12. tbl. 106. árg. 2020

Umræða og fréttir

Flaggskip sumarhúsanna að rísa - rætt við Jörund Kristinsson

„Flaggskip,“ segir Jörundur Kristinsson, formaður Orlofssjóðs, um glænýjan 140 fermetra sumarbústað Læknafélagsins sem nú rís við Hreðavatn í Borgarfirðinum. Húsið verður það 12. í eigu félagsins. „Ég hef aldrei komið á eins fallegan stað fyrir sumarbústað, aldrei.“ Húsið er nær fullbúið að utan og langt komið að innan.

„Stefnt er að því að það verði tekið næsta sumar,“ segir Jörundur. „Enn á eftir að kaupa húsgögn, innréttingar, leirtau, borðbúnað, rúm og sængur.“ Spurður um verð svarar hann diplómatískt „Við teljum þetta hagkvæma byggingu.“

Nýtt sumarhús Læknafélagsins er 140 fermetra með fjórum svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum. Jörundur Kristinsson ásamt þeim Sólveigu Jóhannsdóttur, framkvæmdastjóra LÍ, og Guðrúnu Arnardóttur, móttökuritara félagsins, standa að verkinu. Mynd/Jörundur Kristinsson

Sumarhúsið er tvöfalt stærra en önnur sumarhús félagsins. Það er hannað af Helga Hallgrímssyni arkitekt hjá TÓ arkitektum, Teiknistofunni Óðinstorgi. EJI ehf. í Borgarnesi byggir það. „Hann hefur byggt marga bústaði fyrir okkur; í Húsafelli, í Svignaskarði og Brekkuskógi. Við höfum góða reynslu af vinnunni hans.“

Tilurð byggingarinnar er hugsanlega ekki eins ánægjuleg og útkoman nú. Fyrir á lóðinni stóð bjálkahús félagsins sem varð að afskrifa eftir aðeins 15 ára notkun. „Mér fannst við hæfi að setja myndarlegt hús á þessa glæsilegu lóð,“ segir Jörundur.

„Bjálkahúsið var rifið sumarið 2018. Það var ónýtt. Fyrirtækið sem byggði það hús var löngu komið í gjaldþrot og því fengust engar bætur. Óhætt er að segja að húsið hafi verið fúsk frá A-Ö,“ segir Jörundur. „Við fengum þó smá pening fyrir húsið og fengum það einnig flutt burt okkur að kostnaðarlausu.“

Ólíkt því sem áður var stendur húsið nú á steyptri gólfplötu, með gólfhita. „Húsið er T-laga að formi, framálman í suður. Þar er stofa, eldhús og inngangur. Í austurálmunni eru tvö hjónaherbergi. Í þeirri vestanmegin er eitt hjónaherbergi með sérstöku aðgengi fyrir hreyfihindraða og minna herbergið. Tvö baðherbergi eru í bústaðnum og heitur pottur.“

Jörundur segir að húsið fari í úthlutun eins og önnur hús félagsins en verðlagt í samanburði við gæðin. „Það er ekki það sama að fara í 50 fm í Vaðnesi eða 140 fm við Hreðavatn. Við höfum alltaf haft sama verðið en munum breyta því núna.“

Húsið er viðhaldslítið að utan, lerkiklætt með áli undir gluggum. Pallurinn er einnig úr lerki. „Það þarf því lítið að bera á. Viðurinn gránar og ver sig sjálfur.“ Hann bendir á að þar sem húsið standi steinsnar frá öðrum bústað félagsins, Höfða, geti allt að 15 manns gist á svæðinu í þeim tveimur. Því sé einnig hægt að nýta svæðið til fundarhalda.

„Þetta er geggjað hús.“



Þetta vefsvæði byggir á Eplica