11. tbl. 106. árg. 2020

Umræða og fréttir

Metþátttaka á Heimilislæknaþingi

 

Yfir hundrað heimilislæknar flykktust á Heimilislæknaþingið 2020. Þeir hafa aldrei verið fleiri. Ráðstefnan var rafræn. Erindi Elínar Helgu Þórarinsdóttur var valið það besta í ár

 

„Þetta kom mér mjög skemmtilega á óvart enda fundust mér svo mörg erindi vera áhugaverð og vel unnin á þinginu,“ segir Elín Helga Þórarinsdóttir, sérnámslæknir í heimilislækningum. Á þinginu, sem haldið var rafrænt 16.-17. október, fjallað hún um íþyngjandi dagsyfju hjá kæfisvefnssjúklingum og fékk viðurkenningu fyrir besta erindið.

Elín Helga Þórarinsdóttir, sérnámslæknir í heimilislækningum.

Rannsóknir Elínar sýna að eingöngu 17,6% kæfisvefnssjúklinga lýsa ekki syfju, en rétt um helmingur þeirra sem það gerir er líklegur bæði til að sofna eða dotta eða upplifa dagsyfju. Syfja hafi minnkað markvert hjá þeim sem noti svefnöndunarvélina.

„Hafa þarf í huga að um helmingur kæfisvefnssjúklinga er með mikla dagsyfju sem getur haft alvarlegar afleiðingar, svo sem aukið líkur á slysum og dregið verulega úr lífsgæðum viðkomandi,“ segir Elín. „Sem betur fer lagast dagsyfjan yfirleitt við meðferð með svefnöndunarvél en ef hún gerir það ekki er mikilvægt að huga að öðrum þáttum sem geta valdið syfju óháð kæfisvefninum.“

Hún segir rannsóknarteymið, sem þeir Thor Aspelund og Þórarinn Gíslason skipa auk hennar, einnig hafa skoðað mismunandi aðferðir til að mæla dagsyfju. „Við sáum að það skipti töluverðu máli hvaða aðferð var notuð. Ef notaður var bara hinn hefðbundni Epworth-syfjuskali sem metur líkur á að dotta eða sofna, þá varð það til þess að nokkuð stór hluti kæfisvefnssjúklinga, sem upplifir dagsyfju án þess að dotta eða sofna, var vangreindur. Þetta höfum við einnig sýnt fram á hjá einstaklingum í almennu þýði og birtum þá grein í Journal of Sleep Research í fyrra“ segir hún.

Berglind Gunnarsdóttir, formaður fræðslunefndar Félags heimilislækna.

Berglind Gunnarsdóttir, formaður fræðslunefndar Félags heimilislækna og heimilislæknir á Sólvangi í Hafnarfirði, segir Heimilislæknaþingið hafa gengið vonum framar í ár. „Það jákvæða við að halda ráðstefnuna með fjarfundabúnaði er að aldrei hafa fleiri mætt.“ Yfir 100 skráðu sig inn þegar mest var og oft fleiri en einn á bak við hverja innskráningu. Innskráningarnar voru 80 á laugardeginum.

„Fag okkar lækna er þannig að breytingar gerast hratt og því þörf á endurmenntun,“ segir hún. Mikilvægt hafi því verið að halda þingið þrátt fyrir kórónuveirufaraldurinn. Hún vonar að hægt verði að hittast sem fyrst og styrkja böndin. „Þótt það sé viss kostur að vera í fjartengingu eru allir sammála um að vilja fara aftur í gamla formið, en þó með möguleika á að hafa fjartengingu líka,“ segir hún.

 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica