11. tbl. 102. árg. 2016

Umræða og fréttir

Ný stjórn Læknafélags Íslands


Á myndinni eru frá vinstri: heimilislæknarnir Magdalena Ásgeirsdóttir, Þórarinn Ingólfsson og
Jóhanna Ósk Jensdóttir, Agnar H. Andr­ ésson almennur læknir, Arna Guðmundsdóttir lyflæknir,
Hjalti Már Þórisson röntgenlæknir og Þorbjörn Jónsson ónæmislæknir. Hér vantar varaformanninn
Orra Þór Ormarsson barnalækni og gjaldkerann Björn Gunnarsson svæfingalækni. Mynd Sigdís


Á aðalfundi í september urðu breytingar á stjórn Læknafélags Íslands einsog lög gera ráð fyrir.
Samkvæmt lögum eru í stjórn 9 manns: formaður, varaformaður, gjaldkeri, ritari og 5 meðstjórnendur, og einn þeirra er skipaður af Félagi almennra lækna. Formaður, ritari, varaformaður og gjaldkeri eru kosnir til tveggja ára í senn. Annað árið skal kjósa formann og gjaldkera og var það síðast gert 2015 þegar Þorbjörn Jónsson var endurkjörinn formaður og Björn Gunnarsson, sem verið hafði meðstjórnandi í stjórninni var kjörinn gjaldkeri. Hitt árið skal kjósa ritara og varaformann og var það gert á aðalfundinum núna. Orri Þór Ormarsson var endurkjörinn varaformaður og Magdalena Ásgeirsdóttir endurkjörin ritari. Fjórir meðstjórnendur eru kosnir til eins árs í senn. Í stjórn LÍ starfsárið 2016-2017 eru Þorbjörn Jónsson formaður, Orri Þór Ormarsson varaformaður, Björn Gunnarsson gjaldkeri, Magdalena Ásgeirsdóttir ritari og meðstjórnendurnir Arna Guðmundsdóttir, Hjalti Már Þórisson, Jóhanna Ósk Jensdóttir og Þórarinn Ingólfsson. Af hálfu Félags almennra lækna situr Agnar H. Andrésson í stjórn LÍ. Ný í stjórn þetta starfsár eru því Agnar, Hjalti Már og Jóhanna Ósk.
Á aðalfundinum voru samþykktar breytingar á lögum LÍ sem fela í sér að framvegis verður stjórn LÍ kosin af öllum félagsmönnum í rafrænni kosningu eins og fram kemur í pistli formanns aftar í blaðinu. Á fundinum var jafnframt samþykkt að hækka árgjald félagsins frá og með næstu áramótum, og verður það 110.000 kr.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica