02. tbl. 106. árg. 2020
Umræða og fréttir
930 skráðu sig til leiks á Læknadögum
„Ánægja með Læknadaga var mikil. Margir hafa komið að máli við mig og talað um það,“ segir Reynir Arngrímsson, formaður Læknafélags Íslands og formaður Fræðslustofnunar. Hann segir ráðstefnuna hafa tekist betur en oft áður. Aðsóknin hafi verið með mesta móti en alls 930 manns sóttu Læknadaga sem haldnir voru í Hörpu dagana 20.-24. janúar. Gestum fjölgaði um 10% milli ára. „Læknadagar eru mikilvægir í símenntun lækna. Fjölbreytt erindi höfðuðu til stéttarinnar sem sást á góðri mætingu,“ segir hann. „Læknadagar eru hluti af því átaki félagsins að efla símenntun,“ segir hann.
Haldin voru 184 erindi á 28 málþingum. Fyrirlesarar voru 177, þar af 145 læknar. Þrettán erlendir gestir tóku þátt í Læknadögum í ár.
„Mjög ánægjulegt er hve margir læknar tóku tíma til þess að fræða aðra lækna um þeirra sérsvið og stuðla þannig að breiðari þekkingu í samfélagi lækna,“ segir hann.
Fræðslustofnun hélt utan um dagskrána í ár og skipuðu fulltrúar hennar undirbúningsnefndina. Auk Reynis eru þau Arngrímur Vilhjálmsson, Margrét Aðalsteinsdóttir, Nanna Sigríður Kristinsdóttir, Ólafur Már Björnsson og Runólfur Pálsson í nefndinni.
Myndir/VS
Sigurður Guðmundsson fyrrum landlæknir glaðvakandi á milli tveggja
svæfingalækna, Ingunnar Þorsteinsdóttur og Hjördísar Smith.
Guðrún Agnarsdóttir, Davíð Gíslason ofnæmislæknir og Sigurveig
Sigurðardóttir ofnæmislæknir.
Valgerður Rúnarsdóttir stýrði fundi um lögleiðingu kannabis. Christian
G. Schütz frá háskólanum í British Columbia og Sigurður Örn Hektorsson
geðlæknir voru frummælendur á þessum fjölsótta fundi.
Benedikt Sveinsson kvensjúkdómalæknir, Kristín Sigurðardóttir
slysalæknir og Magni Jónsson lungnalæknir.
Júlía Linda Ómarsdóttir hjúkrunarfræðingur og Gerður Aagot Árnadóttir
heimilislæknir, þær vinna saman á Heilsugæslustöð Garðabæjar.
Una Emilsdóttir unglæknir og Helga Ágústa Sigurjónsdóttir
innkirtlalæknir.
Heimilislæknar að krunka saman: Margrét Georgsdóttir og Bjarni Jónasson.
Ragnar Freyr Ingvarsson, Helga Ágústa, William F. Young frá Mayo
Clinic í Rochester og Björn Guðbjörnsson, - þau voru þátttakendur í
málþinginu um kortisón.
Samherjar í fræðunum: Ólöf Sigurðardóttir og Lilja
Sigrún Jónsdóttir.
Skeleggir öldungar: Tryggvi Ásmundsson og Sigurður E. Þorvaldsson.
Stefán B. Matthíasson og Einar Þór Þórarinsson, - Heilsugæsla
Seltjarnarness var og er þeirra bækistöð.
Allir vildu komast á málþingið í Kaldalóni um kynlífsraskanir. Eiríkur Orri
Guðmundsson, Áslaug Kristjánsdóttir, Magnús Haraldsson, Sigríður
Dögg Arnardóttir og Auður Smith báru hitann og þungann af þinginu.
Við opnun Læknadaga var undirritaður samstarfssamningur milli
lyfjaframleiðenda, markaðarins og Læknafélags Íslands um siða
og samskiptareglur: Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri Félags
atvinnurekenda, Jakob Falur Garðarsson framkvæmdastjóri Frumtaka,
Reynir Arngrímsson formaður LÍ og Andrés Magnússon
framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu.
Heimislæknar stóðu fyrir þingi um Salutogenesis: Machteld Huber frá
Utrecht, Pétur Heimisson á Egilsstöðum, Elínborg Bárðardóttir, Svíinn
Bengt Lindström og Alma Möller landlæknir.
Ungir og almennir læknar: Páll Guðmundsson, Þórdís Kristjánsdóttir,
Signý Lea Gunnlaugsdóttir, Valgerður Bjarnadóttir, María Björk
Baldursdóttir og Hjálmar Agnarsson.
Dagbjörg B. Sigurðardóttir geðlæknir og Davíð O. Arnar hjartalæknir
með tengdadóttur sína og barnabarn, dreng sem var mættur á sína
fyrstu Læknadaga.
Ólafur Sveinbjörnsson, Guðmundur Pálsson, Ásgeir Bjarnason og
Hrafnkell Óskarsson.