04. tbl. 108. árg. 2022

Umræða og fréttir

Læknar hér á landi safna fyrir Úkraínu, LÍ leggur fram 8 milljónir

Læknafélag Íslands lagði tæpar 8 milljónir króna til styrktar Úkraínu og nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu þar til Alþjóðafélags lækna, WMA, þann 17. mars. Fjöldi læknafélaga lagði málefninu lið

Steinunn Þórðardóttir, formaður LÍ, segir ánægjulegt að sjá skjót viðbrögð og samstöðu íslenskra lækna vegna söfnunar félagsins. Áhrif stríðsins á úkraínska innviði séu skelfileg.

„Við höfum áhyggjur af árásum á heilbrigðisstofnanir og heilbrigðisstarfsfólk og að hlutleysi þeirra hafi ekki verið virt,“ segir hún, og að söfnunin muni halda áfram. „Við ákváðum að senda þessa myndarlegu fjárhæð strax af stað en höldum áfram söfnuninni fyrir þá sem enn vilja leggja málefninu lið.“

Félag íslenskra heimilislækna ákvað til að mynda að setja 10% af félagsgjöldum þessa árs í sjóð LÍ til styrktar læknisþjónustu í Úkraínu. „Átökin koma við okkur og við sjáum svart á hvítu hvernig heilbrigðiskerfið getur farið á hvolf við aðstæður sem þessar, einmitt þegar þörfin er mest,“ segir Margrét Ólafía Tómasdóttir, formaður FÍH.

„Við ákváðum því að stuðla að því að hægt væri efla þjónustuna á þessum stríðstímum. Þetta er mikilvægt málefni,“ segir hún og hvetur til frekari aðgerða. „Fjárstuðningur er eitt en svo þurfum við líka að taka á móti flóttamönnum og standa við bakið á þessu stríðshrjáða fólki.“

Steinunn var í viðtali í Samfélaginu á Rás 1 þann 11. mars þar sem hún sagði brugðist við ákalli læknafélags Úkraínu til Alþjóðasamtaka lækna um hjálpargögn. „Okkur var skylt að bregðast við þessu ákalli og ljúft. Kollegum hérna heima finnst gott að geta stutt félaga sína í þessum virkilega erfiðu aðstæðum þarna úti,“ sagði hún þar.

Einstaklingar og fyrirtæki hafi lagt söfnuninni lið. Stjórn LÍ þakkar félagsmönnum frábærar undirtektir við þessari söfnun á heimasíðu sinni.

 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica