04. tbl. 98. árg. 2012

Umræða og fréttir

Verðlaun fyrir besta vísindaerindið


Á sameiginlegu vísindaþingi Skurðlæknafélags Íslands, Svæfinga- og gjörgæslulæknafélags Íslands og Félags íslenskra fæðinga- og kvensjúkdómalækna voru veitt verðlaun fyrir besta vísindaerindi unglæknis eða læknanema. Fimm læknanemar kynntu verkefni sín sem unnin voru í samstarfi við kennara og samnemendur á Landspítala, Hjartavernd og læknadeild Háskóla Íslands. Hlutskörpust urðu Hulda Rún Jónsdóttir og samstarfsmenn hennar fyrir kynningu á verkefninu Vefjauppruni lungnatrefjunar og tengsl hennar við bandvefsumbreytingu þekjufrumna. Auk Huldu unnu Ragnar Pálsson, Ari Jón Arason, Sigríður Rut Franzdóttir, Helgi J. Ísaksson, Ólafur Baldursson, Tómas Guðbjartsson, Gunnar Guðmundsson, Þórarinn Guðjónsson og Magnús Karl Magnússon að erindinu.

Í dómnefnd sátu Kristján Skúli Ásgeirsson skurðlæknir, Aðalbjörn Þorsteinsson svæfingalæknir og Sigurður Guðmundsson formaður. Verðlaunin afhentu auk þeirra Anna Gunnarsdóttir formaður Skurðlæknafélags Íslands og Kristín Ingólfsdóttir háskólarektor. Á myndinni eru Hanna Viðarsdóttir deildarlæknir, Elín Maríusardóttir kandídat og læknanemarnir Andri Wilberg Orrason, Guðrún María Jónsdóttir og Hulda Rún Jónsdóttir.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica