01. tbl. 103. árg. 2017

Umræða og fréttir

„Læknadagar eru faglega og félagslega mikilvægir“ - Nýr skipper í brúnni, Jórunn Atladóttir

Mannaskipti verða í brúnni hjá Fræðslustofnun Læknafélags Íslands í janúar. Jórunn Atladóttir skurðlæknir tekur við keflinu af Gunnar Bjarna Ragnarssyni sem gegnt hefur starfinu undanfarin fimm ár. Jórunn er nýlega komin heim frá sérnámi og kveðst taka við góðu búi af Gunnari Bjarna.

Jórunn er skurðlæknir með sérgrein í aðgerðum á neðri meltingarvegi og hefur starfað á Landspítalanum í tvö ár. „Ég kom heim haustið 2014 eftir 8 ár í Bandaríkjunum. Ég tók almennar skurðlækningar við Yale University Hospital í New Haven og var þar í 7 ár og síðan tók ég eitt ár í ristilskurðlækningum sem undirsérgrein á Robert Wood Johnson háskólasjúkrahúsinu í New Jersey. Síðan kom ég heim þegar sérnáminu var lokið.“

Jórunn kveðst mjög ánægð með að vera komin heim, það sé bæði spennandi og skemmtilegt. Aðspurð um viðbrigði að koma af stórum sjúkrahúsum í Bandaríkjunum á Landspítalann, segir hún þau sannarlega mikil. „Ég kom heim um leið og læknar fóru í verkfall og vissi ekki alveg hvað ég átti að halda um það en svo leystist farsællega úr því og starfsumhverfið hér er miklu meira aðlaðandi og samskiptin og tempóið eru eðlilegri hér heima. Vinnuálagið þar er mun meira en hér og leiðir ekki endilega af sér betri þjónustu. Þar er vissulega frábært heilbrigðiskerfi en því miður hafa ekki nógu margir aðgengi að því.“

Einkasjúkrahúsrekstur er þér greinilega ekki að skapi?

„Nei. Miðað við reynslu mína af slíku í Bandaríkjunum þá finnst mér það ekki aðlaðandi kostur. Kostirnir við heilbrigðiskerfið hér heima eru ótvíræðir. Aðgengið að þjónustunni er mjög gott, fagleg þekking er á við það besta sem þekkist og þó vissulega sé hægt að kvarta yfir ýmsu finnst mér heildarniðurstaðan vera mjög jákvæð.“

Hvað varð svo til þess að þú tókst að þér Læknadagana?

„Það var hálfgerð tilviljun. Það vantaði einhvern af skurðsviði spítalans í stjórn Fræðslustofnunar LÍ og ég vildi koma mér inn í félagsstörfin og bauð mig fram. Þannig kynntist ég Gunnari Bjarna og vann með honum að undirbúningi Læknadaganna 2016 og þegar hann hafði ákveðið að stíga til hliðar spurði hann hvort ég væri ekki til í að taka við af honum. Ég ákvað að slá til og það hafði áhrif á ákvörðun mína að aldrei áður hefur skurðlæknir gegnt þessu starfi. Það breytir kannski ekki svo miklu við skipulag og dagskrá Læknadaganna sjálfra en ég hef verið að vinna markvisst með Gunnari að undirbúningi Læknadaganna 2017 og tek síðan alfarið við keflinu að þeim loknum.“

Jórunn segir Læknadagana vera mjög mikilvægan vettvang fræðslu og félagslegra samskipta fyrir læknastéttina á Íslandi.

„Þetta er algjörlega þverfaglegt og allir eru með, sem er einn af stóru kostunum hér á Íslandi; allir eru tengdir og það er auðveldara þess vegna að stíga út úr sínu sérfaglega hólfi og kynna sér hvað aðrir eru fást við. Þetta er þess vegna mikilvæg félagsleg samkoma ekki síður en fagleg og fræðileg.“

Hún segir ekki ástæðu til að óttast stórkostlegar breytingar á skipulagi eða ásýnd Læknadaganna. „Ég tek við mjög góðu og markmiðið er að halda sama striki, helst með áframhaldandi áherslu á tæknilega þætti til að við náum að halda í við þróunina sem orðin er í þeim efnum. Læknadagarnir okkar standast fyllilega samanburð við það besta sem býðst erlendis. Við eigum svo mikið af hámenntuðu fræði- og fagfólki og það er frábært hvað nánast allir vilja vera með og miðla sinni þekkingu á Læknadögunum, þar er undirstaðan“ segir Jórunn Atladóttir nýr framkvæmdastjóri Fræðslustofnunar LÍ og Læknadaga.

 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica