01. tbl. 108. árg. 2022

Umræða og fréttir

Aðkallandi að semja við sérfræðilækna segir Willum Þór

Verður stífla bráðamóttökunnar losuð? Samið við sérfræðilækna? Verkefnum útvistað í meira mæli? Svarið er já, segir Willum Þór Þórsson, nýr heilbrigðisráðherra, á fyrstu dögum í starfi. Þá nýbúinn að ráða Björn Zoëga, forstjóra Karólínska og áður Landspítala, sem ráðgjafa

„Það er aðkallandi að semja við sérfræðilækna,“ segir Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra. „Það er aðkallandi að semja við alla sem sinna heilbrigðisþjónustu.“ Kerfið spili best saman stefni allir að sama marki.

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra ætlar að fylgja stjórnarsáttmálanum og ná árangri í að breyta heilbrigðiskerfinu með þarfir þeirra sem þurfa þjónustu að leiðarljósi. Mynd/gag

„Ég þarf nú að finna út úr því hvar raunverulega steytir til að búa til samningsgrundvöll að nýju,“ segir Willum. Beggja vegna borðsins þurfi að anda með nefinu, núllstilla sig. „Við hljótum að horfa á það þannig; að samningar séu ákjósanlegt fyrirkomulag.“

Willum hefur látið til sín taka á fyrstu dögum í embætti. Meðal annars gert Landspítala kleift að útvista 175 aðgerðum til að stytta biðlista. „Já,“ svarar Willum, spurður hvort búast megi við því að fleiri verkefnum verði útvistað af spítalanum. „Það þarf samt að vera í samhengi við kjarnastarfsemi spítalans,“ segir hann og að þeir sem sinni þjónustunni þurfi að meta hvaða aðgerðum sé skynsamlegast að útvista.

„Spítalinn er á réttri leið með þetta. Ég fagna því að við nýtum allt kerfið,“ segir ráðherrann. Horfa þurfi á þarfir fólksins umfram rekstrarformið. Þá þurfi að koma upp miðlægum biðlista svo fólk sé ekki tvískráð. „Við þurfum að tryggja þjónustuna innan viðunandi tíma.“ Ný stjórn spítalans að norrænni fyrirmynd komi að þeim málum. „Karólínska er með svona stjórn. Hún hefur bæði reksturinn og skipulagið með höndum.“ En hver eiga að sitja í stjórninni? Enn óákveðið, svarar Willum. „Þetta er eitt af helstu verkefnum Björns í ráðgjöf.“

Willum segir að breyta þurfi lögum áður en stjórnin verði skipuð og það taki tíma. Hann skilji vel tortryggni gagnvart áformunum því forstjóri og ráðherra hafi haft bein samskipti hingað til, sem geti auðveldað flóknar ákvarðanir.

„En okkur hefur ekki tekist að ná utan um starfsemina. Við fáum reglulega neyðaróp um að það vanti fjármagn og fólk, stíflur séu á spítalanum og bráðamóttakan reglulega undir ágjöf,“ segir hann og því vert að skipa stjórn til að ná fram breytingum. „Ef við finnum í þessari vinnu að stjórn er ekki til bóta, hljótum við að skoða það.“

Hann segir að ekki hafi verið ákveðið hvort hreyft verði við ráðningarferli forstjóra þar sem stjórnin hafi ekki verið skipuð. „Enda geri ég mér grein fyrir því að þetta er ekki allt að gerast í réttri röð,“ segir hann.

En hvað með samninga við einkaaðila um opnun hjúkrunarrýma til að losa stífluna á bráðamóttökunni? „Já, ég mun skoða það,“ segir hann. Greina þurfi hópinn sem stífli bráðamóttökuna og sjá hver þjónustuþörfin sé og gera í kjölfarið heiðarlega tilraun til að leysa vandann.

„Ég geri mér grein fyrir því að heilbrigðismál eru stór og viðkvæmur málaflokkur á margan hátt. Til að halda einbeitingu horfi ég á stjórnarsáttmálann. Þar eru áherslurnar,“ segir hann. „Ég mun leggja mig allan fram enda heilbrigðisþjónusta þjóðinni hjartans mál.“

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra ætlar að fylgja stjórnarsáttmálanum og ná árangri í að breyta heilbrigðiskerfinu með þarfir þeirra sem þurfa þjónustu að leiðarljósi. Mynd/gag

Í boltanum með Birni Zoëga

Körfuboltanum, staðfestir Willum heilbrigðisráðherra og fyrrum knattspyrnuþjálfari þegar hann er spurður hvort hann hafi á sínum tíma verið í boltanum með Birni Zoëga, forstjóra Karólínska sjúkrahússins og nýráðnum ráðgjafa sínum í heilbrigðismálum.

„Á árum áður var hann í Val og ég í KR. Svo var hann okkur innan handar sem læknir hjá Val þegar ég þjálfaði. Ég þekki hann mjög vel,“ segir Willum, og að gott sé að hafa Björn til ráðgjafar í erfiðri stöðu spítalans.

„Hann er hreinskiptinn; kemur sér beint að efninu. Ofsalega góður og ég því hamingjusamur með þetta. Hann er forstjóri Karólínska og þekkir allt það sem stjórnarsáttmálinn segir til um að ráðist verði í og styður við það sem ná þarf utan um í starfseminni á spítalanum þannig að fólki líði betur. Þetta snýst allt um það. Hann þekkir bæði spítalann, hvernig aðrir af þessari stærðargráðu og stærri vinna með stjórn.“



Þetta vefsvæði byggir á Eplica