05. tbl. 91. árg. 2005

Umræða og fréttir

Læknisfræðileg ábyrgð og stjórnun sjúkraflutninga

Mikil þróun hefur orðið í bráðalækningum utan sjúkrahúsa og sjúkraflutningum á síðustu árum og áratugum. Meiri þekking lækna og sjúkraflutningamanna ásamt betri lyfjum og tækjum hefur aukið gæði þjónustunnar og lífslíkur sjúklinga. Samfélagið og þeir sem þjónustuna veita gera eðlilega æ meiri kröfur til góðrar bráðaþjónustu utan spítala.

Sérhæfð námskeið í bráðalækningum eru nú haldin fyrir lækna og kennsla í læknadeild er að breytast í samræmi við breytta tíma. Fjölmargir læknar hafa á síðustu árum lagt áherslu á að auka þekkingu sína í bráðalækningum utan sjúkrahúsa, sérhæfðri endurlífgun, meðferð mikið slasaðra og í hópslysafræðum. Til marks um breyttar áherslur er verið að koma á námi á Bretlandseyjum fyrir lækna í bráðalækningum utan sjúkrahúsa til viðbótar námi í bráðalækningum.

Menntun sjúkraflutningamanna hefur tekið mikl­um og jákvæðum breytingum. Kristinn Guð­mundsson læknir stóð fyrir því, ásamt öðrum, að koma á reglulegum námskeiðum í sjúkraflutningum í lok áttunda áratugarins. Um 95% þeirra sem starfa við sjúkraflutninga hafa lokið þriggja vikna grunnnámi, margir hafa lokið fimm vikna viðbótarnámi í neyðarflutningum og fjöldi bráðatækna er kominn á annan tug. Sjúkraflutningaskólinn tók til starfa árið 2002 og er stefnt að því að hægt verði að hefja nám í bráðatækni á Íslandi og að námið verði á háskólastigi.

Við uppbyggingu menntunar sjúkraflutninga­manna hér á landi hefur verið fylgt bandarískum staðli. Námskeið til réttinda sjúkraflutningamanna samkvæmt staðlinum er stutt miðað við það sem gerist víða í Evrópu. Í íslenskum lögum er hins vegar ekki gerð nein stigun á menntun sjúkraflutningamanna sem er miður.

Menntun sjúkraflutningsaðila og fyrirkomulag sjúkraflutninga er mjög mismunandi í nálægum löndum. Þar sem við þekkjum til er allsstaðar kveð­ið skýrt á um læknisfræðilega stjórnun og ábyrgð. Í Bandaríkjunum og á Bretlandi geta bráðatæknar framkvæmt sérhæfð inngrip og gefið ákveðin lyf en undir nánu eftirliti ábyrgs læknis.

Víða annars staðar starfa bráðtæknar, hjúkrunarfræðingar og læknar saman í sjúkraflutningum en hvert sem kerfið er eru læknar, sjúkraflutningamenn og hjúkrunarfræðingar alltaf undir nánu eftirliti og starfa á ábyrgð læknis viðkomandi svæðis.

Í íslenskum lögum og reglugerðum er ekki kveðið skýrt á um ábyrgð í sjúkraflutningum eða læknisfræðilega stjórnun. Læknar telja að þeir beri ábyrgð á greiningu og allri meðferð sjúklings í sjúkraflutningum en margir sjúkraflutningamenn telja að þeir starfi á eigin ábyrgð og undir faglegu eftirliti landlæknis. Ágreiningur um ábyrgð og læknisfræðilega stjórnun er óviðunandi fyrir alla sem að sjúkraflutningum koma og sjúklingnum ekki til bóta. Hugsanlegur ágreiningur getur orsakað hættuástand fyrir sjúklinginn.

Við teljum eðlilegt og nauðsynlegt að setja reglu­gerð um bráðaþjónustu við sjúklinga utan sjúkrahúsa og heilsugæslustöðva, þar með talda sjúkraflutninga, þar sem velferð sjúklingsins er höfð að leiðarljósi og skýrt er kveðið á um hlutverk og ábyrgð hverrar stéttar.

  

u09-hof1ny

Ágúst Oddsson

 u09-hof2ny

Brynjólfur Á Mogensen

 u09-hof3ny

Hjalti Már Björnsson

u09-hof4ny

Hrafnkell Óskarsson 

 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica