Umræða fréttir

Broshornið 38. Af hnerra og hetjuskap

Óánægður sjúklingur

Lögfræðingur nokkur sem talinn var til undantekninga meðal starfssystkina sinna þar eð hann þótti flestum til ama og lítt vandur að virðingu sinni þurfti að leggjast fársjúkur inn á spítala. Þrátt fyrir ítarlegar rannsóknir var ekki ljóst hvað amaði að manninum og dag og nótt barðist starfsfólk spítalans við að halda lífinu í honum. Fyrstu vikuna þurfti að skera manninn upp þrisvar sinnum og vegna þess hve alvarlegt ástand hans var eftir síðustu aðgerðina var honum haldið sofandi næstu daga. Loks fór að ganga betur og maðurinn komst til rænu. Ekki leið á löngu þar til starfsfólkið fór að ræða sín á milli og án þess að hann heyrði hve miklu auðveldara það hefði verið að sinna sjúklingnum á meðan hann var sofandi. Maðurinn sýndi nú óyggjandi batamerki dag frá degi og þremur vikum eftir innlögn var komið að útskrift.

"Mér finnst alveg með ólíkindum á dögum allrar þeirrar tækni sem læknavísindin hafa upp á að bjóða að það þurfi að halda manni milli heims og helju í marga sólarhringa áður en komist er að réttri sjúkdómsgreiningu. Og svo verð ég að segja að ég hef nú séð fallegri aðgerðarör en þau sem ég er með," sagði lögfræðingurinn við skurðlækninn sem staðið hafði í ströngu við að halda lífinu í sjúklingnum og hafði sýnt mikla þolinmæði við að sinna honum í veikindunum.

En nú fannst lækninum mælirinn vera fullur.

"Ef þú bara vissir hve áhugaverð veikindi þín voru frá sjónarhóli læknavísindanna og ef þú hefðir minnstu hugmynd um það hve erfitt það var að standast þá freistingu að fá svörin strax með krufningu þá hefur þú enga ástæðu til að kvarta yfir einu né neinu," sagði læknirinn ákveðinn og kvaddi.





Alltaf hnerrandi

Ung kona kom í skoðun til læknis án þess að hún væri beinlínis veik. Læknirinn fann ekkert athugavert og spurði hvort eitthvað sérstakt amaði að henni.

"Sko, það er dálítið sem hvílir á mér," sagði konan.

"Og hvað er það?" spurði læknirinn og virtist ekki vera að flýta sér, aldrei þessu vant.

"Sko, í hvert skipti sem ég hnerra fæ ég kynferðislega örvun sem nálgast fullnægingu."

"Ja hérna," sagði læknirinn. "Og til hvaða ráða hefur þú gripið út af því?"

"Ég hef notað svartan pipar," sagði konan.

Einn á móti

Maður á miðjum aldri kom til læknis í reglubundið eftirlit. Ekki bar á öðru en maðurinn væri með endemum vel á sig kominn. "Ég finn ekkert að þér. Er það annars eitthvað annað sem þú ert að velta fyrir þér?" spurði læknirinn.

"Ég hef verið að spá í það að láta taka mig úr sambandi," sagði maðurinn og fór svolítið hjá sér.

"Það er stór ákvörðun," sagði læknirinn. "Hefur þú rætt málið heima?"

"Já," sagði maðurinn. "Atkvæðin féllu þannig að 16 voru þessu fylgjandi en ég var einn á móti."



Leikmannsþankar

Ef maður hugsar út í það þá geðjast mér ekkert að því að fara til læknisins míns. Eins og svo margir heimilislæknar er hann með alls konar viðurkenningarskjöl upp á vegg hjá sér og kassa fullan af gúmmíhönskum á borðinu. Þessar viðurkenningar gefa honum heimild til að nota hanskana eins og honum sýnist.





Dauður við dyrnar

Hjúkkan kom hlaupandi inn á skrifstofu læknisins og var mikið niðri fyrir.

"Hann Ásmundur sem var að fara frá þér rétt áðan og allt virtist vera í stakasta lagi með datt líflaus niður við útidyrnar. Hvað viltu að ég geri?" spurði hjúkkan.

Læknirinn leit upp frá pappírunum. "Sjáðu til þess að hann snúi eins og hann hafi verið að koma inn," sagði læknirinn. "Hringdu svo í 112."





Hetjuskapur hjá tannlækni

Hjónunum Sigurði og Margréti var vísað inn til Páls tannlæknis. Þau voru mætt án þess að hafa gert boð á undan sér og Sigurður lét á sér skilja að hann væri tímabundinn.

"Palli minn, ég held að best sé að draga fjandans tönnina úr. Enga deyfingu og ekkert vesen, bara að kýla á´ða."

"Ég man ekki eftir að hafa hitt jafn yfirvegaðan og kjarkmikinn sjúkling í háa herrans tíð," sagði Páll fullur aðdáunar. "Og hvaða tönn er það?"

Þá sneri Sigurður sér að konu sinni og sagði: "Opnaðu munninn Magga mín og sýndu honum hvaða tönn það er, elskan."

Tengd skjöl




Þetta vefsvæði byggir á Eplica