01. tbl. 105. árg. 2019

Umræða og fréttir

Úr penna stjórnarmanna LÍ. Þurfa læknar gula sloppa á nýju ári? Reynir Arngrímsson

Í pistlunum Úr penna stjórnarmanna LÍ birta þeir sínar eigin skoðanir en ekki félagsins.

Senn líður að lokum 100 ára afmælis Læknafélags Íslands. Umhverfi og heilsa voru efst á baugi á afmælishátíð félagsins í Eldborg 14. janúar 2018, enda eru umhverfismál nátengd heilbrigði og lýðheilsu. Á hátíðinni fluttu nafnkunnir einstaklingar erindi, læknum og öðrum til áminningar um ábyrgð lækna. Afmælishátíðin og Læknadagar gerðu góð skil meðal annars sögu félagsins og lækninga allt frá landnámi að vangaveltum um framtíðarþróun. Þátttakan í viðburðum afmælisársins var framar björtustu vonum og voru gestir á þessum viðburðum að minnsta kosti 2500 ef með eru taldir opnir viðburðir fyrir almenning, Kaldalónskvöld og samræður við almenning um geðheilbrigðismál.

Á aðalfundi LÍ í nóvember síðastliðnum var horft til framtíðar með málstofu um heilbrigðisstefnu til ársins 2030. Þá var leitt í lög félagsins að stofna samskipta- og jafnréttisnefnd en hlutverk hennar verður að stuðla að jákvæðum samskiptum og jafnrétti kynjanna með fræðslu fyrir félagsmenn og tryggja að vinnustaðir lækna hafi viðeigandi viðbragðsáætlanir og úrræði í þessum málum. Kærumál vegna samskipta lækna innbyrðis og kvartanir almennings um starfshætti og brot á siðareglum falla áfram undir siðanefnd félagsins, en þar situr héraðsdómari í forsæti.

Á aðalfundinum hófst svo lokahnykkurinn í innleiðingu skipulagsbreytinga LÍ í samræmi við lagabreytingar frá aðalfundinum 2017 með nýrri samsetningu á stjórn félagsins og vali á aðalfundarfulltrúum. Við hátíðarkvöldverð aðalfundar var fjórum brautryðjendum í hópi kvenna í læknastétt veitt heiðursviðurkenning LÍ.

Aldarafmælis LÍ hefur verið minnst með margvíslegum hætti. Því hafa verið gerð góð skil í Læknablaðinu, bæði með sérvöldu myndefni á kápu, viðtölum, greinum sem ritstjórn kallaði eftir úr ýmsum áttum, aðsendu efni og umfjöllun um starfsemi og sögu félagsins. Innra félagsstarf hefur verið eflt og ýmsu tjaldað til. Tónlistar- og ljóðakvöld lækna mæltust vel fyrir. Góð þátttaka var í golfmótaröðinni og þannig mætti áfram telja.

LÍ réðst í það stórvirki að gerast á árinu gestgjafi aðalfundar og ársþings Alþjóðasamtaka lækna (World Medical Association) og skipulagði samhliða ráðstefnu um lífsiðfræði. Fyrir þinginu lá aðalfundarsamþykkt LÍ frá 2014. Undirbúningstíminn leið skjótt og fyrr en varði mættu fulltrúar þorra læknafélaga allflestra landa og þinguðu í viku í Hörpu. Hvorttveggja tókst með miklum ágætum og fluttu bæði forseti Íslands og heilbrigðisráðherra ávörp. Á aðalfundi WMA var til umfjöllunar endurskoðun á yfirlýsingu samtakanna um erfðafræði í læknisfræði. Þó ekki næðist að ljúka endurskoðuninni var samþykkt að hún skyldi héðan í frá nefnd Reykjavík Declaration of Genetics in Medicine.   

Umbrotatímar eru framundan á vinnumarkaði ef fram heldur sem horfir. Þetta hefur ekki farið fram hjá læknum. Samningar LR við Sjúkratryggingar Íslands eru lausir frá áramótum og þarf vart að rifja þá sögu upp. Þegar þetta er ritað eru engin teikn á lofti um að samningar séu í nánd. Búið er að hrekja fyrir dómi fyrr á árinu ólöglega ákvörðun heilbrigðisráðherra um að stöðva eðlilega nýliðun sérfræðilækna á samningstímanum sem er að renna sitt skeið. Í komandi samningi þarf að mörgu að hyggja til að tryggja eðlilegan rekstrargrundvöll sjálfstætt starfandi lækna, ekki einungis einingarverð og lengd samningstíma, heldur einnig kröfulýsingar um rekstur og gæði og tryggja að þessi hópur geti uppfyllt símenntunarkröfur sem gerðar eru í starfsumhverfi sem tekur hröðum framförum og staðið að innleiðingu tækniframfara og nýjunga sem leiða til meiri hagkvæmni og betri meðferðar fyrir sjúklinga.

Á nýju ári mun LÍ leggja fram kröfugerð vegna komandi kjarasamnings. Áhersla á bætta grunnviðmiðun eftir samþjöppun launabils milli starfsstétta ásamt mótvægisaðgerðum vegna vaxandi álags og langs vinnutíma starfshópsins verður meðal þess sem þarf að sinna. Af mörgu er að taka sem ekki verður farið nánar í að sinni.

Það eru ekki einungis blikur á lofti í kjaramálum heldur virðist upp kominn alvarlegur faglegur ágreiningur milli lækna og stjórnvalda á ýmsum sviðum. Má þar nefna viðurkenningar á sérfræðileyfum og kröfur til framhaldsnáms, ábyrgðarsvið yfirlækna og stjórnskipulag á heilbrigðisstofnunum, innleiðing Alþingis á tvöföldu heilbrigðiskerfi með ákvörðun um að gefa afslátt á þekkingu, gæðum og öryggi þegar kemur að lyfjaávísunum.

Þá er sérstakt áhyggjuefni áhugi alþingismanna á tilslökun á lýðheilsumarkmiðum hvað varðar áfengislöggjöfina, sölu á rafsígarettum, blekkingum um gagnsemi fíkniefna í lækningaskyni, gagnrýnislaus meðmæli skottulækninga undir því yfirskyni að um einhvers konar viðbótarmeðferð geti verið að ræða, ásamt undanlátssemi frá viðmiðunum sem til dæmis má finna í Genfarsáttmála lækna um að virða mannslíf staðfastlega til hins ýtrasta.

Lokahnykkur aldarafmælisársins verður á Læknadögum 2019. Þá verða kynntar niðurstöður skoðanakönnunarinnar Íslenski læknirinn, könnun á líðan og starfsaðstæðum lækna á Íslandi og málstofur verða um lækna og stefnumótun á vegum FAL í samvinnu við LÍ. Margt fleira áhugavert verður að vanda á Læknadögum sem lýkur með veglegri árshátíð þar sem afmælisárið verður kvatt og nýjum tímum fagnað.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica