04. tbl. 104. árg. 2018
Umræða og fréttir
Tónlistarkvöld LÍ
Hildur Þóra Ólafsdóttir og Jón Ágúst Stefánsson.
Þórður Þórkelsson barnalæknir.
Læknafélag Íslands fagnar 100 ára afmæli sínu á hverjum degi allt þetta ár, og það er af nógum efniviði af taka, bæði faglegum, félagslegum og listrænum! Í mars var haldið upp á að margir læknar hafa yndi og unun af tónlist og iðka hana stíft. Föstudagskvöldið 16. mars varð fyrir valinu til hylla tónlistargyðjuna, og stóri salurinn í Læknafélaginu í Hlíðasmára sem hefur nú fengið andlitslyftingu reyndist prýðilegur til tónlistarflutnings.
Brjánn Á. Bjarnason barnageðlæknir, Ari Agnarsson músikant og
Konstantín Shcherbak öldrunarlæknir.
Myndir: Margrét Aðalsteinsdóttir.
Viðar Eðvarðsson barnalæknir, Stefán Yngvason endurhæfingarlæknir,
Sólveig Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri LÍ og Magnús Baldvinsson
röntgenlæknir.
Hljómsveitin Strengir gegn öldrun, en hana skipa frá vinstri: Helga
Eyjólfsdóttir öldrunarlæknir, Konstantín Shcherbak öldrunarlæknir,
María Björk Steinarsdóttir líffræðingur, Jóna Þórsdóttir músíkmeðferðarfræðingur,
Guðlaug Þórsdóttir öldrunarlæknir, Steinunn Kristín Jónsdóttir félagsráðgjafi
og Steinunn Þórðardóttir öldrunarlæknir.
Michael Clausen sá um að setja saman dagskrána og Sunna Snædal var kynnir kvöldsins. Ellefu hljómsveitir/flytjendur stigu á stokk og trylltu áheyrendur sem skipuðu hvert sæti í salnum og tóku þessum viðburði fagnandi. Ekki verður annað séð en að innan raða lækna og læknanema séu fjölmargir kraftar sem eiga fullt erindi fram á listasviðið. En þeir sem heima sátu þetta umrædda kvöld geta séð hér á youtube brot af skemmtuninni: https://www.youtube.com/watch?v=YUPI_gKTDcQ
Bolli Þórsson og Ingólfur Kristjánsson, þeir eru í sveitinni Mínir menn.
Mannaveiðar: Þórdís Björt Sigþórsdóttir, Sólveig Halldórsdóttir og Edda
Pálsdóttir unglæknar.
Hér er Ragnar Danielsen ásamt Sigurgeiri Sigmundssyni.