05. tbl. 100. árg. 2014

Fræðigrein

Sveinstindar tveir – gengið í fótspor Sveins Pálssonar

Engilbert er ritstjóri og ábyrgðarmaður Læknablaðsins, Tómas er í ritstjórn blaðsins.


Sveinn Pálsson læknir og náttúrufræðingur var fæddur 25. apríl 1762 á Steinsstöðum í Skagafirði. Sveinn var ekki aðeins merkur læknir heldur var hann einnig einn merkasti náttúrufræðingur Íslendinga fyrr og síðar. Ólafur Þ. Jónsson svæfingarlæknir gerði lífshlaupi Sveins góð skil í grein í
Læknablaðinu2012 þegar 250 ár voru liðin frá fæðingu hans.1 Okkur þykir þó rétt að rifja upp að þegar Sveinn stundaði framhaldsnám í Kaupmannahöfn á seinni hluta 18. aldar voru aðeins 5 læknar starfandi á Íslandi.2 Á þessum tíma þótti læknisfræði afar ótryggt nám til framfærslu, enda ekki á vísan að róa með atvinnu á Íslandi að námi loknu. Sveinn lagði því stund á náttúrufræði samhliða læknisfræðinni og varð fyrsti Íslendingurinn sem útskrifaðist með próf í náttúrufræði í Danmörku árið 1791. Sama ár hlaut hann styrk til náttúrufræðirannsókna á Íslandi. Á næstu fjórum árum fór Sveinn í marga krefjandi rannsóknarleiðangra sem hann rakti í hinni stórmerku ferðabók sinni sem við hann er kennd.3 Ferðabók Sveins þykir eitt merkilegasta rit um náttúrufræði sem komið hefur út um íslenska náttúru og var tímamótarit þegar hún kom út á dönsku, í fyrstu sem ritgerð en í bókarformi árið 1880. Ferðabókin kom þó ekki út á íslensku fyrr en árið 1945.

En Sveinn var ekki síður fær læknir og mikið var leitað til hans eftir að hann tók við stöðu fjórðungslæknis í Sunnlendingafjórðungi árið 1799.4 Hann bjó lengst af í Suður-Vík í Mýrdal og sinnti þaðan læknisvitjunum. Heimildir greina frá því að hann hafi farið í vitjanir allt frá Eyrarbakka til Djúpavogs, og þurfti því oft að fara yfir beljandi jökulfljót.4 En læknislaunin voru léleg og dugðu ekki til framfærslu stórrar fjölskyldu. Þurfti hann því samhliða læknisstörfum að stunda búskap og róa til fiskjar. Sveinn Pálsson var ekki aðeins farsæll læknir, bóndi og sjómaður, heldur var hann einnig einstaklega afkastamikill náttúrufræðingur og raunar frumkvöðull á því sviði hér á landi.

Hann gekk fyrstur manna, eftir því sem best er vitað, á tvo af tilkomumestu útsýnistindum landsins, Sveinstind við Langasjó (1090 m) og Sveinstind  í Öræfajökli (2044 m) (mynd 1), og eru þeir báðir við hann kenndir.


Mynd 1. Sveinstindur við Langasjó (blár punktur) og í Öræfajökli (rauður punktur).

Við ætlum að heiðra minningu Sveins með því að greina frá gönguferðum á báða þessa tinda. Höfundar hafa gengið nokkrum sinnum á Sveinstind við Langasjó og gert tvær atlögur að nafna hans í Öræfajökli sem er krefjandi ganga. Markmið okkar með þessum skrifum er að hvetja sem flesta til að ganga á þessa tinda sér til heilsubótar og ánægju. Sjón er alltaf sögu ríkari.


Sveinstindur við Langasjó

Sveinn Pálsson er talinn hafa gengið fyrstur á þennan svipmikla tind, en það er Þorvaldur Thoroddsen náttúrufræðingur sem á heiðurinn af að gefa honum nafnið þegar hann rannsakaði þetta svæði í lok 19. aldar.5 Einstakt útsýni er af fjallinu þótt hæð tindsins sé aðeins 1090 m yfir sjávarmáli. Ekið er sem leið liggur eftir Fjallabaksleið nyrðri þar til komið er að merktum slóða til norðausturs. Slóðinn er merktur Langasjó og Sveinstindi og liggur sunnan Grænafjallgarðs, rétt norðan Eldgjár. Hann er fær jepplingum frá  júlí og fram í september og aðeins tekur um hálftíma að aka að rótum fjallsins. Stikuð gönguleið liggur á toppinn frá merktu bílastæði. Flestir ná toppnum á skemmri tíma en klukkustund (mynd 2).




Mynd 2. Greinarhöfundar með Sveinstind við Langasjó í baksýn. Myndin er tekin fyrir rúmum
áratug
þegar fjallgöngufatnaður var frábrugðinn því sem tíðkast í dag. 
Mynd: Hákon Guðbjartsson.

Af toppnum sést á góðum degi yfir Langasjó, Fögrufjöll, upptök Skaftár, Skaftárafrétt, Lakagíga, vesturhluta Vatnajökuls og hrjóstrugt miðhálendið með ótal tindum, vötnum, ám og söndum. Gönguleiðin hentar göngufólki á öllum aldri, jafnt öldruðum sem fjölskyldum með börn.5 Útsýnið yfir fagurbláan Langasjó er einkar fallegt á uppgöngunni og fá fjöll hér á landi trompa það útsýni sem við blasir af tindinum á góðviðrisdegi (mynd 3).



Mynd 3. Útsýni af toppi Sveinstinds til norðurs yfir Langasjó. Fögrufjöll til hægri og Vatnajökull
í baksýn. Mynd: Óðinn Árnason.


Sveinstindur í Öræfajökli

Það eru ekki margir sem vita að tindurinn er sá næsthæsti á Íslandi, 2044 metrar yfir sjávarmáli. Hann myndar hluta af austurbrún öskjunnar í Öræfajökuli og sést toppurinn ágætlega frá þjóðveginum þegar ekið er í vesturátt frá Breiðamerkurlóni (mynd 4).


Mynd 4. Öræfajökull séður úr austri. Sveinstind (2044 m) ber hæstan við himin og vinstra megin
við hann er Sveinsgnípa (1925 m). Skriðjökullinn fyrir miðri mynd er Hrútárjökull og til hægri er
Fjallsjökull. Mynd: Ólafur Már Björnsson.


Reyndar er þekkt að menn telji Sveinstind vera Hvannadalshnjúk frá þessu sjónarhorni (mynd 5), en þótt Hvannadalshnjúkur sé 66 metrum hærri sést hann ekki úr austri frá þjóðveginum, þar sem hann stendur við norðvesturbrún öskjunnar (mynd 6).


Mynd 5. Horft yfir hluta gönguleiðarinnar á leiðinni
til baka. Þessi brekka er án efa ein 
lengsta skíðabrekka
landsins. 
Mynd: Tómas Guðbjartsson.


Mynd 6. Loftmynd af Öræfajökli sem sýnir vel afstöðu Hvannadalshnjúks á norðvesturbrún öskjunnar
og Sveinstinds norðaustan megin (til hægri). Einnig sjást vel svokallaðir Hnappar í suðurhluta
Öræfajökuls. Í baksýn má greina Esjufjöll og Mávabyggðir.
Mynd: Oddur Sigurðsson.

Fáir hafa lagt leið sína á Sveinstind í Öræfajökli, ólíkt nágranna hans, Hvannadalshnjúk, sem trónar fjórum kílómetrum vestar og þúsundir Íslendinga hafa sigrað. Flestir hafa gengið á Sveinstind út frá hefðbundnum gönguleiðum á Hvannadalshnjúk, þá oftast frá hinni fjölförnu Sandfellsleið eða Hnappaleið upp frá Fagurhólsmýri. Aðrar leiðir eru enn fáfarnari, eins og Hrútárjökulsleið, og leiðin sem Sveinn Pálsson lýsti fyrstur árið 1794 og er nú kölluð Kvískerjaleið (mynd 7). Kvísker er frægt býli við austanverðan Öræfajökul og er meðal annars þekkt fyrir þá staðreynd að þar er mest meðalúrkoma í byggð á Íslandi. Þaðan lagði Sveinn upp í sögufræga göngu sína þann 11. ágúst 1794. Hann varð um leið fyrstur manna til að ganga á Öræfajökul.



Mynd 7. Línurnar sýna nokkrar leiðir á Hnjúkinn: Kvískerjaleið (rauð) og Hrútárjökulsleið (blá),
Hnappaleið (græn) og Sandfellsleið (svört). Teikning: Guðbjartur Kristófersson.


Félag Íslenskra fjallalækna (FÍFL) hefur í allmörg ár skipulagt vorferðir á ýmsa tinda í Vatnajökli, meðal annars Hvannadalshnjúk, Hrútfjallstindana fjóra (1875 m), Þverártindsegg (1554 m) og Miðfellstind (1420 m). Það hafði lengi verið á stefnuskránni að komast á Sveinstind. Fyrsta atlagan var gerð vorið 2012, en þá voru 250 ár liðin frá fæðingu Sveins. Ákveðið var að fara Hrútárjökulsleið (mynd 7), en Íslenskir fjallaleiðsögumenn höfðu nokkrum árum áður farið með hóp á tindinn þessa leið. Gengið var á mannbroddum yfir sporð Hrútárjökuls, tignarlegs skriðjökuls sem fellur niður austanverðan Öræfajökul. Þaðan var gengið yfir Ærfjall að stórum klettadranga, Drangakletti. Síðan var haldið eftir austurhluta Hrútárjökuls og stefnan sett á brattan og þverhníptan hrygg upp að rótum Sveinstinds. Þessi leið er ægifögur en talsvert um stórar jökulsprungur sem krækja þurfti fyrir (mynd 8).


Mynd 8. Gengið upp Hrútárjökul í maí 2012 á leið á Sveinstind en sjá má tindinn efst til hægri á
myndinni umvafinn skýjum. Sveinstindur var ekki sigraður að þessu sinni vegna erfiðra aðstæðna.
Mynd: Ólafur Már Björnsson.


Þrátt fyrir frábært útsýni urðum við frá að hverfa í 1650 metra hæð eftir að snjóflóð féll af hryggnum sem leið okkar átti að liggja eftir (www.fifl.is). Mikil sólbráð var á leiðinni upp Hrútárjökul og snarpur vindur í fangið. Færið var því þungt og gangan gekk nærri þreki göngumanna. Þrátt fyrir 17 klukkustunda streð varð þessi magnaða gönguferð þó aðeins til að auka áhuga okkar á að komast á topp Sveinstinds.

Næsta vor var hafinn undirbúningur að nýrri göngu á tindinn. Í þetta sinn fannst okkur freistandi að feta í fótspor Sveins sjálfs og kanna hina fáförnu Kvískerjaleið. Leið þessi er talin vera illfær en Flosi Björnsson bóndi á Kvískerjum gekk hana þó með systkinum sínum, Ara og Guðrúnu, árið 1936.6 En einhverra hluta vegna féll Kvískerjaleið í gleymsku. Það var ekki fyrr en í júní 2004 sem þrír göngugarpar, með Egil Einarsson efnaverkfræðing í fararbroddi, „enduruppgötvuðu“ leið Sveins Pálssonar frá Kvískerjum. Lýstu þeir leiðinni í ágætri grein í Morgunblaðinu sem birtist í apríl 2013.7 Með GPS-punkta þeirra í farteskinu töldum við áætlun okkar raunhæfa.

Lagt var af stað frá Kvískerjum um klukkan fjögur að nóttu 18. maí 2013. Í hópnum voru 6 félagar úr FÍFL, 10 meðlimir úr hinu öfluga göngufélagi Mammút-systrum, auk leiðangursstjóranna Guðmundar „Stóra“ Jónssonar, og félaga hans, Óðins og Arnars.

Fyrst var haldið upp allbratta heiði þangað til komið var að brekkum með mikilli sólbráð. Þar var snjórinn stundum hnédjúpur og sums staðar í klof. Við gættum þess að halda okkur efst á hryggjum og forðast gil og dali sem liggja beggja vegna við gönguleiðina. Í tæplega 1000 m hæð braust sólin fram. Það hélst brakandi blíða með sólskini það sem eftir lifði ferðar. Varð því að fækka fötum og bera á sig sólarvörn. Á þessum tímapunkti rifjaðist upp fyrir okkur lýsing Sveins Pálssonar á aðstæðum og fylgdarmönnum sínum. Annan þeirra taldi hann ranglega þjást af háfjallaveiki en slík einkenni koma ekki fram fyrr en í minnst 2500 m hæð.8

Leið okkar lá svo eftir heiðinni að jökulrönd undir tignarlegu fjalli, Rótarfjallshnúk eystri. Þaðan var haldið upp hrygg með mikilfenglegt útsýni á báðar hendur: Kvíárjökul sunnan og vestan leiðar og Hrútárjökul austan og norðan til (mynd 9). Einnig sást í Hnappana, Esjufjöll, Mávabyggðir, Snæfell syðra og Þverártindsegg.


Mynd 9. Sveinstindur fyrir miðju (2044 m), Sveinsgnípa til vinstri (virðist hærri á myndinni en er
1925 m) og krosssprunginn Hrútárjökull til hægri. Mynd: Ólafur Már Björnsson.

Þarna töldum við líklegt að Sveinn Pálsson hefði fengið innblástur að kenningum sínum um eðli skriðjökla, en hann var einn sá fyrsti í heiminum sem áttaði sig á rennsli þeirra.

Í samanburði við leiðangur okkar ári áður upp Hrútárjökul reyndist Kvískerjaleiðin afar örugg á þessum sólríka vordegi. Við rákumst varla á neinar jökulsprungur þar til komið var upp fyrir Sveinsgnípu, en hún er nokkur hundruð metrum sunnan við Sveinstind í ríflega 1900 metra hæð. Engin þeirra reyndist þó erfið yfirferðar.


Hinn 11. ágústmánaðar vorum við á fótum löngu fyrir sólarupprás í því skyni að ganga á hið mikla fjall Öræfajökul, sem Eggert Ólafsson telur jafnvel hæsta fjall landsins. Veður var alveg kyrrt og ekki ský á lofti. Ég festi miða á tjaldið með tilkynningu um ferðalag okkar, ef við skyldum verða til á jöklinum, og hélt síðan af stað við þriðja mann frá eyðibýlinu Kvískerjum kl. 5¾ að morgni, útbúinn með loftvog, hitamæli, lítinn áttavita, oddhamar, jöklabroddstaf og 8 faðma langan vað. Leið okkar lá fyrst upp eftir allbröttum undirhlíðum. Loks komum við að jökulbrúninni, er kl. var 8¾, og hvíldum okkur þar á dálitlum hól.

-------

Við héldum áfram upp eftir suðausturhalla jökulsins, þar sem brattinn var minnstur, fórum fram hjá nokkrum svörtum þursabergsklettum, sem stóðu upp úr ísnum, og yfir fjöldamargar sprungur, sem sást ekki til botns í. Loftið tók nú, eins og vant er á slíkum stöðum, að verða of þunnt og andardrátturinn alltof léttur. Annar félaga minna varð svo kvíðafullur og syfjaður, að við urðum loks að skilja hann eftir, og féll hann jafnskjótt í svefn og hann fleygði sér niður í snjóinn. Hinn fylgdarmaðurinn, sem að upplagi átti vanda fyrir hjartverk og þunglyndi og auk þess var fullur af kenjum, varð því léttari í lund og kátari, því hærra sem við komum, og fann ekki til neinna óþæginda né þreytu vegna loftsins.3

Úr dagbók Sveins Pálssonar


Þegar komið var að rótum Sveinstinds blasti við toppur Hvannadalshnjúks hinum megin öskjunnar, en sjálf askjan var hulin skýjum. Frá þessu sjónarhorni er Hnjúkurinn mun tilkomumeiri en að sunnanverðu og mátti með kíki grilla í tugi göngumanna í halarófu á leið á tindinni (mynd 10). Þetta var ógleymanleg sjón.


Mynd 10. Hvannadalshnjúkur séður frá Sveinstindi. Ef vel er að gáð má sjá göngumenn mjakast
upp brekkur Hvannadalshnjúks vinstra megin á myndinni, líkt og maurar á mauraþúfu. Úr þessari
átt er Hnjúkurinn afar svipmikill ásýndar. Mynd: Engilbert Sigurðsson.



Ég veitti einkum athygli falljöklinum, sem skriðið hefur niður rétt austan við Kvísker. Yfirborð hans virtist alsett bogadregnum línum . . . alveg eins og falljökull þessi hefði runnið fram hálfbráðinn eða sem þykkt seigfljótandi efni. Skyldi þetta ekki vera nokkur sönnun þess, að ísinn sé í eðli sínu – án þess að bráðna – fljótandi að nokkru leyti, líkt og ýmsar tegundir af harpixi …3

Úr dagbók Sveins Pálssonar


Þar sem aðstæður voru eins og best verður á kosið ákváðum við að ganga erfiðari leið á tindinn eftir bröttum og mjóum hrygg að sunnanverðu, en leiðin að norðanverðu er auðfarnari og oftar farin (mynd 11). Notast var við snjóakkeri til tryggingar og voru göngumenn kirfilega festir í línu. Gætt var ítrustu varúðar, enda blasti Hrútárjökull við næstum kílómetra neðar á hægri hönd. Allir komust á tindinn og hópurinn gaf sér góðan tíma til að njóta útsýnisins og taka myndir (mynd 12).


Mynd 11. Hryggurinn sem gengið var eftir úr suðri upp á Sveinstind. Sjá má gönguleiðina
hægra megin á hryggnum. Þverhnípi er til hægri niður á 
Hrútárjökul, nokkur hundruð
metrum neðar. Mynd: Engilbert Sigurðsson.



Mynd 12. Hópurinn á toppi Sveinstinds. 
Í fremstu röðinni eru Arnar Jónsson leiðsögumaður, Guðmundur Jónsson leiðsögumaður og Arnar Jónsson.
Í miðjuröð eru fjórar Mammút-systur: Halldóra Blöndal, Signe Viðarsdóttir, Emelía Blöndal og Guðrún Kolbrún Otterstedt.
Aftast standa Óðinn Árnason leiðsögumaður, Heiðar Ingi Ágústsson, Kristín Jóna Hilmarsdóttir, Haukur Hjaltason, Þóra Steingrímsdóttir, Engilbert Sigurðsson, Ólafur Adolfsson, Tómas Guðbjartsson og Ólafur Már Björnsson. 
Mynd: Ólafur Már Björnsson.

Gangan niður var ekki síður eftirminnileg en uppgangan. Sól skein í heiði og útsýnið var afar tilkomumikið.

Greinarhöfundar drógust nokkuð aftur úr öðrum göngumönnum á niðurleið. Ástæðan var sú að Sveinn hafði í ferðabók sinni lýst steini einum miklum og setti á hann fangamark sitt, P, og skildi eftir koparpening við vörðuna. Þetta gerði hann til að auðvelda öðrum að finna uppgönguleiðina.


Á hólnum nýnefnda byggðum við vörðu úr grjóti og lögðum ofan á hana danskan eirpening, svo að þeir, er kynnu að vilja feta í spor okkar, geti fundið staðinn, þar sem við gengum á jökulinn og vafalaust er hinn allra greiðfærasti, sem til er, meðan jökullinn breytir sér ekki. Loftvogin sýndi nú 25' 9¼ og hitinn var 18° C. Við komum heim í tjald okkar á Kvískerjum kl. 4 ½ síðdegis.3

Úr dagbók Sveins Pálssonar

Hver einasti steinn sem kom til greina var skoðaður í bak og fyrir (mynd 13). Allt kom þó fyrir ekki. Steinninn fannst ekki enda líklega hulinn snjó á þessum árstíma. Sveinn hafði hins vegar verið á ferðinni síðsumars, eða um miðjan ágúst. Má raunar teljast ótrúlegt að leiðin hafi verið fær á þeim tíma árs vegna jökulsprungna, en veðurfar var þó kaldara þá en nú tíðkast.


Mynd 13. Annar greinarhöfunda í leit að steini Sveins Pálssonar, sem ekki fannst að þessu sinni,
þrátt fyrir mikla leit. Mynd: Engilbert Sigurðsson.

Eftir næstum 16 tíma göngu var haldið að bænum Gerði í Suðursveit. Þar var slegið upp veislu og gómsætt fjallalambið hvarf fljótt ofan í svanga göngumenn. Undir borðum var máltíðin krydduð með skemmtisögum úr göngu dagsins en jafnframt lesnir skemmtilegustu kaflarnir úr Ferðabók Sveins. Mikið var hlegið enda allir „hátt uppi“ og endurnærðir eftir ógleymanlega gönguferð.

Þakkir fá Hákon Guðbjartsson, Oddur Sigurðsson, Óðinn Árnason og Ólafur Már Björnsson fyrir lán á myndum og Guðbjartur Kristófersson fyrir veitta aðstoð.


Heimildir

  1. Jónsson ÓÞ. 250 ára afmæli. Sveinn Pálsson læknir og náttúrufræðingur. Læknablaðið 98; 2012: 98-9.
  2. Ísberg JÓ. Líf og lækningar. Íslensk heilbrigðissaga. Hið íslenska bókmenntafélag, Reykjavík 2005.
  3. Pálsson S. Ferðabók Sveins Pálssonar. Dagbækur og ritgerðir 1791-1797. Bókaútgáfan Örn og Örlygur, Reykjavík 1983.
  4. Pálsson S. Æfisaga Sveins læknis Pálssonar eftir sjálfan hann. Ársrit hins íslenska fræða-fjelags, Kaupmannahöfn 1929; 10: 34.
  5. gonguleidir.is/gonguleidir/sveinstindur/ – apríl 2014.
  6. Guðmundsson S. Hver gekk fyrstur á Hvannadalshnjúk? Lesbók Morgunblaðsins; 26. nóvember 1994.
  7. Hallgrímsson S. Ferðalög og flakk. Í spor Sveins landlæknis. Morgunblaðið 28. maí 2013.
  8. Guðbjartsson T, Guðmundsson G. Háfjallaveiki – yfirlitsgrein. Læknablaðið 2009; 95: 441-7.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica