04. tbl. 105. árg. 2019

Umræða og fréttir

Fluttu 700 starfsmenn frá Bretlandi til Hollands vegna Brexit

Evrópusambandið hefur flutt alla starfsemi Lyfjastofnunar Evrópu frá Bretlandi til Hollands. 700 af 900 starfsmönnum hafa fylgt stofnuninni frá London til Amsterdam, segir Rúna Hauksdóttir Hvannberg, forstjóri Lyfjastofnunar, við Læknablaðið. Hún er nýkomin af fyrsta fundi stofnunarinnar á nýjum stað þar sem forstjórar lyfjastofnana Evrópusambandsríkja og EES hittust.

                                          
                                          Kolbeinn Guðmundsson, yfirlæknir Lyfjastofnunar, fyrir framan hann
                                          standa Kerstin Wickström, sérfræðingur hjá Lyfjastofnun,
                                          Hrefna Guðmundsdóttir, læknir hjá Lyfjastofnun og Rúna Hauksdóttir
                                          Hvannberg. Hér í London fyrr á þessu ári. Mynd/Lyfjastofnun

„Stofnunin verður um tvö ár að jafna sig á þessum flutningi og sinnir aðeins nauðsynlegum verkefnum á meðan endurskipulagningin stendur yfir,“ segir Rúna. „Búið er að skilgreina hvað er kjarnastarfsemi stofnunarinnar. Öll áhersla verður lögð á að skrá lyf og tryggja öryggi sjúklinga.“ Bretland tilheyri nú ekki innra svæði Evrópu. Því þurfi að endurskrá öll lyf og lækningatæki frá landinu.

„Brottför Breta er bakslag fyrir Evrópu,“ segir Rúna „Eftirsjá er að Bretum því þeir hafa stundað miklar rannsóknir hvað varðar lyf og lækningatæki. Þeir standa framarlega,“ segir Rúna sem bendir á að þetta sé önnur evrópska stofnunin sem flutt sé frá Bretlandi vegna útgöngu Breta úr Evrópusambandinu. Hin, Bankastofnun Evrópu, hafi verið flutt til Parísar. Sú stofnun sé þó umtalsvert minni en þar starfi um 150 manns.

Skipta verkefnunum á milli sín

Rúna segir að breska lyfjastofnuninni hafi sinnt 23% allra verkanna innan Lyfjastofnunar Evrópu, sem vinni við mat á umsóknum um lyf, úttektir á lyfjaframleiðslustöðum, aukaverkanatilkynningar og vísindaráðgjöf.

„Lyfjastofnanir sem standa framarlega, eins og sú franska, þýska, hollenska, írska og sænska, þurfa að bæta þessum verkefnum á sig,“ segir hún. Flutning-arnir hafi ekki aðeins skaðað vinnuna sjálfa því stofnunin, sem hafði aðsetur við Canary Wharf í London, sitji uppi með 20 ára leigusamning. Reynt hafi verið að hnekkja samningnum fyrir dómstólum en ekki tekist. Stofnunin geti áfrýjað til 15. apríl. Tapist málið þurfi hún að framleigja húsnæðið. Þá sé starfsemin í Hollandi aðeins í tímabundnu húsnæði. Hún verði aftur flutt í byrjun janúar á næsta ári í framtíðarhúsnæði.

Spurð hvað verði um breska starfsmenn stofnunarinnar segir hún reglu að einungis 18% starfsmanna komi frá búsetulandinu. „Hugmyndafræðin er að allar lyfjastofnanir komi að vinnunni og sérfræðiþekkingin sé byggð upp í löndum Evrópu en ekki aðeins innan stofnuninnar og landsins sem hún er í.“

Pólitísk aðgerð en lyfin þau sömu

Rúna segir það hafa verið pólitíska ákvörðun að flytja stofnanirnar tvær. Samevrópskar stofnanir geti ekki átt aðsetur utan sambandsins. Mílanó og Amsterdam hafi bitist um þessa stofnun og réði hlutkesti því að Amsterdam varð ofan á. Rúna segir flutningana umfangsmikla því starfsmönnunum 700 fylgi fjölskyldur; börn í skólum. „Hollendingar hafa tekið vel á móti stofnuninni enda fjárhagslegur ávinningur að fá stofnunina til sín.“

Búið sé að tryggja að sú staða komi ekki upp að lyf vanti. „Við skulum hafa í huga að þetta eru tæknilegar hindranir, viðskiptasamningar. „Lyfin sjálf standa fyrir sínu þótt Bretarnir gangi út,“ segir hún. „Þessar tilfærslur og viðbrögð snúa að því að uppfylla skilyrði regluverksins í Evrópu.“



Þetta vefsvæði byggir á Eplica