07/08. tbl. 105. árg. 2019
Umræða og fréttir
Aldrei fleiri útskrifast sem læknar, 88 kandídatar!
Alma Möller landlæknir flutti hvatningu til læknanna.
Alls 88 útskrifast úr læknisfræði á þessu vori, 46 úr læknadeild Háskóla Íslands en 42 úr erlendum skólum. Stærsti hópurinn erlendis frá nam í Slóvakíu, eða 22. Ellefu útskrifast í Ungverjalandi, fimm í Danmörku og einn frá Noregi, Svíþjóð, Eistlandi og Bandaríkjunum.
Ragnheiður Úlfarsdóttir, Slóvakíu, ritar undir læknaeiðinn.
Bjarni Rúnar Jóhannsson, HÍ, ritar undir læknaeiðinn.
Unnsteinn Júlíusson læknir á Húsavík
fór yfir kosti þess að starfa úti á landi.
Runólfur Pálsson læknir hélt utan
um undirritun læknaeiðsins.
Frá vinstri: Sigmar Atli Guðmundsson úr HÍ , Jón Bjarnason, HÍ, og
kærasta hans Adéla Stehlíková, Gunnar Bollason, HÍ, og
Daníel Björn Yngvason, HÍ.
„Þetta hefur einkennt íslenska læknastétt í langan tíma. Fólk hefur sótt menntun sína erlendis,” sagði Reynir Arngrímsson, formaður Læknafélags Íslands við læknana sem komu í húsakynni félagsins til að undirrita læknaeiðinn. Í fyrsta skipti væru yfir 1.700 læknar á Íslandi.
Frá vinstri: Hildur Inga Einarsdóttir og Una Egilsdóttir (th.) sem báðar
útskrifast frá Danmörku. Hér ásamt kærustum sínum.
Anna María Toma, HÍ, og kærasti hennar Daði Halldórsson, Eydís Ósk
Jónasdóttir, HÍ, og kærasti hennar Atli Valur Jóhannsson.
Reynir benti á að nú stækkaði sá hópur óðum sem sækti grunnmenntunina ytra. „Þess vegna höfum við það besta úr læknaþjónustunni og þekkingu úr heiminum bæði austan- og vestanhafs hér á Íslandi,“ sagði Reynir við þessa hátíðarstund.
Steinar Már Unnarsson kærasti Urðar og Urður Jónsdóttir sjálf, HÍ,
Rósamunda Þórarinsdóttir, HÍ, Anna Guðlaug Gunnarsdóttir, HÍ.
Björk Guðmundsdóttir kærasta Arnars Braga Ingasonar, HÍ, hann og
móðir hans Bryndís Bragadóttir.
Andri Oddur Steinarsson og Valur Guðnason, HÍ.
Hilmar Leonardsson (tv.) útskrifast úr HÍ, Finnur Jónasson og
Símon Pétur Pálsson gestir útskriftarnema.
Arna Rut Emilsdóttir, HÍ, Signý Malín Pálsdóttir, HÍ, Guðrún Ingibjörg
Þorgeirsdóttir, HÍ, og Salvör Rafnsdóttir, HÍ.
Alma Möller landlæknir hvatti ungu læknana til þess að efla lýðheilsu landsmanna. Fyrirbyggja þyrfti sjúkdóma vegna lengri ævi landsmanna. Þau þyrftu einnig að hlúa að eigin heilsu og líðan. „Mikilvægt meðal á kulnun og streitu, bæði fyrir skjólstæðinga ykkar og ykkur sjálf, er svefn.“
Vel á sjötta tug mætti og ritaði undir læknaeiðinn á þessum sólríka eftirmiðdegi í júní í ár. Læknablaðið óskar læknunum sem nú stíga sín fyrstu skref eftir útskrift innilega til hamingju með áfangann.