03. tbl. 101. árg. 2015

Umræða og fréttir

Golfferðir íslenskra lækna til Skotlands

Saga golfsins á Íslandi er ekki ýkja löng, fyrstu golfklúbbarnir voru Golfklúbbur Reykjavíkur 1934, Golfklúbbur Akureyrar 1935 og Golfklúbbur Vestmannaeyja 1938. Nýlega hafa verið gefnar út bækur um sögu golfsins hér og kemur þar fram að það voru tveir læknar, þeir Valtýr Albertsson og Gunnlaugur Einarsson, sem voru forvígismenn að stofnun GR og frumkvöðlar í uppbyggingu golfsins hérlendis.1 Þeir kynntust golfinu á námsárum í Danmörku og fluttu golfáhugann með sér til Íslands. Saga golfsins á Íslandi tengist því nokkuð læknum bæði fyrr og nú.

Tilgangur þessarar greinar er ekki að rekja þá sögu heldur að fjalla um tiltekinn þátt en það eru golfferðir íslenskra lækna til Skotlands. Golfið er upprunnið í Skotlandi og heimildir segja að fyrst hafi verið leikið golf þar í námunda við Edinborg á átjándu öld. Í Skotlandi er því mikil golfhefð og þar eru margir af frægustu golfvöllum heims.

Fyrstu skipulögðu golfferðir Íslendinga til útlanda voru og til Skotlands í kringum 1970 en þá flaug Flugfélag Íslands til Glasgow og Kaupmannahafnar. Læknar voru ekki upphafsmenn þessara ferða heldur aðrir áhugamenn um golf, meðal annarra bræðurnir Vilhjálmur og Tómas Árnasynir lögfræðingar, og aðilar í ferðaþjónustunni, þeir Birgir Þorgilsson sem þá starfaði hjá FÍ og Sigurður Matthíasson hjá Loftleiðum. Læknar tóku snemma þátt í þessum ferðum en meðal þeirra fyrstu sem fóru til Skotlands til að spila golf voru Sigurður Þ. Guðmundsson og Jón Þorgeir Hallgrímsson. Á þessum fyrstu árum var gist á Hotel Marine sem er frægt kennileiti í strandbænum North Berwick skammt frá Edinborg.


Ræðuhöld í lokahófi. Sigurður Þ. Guðmundsson lætur ljós sitt skína. Jón Þ. Hallgrímsson situr við hlið hans.

Frá árinu 1987 hefur hópur lækna farið árvisst í golf til Skotlands í fyrstu viku maímánaðar. Meðal eftirminnilegustu manna í fyrstu ferðunum var Knútur Björnsson lýtalæknir sem var um árabil einn fremsti kylfingur af eldri kynslóð á landinu. Knútur var ættaður úr Vestmannaeyjum og náfrændi Sveins Ársælssonar fyrrverandi Íslandsmeistara í golfi. Knútur var mjög flinkur golfari og var Íslandsmeistari eldri kylfinga um tíma. Hann var sérstaklega góður í stutta spilinu, þ.e. vippum og púttum, og fáir höfðu roð við honum á því sviði.  

Margt skemmtilegt er haft eftir Knúti á golfvellinum en hans frægasta setning er þó vafalaust: „Golfið byrjar við annað högg.“ Þessi regla vísar til þess að ekki sé allt fengið með löngu upphafshöggi heldur skipti oft meira máli að annað högg sé nákvæmt og komi boltanum inn á flöt. Önnur gullvæg regla Knúts var: „Taktu alltaf járninu meira en þú heldur að þú þurfir.“ Þessi regla er umdeild en þýðir að golfarinn geti ekki reiknað með að tiltekið járn skili alltaf hámarkshögglengd. Að lokum mun Knútur hafa haft þá reglu þegar taka þyrfti víti að: „Maður bakkar aldrei lengra en maður þarf.“ Knútur var eftirminnilegur læknir og golfsnillingur en hann lést árið 2014, 84 ára að aldri.


Fallegur dagur í North Berwick. Knútur Björnsson og Kristinn Jóhannsson á 18. teig á East Links.
17. flöt í baksýn og í fjarska sést Bass Rock, kennileiti bæjarins. Kona Kristins, Sigrún Einarsdóttir, tók
myndina árið 1987.

Kristinn Jóhannsson hjartaskurðlæknir hefur lengi verið meðal fremstu golfara í læknastétt og var um tíma í landsliði Íslands eldri en 55 ára. Kristinn hefur undanfarin ár verið fararstjóri í golfferðum lækna til Skotlands og séð um að útvega hópnum rástíma á frægum völlum. Íslenski læknahópurinn er þekktur á East Lothian svæðinu undir nafninu The Johannsson group. Í golfferðum lækna eru alltaf fjórir í holli og keppa tveir á móti tveimur í punktakeppni án forgjafar, gjarnan upp á bjór eða eitthvað þaðan af betra. Kristinn er mikill keppnismaður og tapar  sjaldan slíkri keppni. Þó man ég að eitt sinn gekk hálfilla hjá Kidda, mikið krafs í glompum, og gerðist hann þá þögull en sagði svo loksins á bílastæðinu eftir hringinn: „Ég er farinn héðan og kem aldrei hingað aftur.“

Svavar Haraldsson bæklunarskurðlæknir er einn af tryggustu Skotlandsförum í hópi lækna og fór fyrst í golf þar 1974. Hann kynntist golfinu á Akureyri þar sem hann byrjaði sem kylfusveinn og vallarstarfsmaður hjá GA á unglingsárum og spilaði þá á Íslandsmótum í landsliðsflokki. Svavar er mjög högglangur og „klappar létt 250 metra“ í upphafshöggunum. Svavar hefur mikið dálæti á Skotlandi og skoskum golfhefðum og þekkir betur til þar en flestir.


Þrír snillingar við klúbbhúsið á Muirfield, Svavar Haraldsson, Kristinn Jóhannsson og Guðmundur
Arason. Myndina tók Alan Brown, kvensjúkdómalæknir og félagi í Honorary Company of Edinburgh
Golfers árið 2000.

Það svæði sem íslenskir læknar hafa farið á er eins og áður segir East Lothian svæðið sem er suðaustur af Edinborg og sunnan við Firth of Forth. Oftast hefur verið haldið til í North Berwick. Helstu vellir þar um slóðir sem við leikum á eru North Berwick West Links, Glen (áður East Links), Royal Dunbar, Gullane, Longniddrie, Kilspindie, Haddington og að lokum Muirfield þar sem British Open er haldið með reglulegu millibili. Muirfield er talinn einn af erfiðustu völlum í heimi og það þykir toppurinn í atvinnumannaheimi golfsins að vinna British Open á Muirfield. Hinum megin við flóann eru svo St. Andrews og Carnustie frægastir valla en ekki hefur verið spilað á þeim í þessum ferðum. Á kvöldin er farið út að borða á fínum veitingahúsum í North Berwick og nágrannabæjum þar sem veitingamenn taka fagnandi á móti okkur fastagestum sínum.

Í fyrsta sinn sem undirritaður fór til Skotlands vorið 1996 voru margir góðir kylfingar með í ferðinni. Má þar nefna auk Knúts, Kristins og Svavars þá Guðmund Arason, Hörð Bergsteinsson, Þráin Rósmundsson, Brynjólf Mogensen, Ársæl Jónsson, Ásgeir Jónsson, Ólaf Örn Arnarson, Gunnar Sigurðsson, Reyni Þorsteinsson, Pétur Skarphéðinsson og síðast en ekki síst Sigurð Þ. Guðmundsson og Jón Þorgeir Hallgrímsson sem voru alltaf kallaðir Siggi og Jorri. Þeir voru perluvinir og herbergisfélagar og mjög skemmtilegir á golfvellinum hvor á sína vísu. Jón Þorgeir hafði gaman af því að sletta þýsku og eru sum orðatiltæki hans ennþá rifjuð upp við hentug tækifæri. Ef menn áttu óvenju gott og langt upphafshögg greip Jón stundum til þýska hernaðarfrasans: „Wir schlagen gegen England.“ Ef menn hins vegar lentu óvænt í glompu brosti Jón góðlátlega og sagði: „Aha, Bunker hinein!“

Í þessari ferð vorum við Ásgeir Jónsson að spila saman í liði á móti Sigga og Jorra á Kilspindie en ég var tiltölulega nýbyrjaður í golfi. Á 6. braut sem er 240 metra par 4 hola sló ég í upphafshöggi óvænt inn á flöt með 4 járni, að vísu í nokkrum meðvindi. Jorri leit þá til himins og andvarpaði: „Guð hjálpi okkur ef þessi maður lærir einhvern tímann að spila golf.“ Þeir voru yndislegir félagar og forréttindi að hafa kynnst þeim í golfinu. Sigurður lést árið 2007 langt fyrir aldur fram en Jón Þorgeir er enn við góða heilsu og lagði á ráðin við skrif þessarar greinar.


Galvaskir golfarar fyrir framan Maitlandfield Hotel í Haddington 1996. Frá vinstri: Ólafur Einarsson,
Svavar Haraldsson, Jón Þorgeir Hallgrímsson, Ingimar Hjálmarsson, Kristinn Jóhannsson, Sigurður Þ.
Guðmundsson, Ólafur Alexander Ólafsson (Alli málari), Sigríður Birna Ólafsdóttir, Brynjólfur Mogensen,
Kristmundur Ásmundsson, Þórhildur Sigtrygggsdóttir, Hrafnkell Óskarsson, Hörður Bergsteinsson,
Guðmundur Arason, Halldóra Axelsdóttir, Þráinn Rósmundsson og Ólafur Z. Ólafsson.

Lengi vel var golfið aðeins karlaíþrótt og konur komu þar hvergi nærri. Þetta hefur verið hvað langlífast í Skotlandi og er mönnum í fersku minni skilti þar í landi þar sem á stóð: „No women or dogs allowed“. Þetta hefur nú allt breyst og eru konur nú velkomnar á alla velli í Skotlandi nema Muirfield sem liggur undir miklu ámæli út af þessu. Golfið er ekki síður íþrótt kvenna en karla og orðið mikið hjónasport. Fremsti golfari í læknastétt á Íslandi er reyndar án efa Ásgerður Sverrisdóttir fyrrverandi Íslandsmeistari kvenna.

Í hópi Skotlandsfara er talað í velviljuðum tón um „spúsugolfið“ þó það megi ekki taka allt yfir hjá mönnum. Í þessari minni fyrstu ferð 1996 var lokahóf og haldnar nokkrar tækifærisræður. Nokkrar eiginkonur höfðu komið með og sumar þeirra meira að segja spilað. Í lokahófinu tók einn félaganna til máls og lýsti ánægju sinni með þessa þróun og velti upp þeim möguleika hvort ekki ætti að hafa konurnar með í þessar ferðir og fara til Spánar. Þá þyrmdi yfir Svavar Haraldsson og hann sagði alvöruþrunginn yfir borðið: „Ef við förum til Spánar og konurnar koma með, þá er þetta búið“. Hin seinni ár hafa þetta eingöngu verið karlaferðir og gjarnan spilaðar 36 holur á dag.

Aldurinn er reyndar heldur að færast yfir hópinn en engan bilbug er á mönnum að finna. Tilhlökkunin byrjar fljótlega eftir að ferð lýkur og stendur óslitið fram að næstu ferð. Á seinni árum hafa bæst í hópinn ungir og efnilegir golfarar en það verður m.a. verkefni þeirra að halda þessari skemmtilegu hefð gangandi. Fyrir þá sem vilja kynna sér svæðið nánar fylgir hér áhugaverð krækja.

golfeastlothian.com/home.asp

  1. Sæmundsdóttir G, Lúðvíksson SJ. Golf á Íslandi. Forlagið, Reykjavík 2012.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica