07/08. tbl. 101. árg. 2015

Umræða og fréttir

„Tileinkið ykkur vandvirkni, samviskusemi og heiðarleika“ sagði Þorbjörn Jónsson formaður LÍ við nýútskrifaða læknakandídata

Læknafélag Íslands bauð útskriftarárgangi 2015 úr læknanámi til hófs í Hlíðasmáranum í tilefni áfangans og undirritunar heitorðsins fornfræga, Hippókratesareiðsins.


Boð Læknafélags Íslands fyrir nýútskrifaða lækna var hátíðlegt að vanda.

Þorbjörn Jónsson formaður Læknafélags Íslands bauð gesti velkomna og sagði læknastarfið hafa notið virðingar í samfélaginu um langan aldur og svo væri enn. „Við eigum að haga okkur í samræmi við það og gæta vandvirkni, samviskusemi og heiðarleika í öllum okkar störfum. Ef við temjum okkar þetta munum við ávinna okkur traust og trúnað bæði sjúklinga okkar og alls almennings.“

Þorbjörn rifjaði stuttlega upp kjarabaráttu síðasta árs og kvaðst vonast til að bjartari tímar væru framundan í heilbrigðiskerfinu. „Læknar fengu sanngjarna launahækkun útúr síðustu samningum en betur má ef duga skal og launamál kandídata eru ekki leidd til lykta ennþá en þar get ég lofað ykkur að Læknafélag Íslands mun fylgja því eftir þar til því er lokið.“

Þorbjörn bað síðan viðstadda að lyfta glösum og skála fyrir hinum nýútskrifuðu læknum og bauð þau hjartanlega velkomin í Læknafélag Íslands.


Þorbjörn Jónsson formaður LÍ og Magnús Karl Magnússon forseti læknadeildar gáfu kandídötum
vegarnesti út í læknislífið.

Magnús Karl Magnússon forseti læknadeildar Háskóla Íslands ávarpaði gesti og hampaði bókinni góðu þar sem allir íslenskir læknar hafa skrifað undir heitorð lækna allt frá árinu 1932. Hann las síðan upp læknaeiðinn og sagði að þeim myndi farnast vel sem hefðu hann í heiðri. „Þetta eru einföld og skýr grundvallaratriði sem gott er að hafa í huga í erli dagsins.“

Magnús Karl sagði hverjum lækni mikilvægt að hafa stöðugt í huga að miðla þekkingu sinni ekki síður en beita henni við dagleg störf. „Nú eruð þið komin í hóp þeirra sem þurfa að miðla af þekkingu sinni til þeirra sem yngri eru. Hugsið aftur til þess er þið voruð læknanemar á 4. og 5. ári og þáverandi kandídatar voru fyrirmyndir ykkar. Nú eruð þið orðin fyrirmyndir og verðið áfram síðar sem deildarlæknar og svo sérfræðingar. Það skiptir miklu máli í öllu okkar starfi að beita kunnáttu, auka stöðugt við þekkingu sína og miðla henni áfram.”

Þá tók Inga Þórsdóttir forseti heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands til máls og nefndi meðal annars mikilvægi góðs samstarfs milli heilbrigðisvísindasviðs og þeirra stofnana sem sinna menntun og þjálfun nema í heilbrigðisgreinum. „Verði það svo að þið hverfið til annarra landa til sérfræðimenntunar hlökkum við til að sjá ykkur heima á ný og þá vonandi með nýuppgerðan Landspítala og nýtt hús heilbrigðisvísindasviðs.“


Mætt voru meðal annarra: Sigurbjörn Sveinsson fyrrum formaður LÍ, Þorbjörn, Inga Þórsdóttir forseti
heilbrigðisvísindasviðs, Reynir Arngrímsson formaður Læknaráðs Landspítala, Sveinn Magnússon í
heilbrigðisráðuneytinu, Sigurður Guðmundsson fyrrum landlæknir og Páll Matthíasson Landspítalaforstjóri.

Einnig tóku til máls Sigurður Guðmundsson fyrrverandi forseti heilbrigðisvísindasviðs HÍ, Íris Ösp Vésteinsdóttir formaður FAL og Páll Matthíasson forstjóri Landspítalans.

Að svo mæltu komu kandídatar hver af öðrum og undirrituðu læknaeiðinn í bókina góðu og fengu afhent félagsskírteini í Læknafélagi Íslands og með það uppá vasann skal haldið til starfa í hinu íslenska heilbrigðiskerfi.


Útskrifaðir kandídatar stilltu sér upp prúðir, stilltir og glaðbeittir þegar þau höfðu undirritað lækna-
eiðinn í votta viðurvist. Mikill áfangi að baki eftir læknanámið en líka heilmikil brekka framundan.


Læknakandídatar með ágætiseinkunn ásamt deildarforseta. Frá vinstri: Kristján Godsk Rögnvaldsson,
Anna Stefánsdóttir, Magnús Karl Magnússon forseti læknadeildar og Heiður Mist Dagsdóttir.
Ljósmynd: Kristinn Ingvarsson.


Listinn geymir nöfn útskrifaðra íslenskra lækna árið 2015. Þau eru 50 alls, 43 útskrifuðust hér heima, fjórir frá Ungverjalandi og þrír frá Danmörku.

Albert Sigurðsson
Anna Andrea Kjeld
Anna Stefánsdóttir
Atli Steinn Valgarðsson
Birta Dögg Ingud. Andrésdóttir
Bryndís Dagmar Jónsdóttir
Daði Helgason
Einar Hjörleifsson
Einar Örn Jóhannesson
Fjóla Dögg Sigurðardóttir
Gísli Gunnar Jónsson
Guðlaug Erla Jónsdóttir
Guðrún Arna Ásgeirsdóttir
Guðrún Mist Gunnarsdóttir
Gunnar Andrésson
Gunnar S. Júlíusson
Gunnhildur Vala Hannesdóttir
Hafdís Sif Svavarsdóttir
Harpa Pálsdóttir
Heiður Mist Dagsdóttir
Helga Lillian Guðmundsdóttir
Helga Valgerður Ísaksdóttir
Helga Þráinsdóttir
Helgi Kristinn Björnsson
Henrik Geir Garcia
Hermann Páll Jónsson
Hildur Margrét Ægisdóttir
Hólmfríður Helgadóttir
Hörður Már Kolbeinsson
Indíana Elín Ingólfsdóttir
Inga Hlíf Melvinsdóttir
Inger Björk Ragnarsdóttir
Jóhann Már Ævarsson
Karen Eva Halldórsdóttir
Kristín María Guðjónsdóttir
Kristín Pétursdóttir
Kristján Godsk Rögnvaldsson
Kristófer Arnar Magnússon
Kristrún Aradóttir
Margrét Edda Örnólfsdóttir
Oddur Þórir Þórarinsson
Sigríður Sigurgísladóttir
Sigrún Katrín Kristjánsdóttir
Sindri Stefánsson
Svanborg Gísladóttir
Una Jóhannesdóttir
Úlfur Thoroddsen
Valdís Guðrún Þórhallsdóttir
Vilhjálmur Steingrímsson
Þórir Einarsson Long



Þetta vefsvæði byggir á Eplica