03. tbl. 109. árg. 2023

Umræða og fréttir

Minningarorð Gunnars Sigurðssonar um Einar Baldvinsson

Ég vil gjarnan minnast nokkrum orðum ágæts kollega og samstarfsmanns, Einars Baldvinssonar, sem lést 13. janúar 2023, þá níræður að aldri.

Ég man fyrst eftir Einari sem virðulegum læknanema gangandi um götur Hafnarfjarðar. Einar bar með sér hreinan Gaflarasvip en jafnframt var ekki laust við ábúðarfullan Vökusvip enda hafði það frést að hann hefði verið kjörinn í Stúdentaráð Háskóla Íslands. Ég bar því snemma virðingu fyrir þessum verðandi lækni og síðar formanni Læknafélags Reykjavíkur 1972-74 meðal annars. Seinna lærðist mér að hann bæri nafn forfeðra sinna úr merkri Hraunaætt úr Fljótum (eins og konan mín Sigríður) og ekki laust við að nefsvipurinn kæmi þaðan.

Ég kynntist Einari þó ekki fyrr en sem sérfræðingi í hjarta- og lyflækningum á Borgarspítala rétt fyrir 1980 þegar ég hóf störf þar. Einar byrjaði að vinna á Borgarspítalanum eftir að hann kom heim úr framhaldsnámi í Bandaríkjunum þegar nýr Borgarspítali opnaði í Fossvogi í árslok 1967. Hann tók því þátt í uppbyggingu lyflækningadeildarinnar með Óskari Þórðarsyni yfirlækni og hans fólki. Við Einar áttum síðan ánægjulegt samstarf á lyflækningadeild Borgarspítala og síðar Sjúkrahúss Reykjavíkur næstu tvo áratugina uns Einar lét af störfum vegna aldurs. Allan þennan tíma stóð Einar sína plikt á E-6 af einstakri samviskusemi og vandvirkni og var alla tíð vel liðinn af sjúklingum og samstarfsfólki. Einnig var hann dósent við læknadeild Háskóla Íslands 1974-85.

Utan vinnu var Einar jafnan kátur og brosmildur og tók virkan þátt í samkvæmislífi lyflækningadeildarinnar. Ég minnist með ánægju nokkurra veiðiferða í Vatnsdalinn með þeim Einari og Rúnu konu hans (Þóra Guðrún Óskarsdóttir) í góðum hópi lækna lyflækningadeildar ásamt gestum frá Landspítala. En þessar skemmtilegu veiðiferðir í Vatnsdalinn lögðust síðan af vegna þess að sumir félaganna voru svo ákafir í veiðunum og fengsælir að þeir veiddu laxa á svæði sem átti einungis að vera silungasvæði, og ákafinn jafnvel svo mikill að veitt var af miðri umferðarbrúnni yfir Vatnsdalsá á þjóðvegi eitt. Þetta barst til leigutaka árinnar sem hækkuðu veiðileyfin verulega svo að jafnvel læknum ofbauð. Nokkrir röskir unglæknar deildarinnar stóðu fyrir þessum ferðum, reyndar sami hópur og hafði tekið að sér að manna Neyðarbílinn sem þá var að hefja þjónustu frá Borgarspítalanum. Þessi læknisþjónusta sem þessir unglæknar hófu var síðan rekin á vegum Borgarspítala um langt árabil á eftir.

Svo vildi til að Einar og Rúna, kona hans, bjuggu ásamt sonum sínum þremur (Óskari, Baldvin og Reyni) í öðrum enda raðhúsalengju í Fossvogi en ég og mín fjölskylda í hinum endanum. Ég hafði ánægju af því að fylgjast með þessari myndarlegu fjölskyldu vaxa úr grasi og þroskast.

Einar varð fyrir miklu áfalli þegar Rúna, kona hans, veiktist alvarlega fyrir rúmum áratug og vistaðist í kjölfarið á hjúkrunarheimilinu Sóltúni. Fljótt mátti sjá leigubíl koma reglubundið um þrjúleytið á hverjum degi að húsi Einars og aka honum til Rúnu sinnar í kaffi. Þar dvaldist hann svo fram yfir kvöldmat og aðstoðaði starfsfólkið af bestu getu. Þetta lýsti Einari vel sem umhyggjusömum eiginmanni og fjölskylduföður.

Síðan flutti Einar úr Fossvoginum til að búa nær Sóltúninu þar sem hann endaði sem vistmaður uns hann dó í svefni á sama stað og eiginkonan Rúna hafði látist árinu áður.

 

Blessuð sé minning þeirra.

Gunnar Sigurðsson

 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica