01. tbl. 106. árg. 2020

Umræða og fréttir

Stórslys í aðsigi á bráðamóttökunni, segir Már Kristjánsson yfirlæknir

                                 

Már Kristjánsson yfirlæknir bendir á að fjöldi inniliggjandi sjúklinga á bráðamóttöku hafi þrefaldast á tveimur árum. Mikill þrýstingur sé á að útskrifa sjúklinga. „Ég hef miklar áhyggjur af vetrinum. Það er stórslys í aðsigi,“ segir hann og minnir á að heilbrigðisstarfsfólk beri ábyrgð á þjónustu spítala sem sé sprunginn.

„Það er vont að vera settur í ómögulega stöðu. Mér finnst staðan á bráðamóttöku Landspítala vera ómöguleg,“ segir Már Kristjánsson, yfirlæknir smitsjúkdómalækninga Landspítala. Þróist sókn sjúklinga á móttökuna eins og síðustu þrjú ár geti bráðamóttakan ekki tekið við þeim öllum í vor, þegar inflúensan standi sem hæst. Deildin sé þegar yfirfull, sprungin. Hún gæti ekki með góðu móti tekið við sjúklingum kæmi upp hópslys.

Fólk viti það en aðgerðir til að breyta stöðunni séu ekki í augsýn.

„Undir þessum kringumstæðum skapast ófaglegar aðstæður, heilbrigðisstarfsfólki verður á og sjúklingar gjalda fyrir það.“ Hann bendir á að fólk sé í alls konar ástandi þegar það komi á deildina; með óráð, í æsingarástandi og stundum skeytingarlaust um eigið ástand. Starfsfólkið geti alls ekki hjálpað fólki að gæta að eigin velsæmi þegar svona stendur á. Aðstaða þessa sjúklinga sem stundum þurfa að vistast á göngum sé ekki boðleg.

„Þetta er óviðunandi ástand sem hefur versnað til muna síðustu þrjú ár. Ekkert bendir til annars en að það muni versna.“ Öllu ægi saman á deildinni. Þar séu sjúklingar, starfsmenn og gestir í of litlu rými. Sýkingarvarnirnar séu brostnar. Enn hefur ekki verið unnt að bregðast við ábendingu landlæknis frá því í desember í fyrra og í september í haust um að opna legudeildir í stað þess að vista sjúklinga á bráðamóttöku.

„Staðan er mjög ógnvekjandi þar sem við erum að fara inn í öndunarsýkingartímabil ársins, inflúensutímann,“ segir Már.

Már segir lestur á skýrslu spítalans um starfsemina í október sláandi. „Alls 226 dagar eru skráðir vegna innlagnar sjúklinga á bráðadeildina í október árið 2017. Þeir eru 417 í október árið 2018 og 573 nú í október.“ Sé staðan uppreiknuð sé aukningin ígildi einnar legudeildar á Landspítala. Starfsemi bráðadeildarinnar hafi þrefaldast á þremur starfsárum án nokkurra breytinga á aðbúnaði. Þá hafi sjúkrarúmum fækkað á spítalanum í heild um 43 frá 2014 til ársloka 2018.

„Ég hef miklar áhyggjur af vetrinum. Ég tel stórslys í aðsigi. Það er fyrirsjáanlegt að þetta getur ekki farið vel. Það er full ástæða til að vara við því,“ segir Már.

„Þróunin er ógnvænleg og aðgerðarleysið hálfgerð normalísering á óeðlilegu ástandi. Þegar maður vinnur á bráðamóttökunni áttar maður sig á því hvað ástandið er galið.“ Gríðarlega mörg legurými séu á göngunum. Fólk mjög veikt, berskjaldað og sýkingavarnir, eins og fram hafi komið, brostnar.

„Geðsvið, lyflækningasvið, skurðsvið og flæðisvið eru öll sprungin,“ les Már úr starfsemisupplýsingum spítalans fyrir október. Þau séu með rúmanýtingu yfir 100%.

Óboðlegar starfsaðstæður séu streituvaldur í starfseminni. „Það er ekki heilbrigðisráðherra eða stjórn spítalans sem ber ábyrgð á starfseminni. Ábyrgðin á vondri vinnuaðstöðu er sett á heilbrigðisstarfsfólk og það er læknirinn sem síðan ber endanlega ábyrgð á sjúklingnum.“

Vanmáttur starfsmanna sé mikill. „Ég kvíði fyrir vetrinum,“ segir Már.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica