09. tbl. 106. árg. 2020

Umræða og fréttir

Heilbrigðisþjónustan þarf að ganga þrátt fyrir COVID-19, - rætt við Runólf Pálsson

Þróun veikinda af völdum COVID-19 og afleiðingar veirunnar hafa komið á óvart, segir Runólfur Pálsson, yfirlæknir á COVID-göngudeildinni. Deildin hefur þróast og breyst með umfangi sýkinga, aðgerðum stjórnvalda og þekkingunni sem hefur myndast.

„Við eigum að láta heilbrigðisþjónustuna ganga þrátt fyrir COVID-19,“ segir Runólfur Pálsson, forstöðumaður lyflækninga og endurhæfingarþjónustu Landspítala og einn stjórnenda COVID-göngudeildarinnar sem hefur breyst í takti við þróun heimsfaraldursins.

„Ég sé göngudeildina þróast í miðstöð innan spítalans fyrir þjónustu vegna COVID-19, bæði vegna virkra smita eða langdreginna afleiðinga og sem stuðningur við landsbyggðina,“ segir hann. „COVID-19 er erfitt viðfangsefni fyrir litla staði úti á landi þar sem þarf að sinna annarri heilbrigðisþjónustu líka.“

Runólfur Pálsson, forstöðumaður lyflækninga og endurhæfingarþjónustu Landspítala. Mynd/gag

Hann segir að tvennt hafi komið sérstaklega á óvart í þessum heimsfaraldri COVID-19. „Annars vegar hvað sjúklingum getur versnar skyndilega viku eftir greiningu,“ segir hann. Fólk með væg einkenni fyrstu vikuna komi þá jafnvel á spítala og innan klukkustunda á gjörgæslu.

„Hins vegar eru þessar langdregnu afleiðingar. Ekki síst þeirra sem fengu væg einkenni og fást mánuðum síðar við margvísleg einkenni, einkum orkuleysi, einbeitingarskort og verki. Einnig er áhugavert að sjá hvernig bragð- og lyktarskyn hvarf og kom í sumum tilvikum til baka mörgum vikum eftir að bata var náð.“

Hann segir veiruna mjög áhugaverða. „Við þurfum að skilja hana betur. Rannsaka hana betur, því hún getur lagst á mörg líffærakerfi með margvíslegum afleiðingum,“ segir hann. „Fólk er óttaslegið þegar það fær greininguna og hún getur haft sálræn eftirköst.“

Tugir hjúkrunarfræðinga unnu ásamt sérnámslæknum í símaþjónustu COVID-göngudeildarinnar á Landspítala í upphafi faraldurs og við móttöku sjúklinga. Nú er þar einn sérnámslæknir í lyflækningum auk fáeinna hjúkrunarfræðinga í símavörslu.

 

Hertar aðgerðir voru nauðsynlegar

Hertar aðgerðir stjórnvalda þann 19. ágúst eru að mati Runólfs nauðsynlegur liður í baráttunni við SARS-CoV-2 veiruna. Eina leiðin til þess að losna við veiruna eru harðar aðgerðir til langs tíma og að loka landinu.

„En við vitum að það getum við ekki,“ segir Runólfur. „Það er enginn vafi að skimun er gagnleg,“ segir hann. „Þetta er eina leiðin til að halda veirunni í skefjum. Svo er spurning hversu lengi aðgerðirnar verða við lýði. Það er útlit fyrir að skimað verði fyrir þessari veiru á næstu misserum, jafnvel árum. En mestu máli skiptir að fólk ástundi einstaklingsbundnar smitvarnir eins og það best getur til að forðast smit.“

 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica