06. tbl. 97. árg. 2011
Umræða og fréttir
Læknar í Skotlandi á liðinni öld
FÍLB (Félag íslenskra lækna í Bretlandi) var stofnað í London í kringum 1970. Meðlimir voru Helgi Valdimarsson, Guðrún Agnarsdóttir, Matthías Kjeld, Þórður Harðarsson, Gunnar Sigurðsson, Valgarður Egilsson og Katrín Fjeldsted. Félagar urðu yfir níu talsins og var því sótt um og fengin staða svæðafélags innan Læknafélags Íslands.
Á myndinni (tekin á bókasafni Brigde of Earn, Perth, 1972) eru Eyjólfur Þ. Haraldsson, Edinburgh Royal Infirmary, Gísli Auðunsson, héraðslæknir, Húsavík, Bjarni Þjóðleifsson, Maryfield Hospital, Dundee, Guðrún Agnarsdóttir, Hammersmith Hospital, London og Ársæll Jónsson, Perthshire General Hospitals.
Eyjólfur, Bjarni og Ársæll stunduðu framhaldsnám í Skotlandi og héldu úti Skotlandsdeild félagsins. Guðrún kom sem fulltrúi aðalstjórnarinnar í London en Gísli var gestkomandi.
Félagið gerði sig gildandi á aðalfundum LÍ og skrifaði greinar í blöð. Áherslurnar voru m.a. að efla menntun, draga úr starfsemi sérfræðilækna og vera á móti nýrri geðdeildarbyggingu á Landspítalalóð. Skemmtilegt er að minnast fundar með Magnúsi Kjartanssyni ráðherra, sem hélt okkur veislu og trúði okkur fyrir því síðla kvölds að komin væri til liðs ný stétt, sem umbylta myndi heilbrigðismálum á Íslandi. Hann átti þar við stétt félagsráðgjafa, sem voru að stíga sín fyrstu spor í starfsframa.