09. tbl. 96.árg. 2010

Umræða og fréttir

XIX. þing Félags íslenskra lyflækna

XIX. þing Félags íslenskra lyflækna

1. - 2. október 2010 á Radisson SAS Hótel Sögu

 

Þing Félags íslenskra lyflækna hafa í meira en þrjá áratugi verið mikilvægur vettvangur fyrir lyflækna hér á landi til kynna vísindarannsóknir sínar og skiptast á skoðunum um áhugaverð málefni á sviði lyflækninga og heilbrigðismála. Þingið hefur jafnan verið haldið utan Reykjavíkur en mun nú fara fram í höfuðborginni í fyrsta sinn. Stefnt er að því að dagskrá þingsins verði glæsileg og höfði til breiðs hóps lyflækna og annarra sem áhugasamir eru um lyflæknisfræði. Meginþema þingsins verða lungnasjúkdómar og smitsjúkdómar. Meðal þess sem fjallað verður um á þinginu er:

  • Meðferð langvinnrar lungnateppu og kæfisvefns með áherslu á nýjungar, árangur og kostnað.
  • Eru berklar á hverfanda hveli eða þurfa læknar enn að gefa þeim gaum?
  • Inflúensa – hvaða lærdóm getum við dregið af svínaflensufaraldrinum?
  • Blóðþynningarmeðferð hjá sjúklingum með gáttatif og notagildi prótondæluhemla.
  • Staða klínískra lyfjarannsókna hér á landi og framtíðarmöguleikar á þeim vettvangi.

Kynning vísindarannsókna verður stór þáttur að vanda og verða innsend ágrip kynnt með veggspjaldi auk þess sem höfundar munu gera stuttlega grein fyrir helstu niðurstöðum. Öll ágrip sem samþykkt verða til kynningar á þinginu verða birt í sérstöku fylgiriti Læknablaðsins sem gefið verður út í tilefni af þinginu. Veitt verða verðlaun fyrir framúrskarandi rannsókn ungs læknis og fyrir besta framlag læknanema.

Í tengslum við þingið verður haldið málþing um frumulíffræði lungna fimmtudaginn 30. september. Þar verður greint frá afar áhugaverðum rannsóknum samstarfshóps vísindamanna á Landspítala og við Háskóla Íslands. 

Að þinginu loknu verður hátíðarkvöldverður á veitingastaðnum Silfri á Hótel Borg.

Aðalstyrktaraðili þingsins er Vistor.

Upplýsingar um þingið og skráning er á www.athygliradstefnur.is

 

Stjórn Félags íslenskra lyflækna:

Runólfur Pálsson, formaður
Sigurður Ólafsson, gjaldkeri
Davíð O. Arnar, ritari
Rafn Benediktsson, formaður vísindanefndar
Hlíf Steingrímsdóttir
Sigurður Guðmundsson



Þetta vefsvæði byggir á Eplica