02. tbl. 101. árg. 2015

Umræða og fréttir

Læknadagar í ljósi vonar um betri tíð

Það er óhætt að segja að gleði hafi ríkt við setningu Læknadaga í ár. Nýgerðir kjarasamningar vekja von í brjóstum lækna um viðsnúning í heilbrigðiskerfinu, sögðu þeir báðir í ávörpum sínum, Gunnar Bjarni Ragnarsson formaður Fræðslustofnunar LÍ og Þorbjörn Jónsson formaður LÍ. 


Ásgeir Haraldsson barnalæknir og Gunnar Bjarni Ragnarsson krabbameinslæknir og formaður
Fræðslustofnunar LÍ.

Við setningu Læknadaganna steig Sverrir Jakobsson sagnfræðingur á stokk og rakti í stórum dráttum áhrif hinna ýmsu lækna á mannkynssöguna, en yfirskrift tölu hans var „Læknar í leiðtogahlutverki“. 


Sverrir Jakobsson sagnfræðingur sagði frá læknum í leiðtogahlutverki. Á tjaldinu má sjá
jafnaðarmennina Dag B. Eggertsson borgarstjóra í Reykjavík 
og Gro Harlem Brundtland fyrr-
verandi forsætisráðherra Noregs og framkvæmdastjóra Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar, WHO. 

Sverrir gat þess reyndar í upphafi að hann hefði ekki gert sér grein fyrir að honum væri ætlað að vera aðalatriðið við setninguna en kvaðst þó myndu gera sitt besta til að skemmta viðstöddum. Hann rifjaði síðan upp að nafnþekktir faraóar Egypta voru sagðir læknismenntaðir að þeirra tíma sið samkvæmt fornum heimildum en löngu síðar hefðu hugmyndir manna um lækningamátt konungborinna breyst í þá veru að konungdómi fylgdi sjálfkrafa lækningamáttur. Hefði verið nokkur samkeppni milli konunga í Evrópu á miðöldum um hver gæti læknað flesta og skipti þá mestu máli að velja sjúka sem líklegir voru til að ná heilsu hvort eð er. Sverrir rakti feril fleiri lækna sem sátu við stjórnvölinn um lengri eða skemmri tíma: Che Guevara á Kúbu, Banda í Malaví, Papa Doc (Francois Duvalier) á Haiti.

Sverrir sló botninn í erindi sitt með því að bregða upp mynd af borgarstjóranum í Reykjavík og norska forsætisráðherranum fyrrverandi, Degi B. Eggertssyni og Gro Harlem Brundtland, en þau eru bæði læknismenntuð og mun það hafa reynst þeim vel við stjórnmálaþátttökuna. Niðurstaðan er kannski sú að læknum lætur betur að stjórna en láta að stjórn. 

Dagskrá Læknadaganna var þéttskipuð og að sögn Margrétar Aðalsteinsdóttur framkvæmdastjóra Læknadaga sem umsjón hefur með skráningum gekk netskráning vel og greinilegt að margir nýta sér veglegan afslátt sem fæst með skráningu á alla dagana fremur en borga fyrir einstaka daga. Læknadagarnir íslensku njóta alþjóðlegrar viðurkenningar sem símenntunarþing og hvetur það lækna eflaust enn frekar til þátttöku.


Jóhann Heiðar Jóhannsson meinafræðingur, Guðrún Hauksdóttir meinafræðingur, Þorbjörn
Jónsson formaður LÍ 
og Birna Jónsdóttir röntgenlæknir og fyrrverandi formaður LÍ.



Sigrún Arnardóttir kvensjúkdómalæknir, Elísabet Arna Helgadóttir kvensjúkdómalæknir,
Tómas Guðbjartsson hjartaskurðlæknir og Dagur B
Eggertsson borgarstjóri.



Birgir Jakobsson landlæknir og Magnús Ólason endurhæfingarlæknir.



Fulltrúar Læknablaðsins, Sigdís Þóra Sigþórsdóttir auglýsingastjóri og Védís Skarphéðinsdóttir
ritstjórnarfulltrúi.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica