundinn og flutti skýrslu um undangengið starfsár. Þar bar að sjálfsögðu hæst verkfallsaðgerðir Læknafélags Íslands og Skurðlæknafélags Íslands haustið 2014 sem lauk með undirritun kjarasamnings 8. janúar. Aðrar skýrslur voru fluttar og samþykktar án málalenginga og þá steig í pontu Sveinn Magnússon skrifstofustjóri í velferðarráðuneytinu og flutti erindi ráðherra sem ekki sá sér fært að mæta.

Fundarmönnum lá ýmislegt á hjarta sem líklega átti betur erindi við ráðherrann en embættismanninn þó hann gerði sitt besta til að veita svör. Meðal þess sem varpað var til hans voru spurningar um það hvort einhver skilyrði hefðu fylgt gjöf Íslenskrar erfðagreiningar á jáeindaskanna til Landspítalans. Sveinn sagði sér ekki kunnugt um nein skilyrði. Spurt var hvers vegna verulegur munur væri á útreikningi ráðuneytis á kostnaði við nýgerðan kjarasamning og útreikningi Læknafélagsins. Hvers vegna væri ekki hægt að sjá þessa útreikninga svo gera mætti einfaldan samanburð á forsendum. Sveinn sagði þetta mál fjármálaráðuneytis og hann svaraði ekki fyrir gjörðir þess.

Þá var spurt um ástæður þess að lyf væru í mörgum tilfellum mun dýrari hér á Íslandi en á Norðurlöndunum. Einnig að gömul og góð lyf sem reynst hefðu vel væru ekki fáanleg lengur. Sveinn sagði íslenskan lyfjamarkað svo smáan að lyfjafyrirtækin hefðu engan hag af því að hafa hagstæðara lyfjaverð hér á landi, einnig væri erfitt að fá lyfjafyrirtækin til að eiga lyf á lager. Hann sagði að ályktanir fundarins um þetta efni yrðu skoðaðar vandlega í ráðuneytinu.

Þórarinn Ingólfsson formaður Félags íslenskra heimilislækna spurði hvað hefði orðið um viljayfirlýsingu Jóns Kristjánssonar frá árinu 2001 um að heimilislæknar ættu að geta rekið eigin stofur eins og aðrir sérfræðingar. Þórarinn gat sér þess til að embættismenn ráðuneytisins væru þessu mótfallnir og hefðu tafið afgreiðslu málsins. Sveinn sagði enga andstöðu embættismanna gegn þessu máli og vonandi sæju menn breytingar er líða tæki á veturinn.

Spurt var í framhaldi af þessu hvort hægt væri að fá upplýst hvaða heilsugæslustöðvar yrðu boðnar út í vetur til einkarekstrar eins og boðað hefði verið. Sveinn sagði ekki endanlega búið að ákveða hvaða stöðvar þetta yrðu en þær yrðu að líkindum þrjár. Ekki væri búið að fullvinna greiðslumódel og því ekki hægt að bjóða út reksturinn ennþá.

Fundarmenn þökkuðu Sveini fyrir erindið og svörin en voru sammála um að meiri fengur hefði verið að komu ráðherrans enda ekki hægt að ætlast til að embættismaður ráðuneytisins svaraði fyrir pólitíska stefnumótun í heilbrigðismálum.

Ályktanir fundarins eru á heimasíðu félagsins, www.lis.is, alls átta talsins, um heilbrigðismál, bólusetningar barna, gegn auknu aðgengi að áfengi, um heilsugæslu, lyfjamál, notkun dekkjakurls á íþróttavöllum, sérnám lækna á Íslandi og læknisfræðilega ábyrgð. 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica