09. tbl. 100. árg. 2014

Umræða og fréttir

Úr fórum Læknablaðsins 1915-2014. Síðasti áratugur 20. aldarinnar

Einsog fram hefur komið í viðtölum hér í blaðinu við fyrri ritstjóra og ritstjórnarfulltrúa blaðsins var gripið til þess sparnaðarráðs árið 1980 að fá vini okkar Dani til að setja Læknablaðið og selja auglýsingar í það og prenta hjá Mohns Bogtrykkeri Læknafélagi Íslands að kostnaðarlausu. Blaðið var þá í minna broti en nú er, en það var 11 tölublöð á ári og um 40 blaðsíður hvert blað. Í hverju tölublaði voru um 5 fræðigreinar og einn leiðari, og auðsjáanlega mikil gróska í vísindunum.



Árið 1983 var annar hluti útgáfunnar settur á laggirnar, Fréttabréf lækna, og var prentaður hér heima, í prentstofu G. Ben. í Kópavogi. Fréttabréfið var í sama broti og blaðið, 28 blaðsíður og í því voru tilkynningar, auglýsingar, ýmis tíðindi af daglegum vettvangi lækna, fastir pistlar svo sem íðorðapistill og bréf frá læknum.

Á áttræðisafmæli Læknablaðsins árið 1994, eftir 14 ára reynslu af þessari vinnslu blaðsins í Kaupmannahöfn og tvískiptingu fræðigreina og frétta, var ákveðið að fara aftur í hið forna far, enda hafði auglýsingasala í blaðið glaðnað til muna hér á landi, og prentkostnaður og tölvuvinnsla komin aðeins í nánd við nútímann. Eitt sameinað Læknablað fór því á kreik til áskrifenda sinna í ágúst 1994, og var útgefið og prentað hérlendis,  - sama brot, 64 síður, og undir einni kápu fyrst vísindagreinar og síðan efni af félagslegum toga, og hefur þetta lögmál haldist síðan, og ekki fyrirsjáanlegar neinar breytingar á því fyrirkomulagi.

Þessi tilfærsla á efni og útgáfu hélst í hendur við aðrar breytingar sem gerðar voru þetta sama sumar, en það var flutningur á allri starfsemi Læknafélags Íslands úr Domus Medica í nýtt húsnæði sem félagið keypti, alla fjórðu hæðina að Hlíðasmára 8 í Kópavogi, og þótti nokkuð afskekkt á þeim tíma, og utan við almenningssamgöngur.

Ritstjórnarskrifstofa blaðsins var að sjálfsögðu flutt með og þrátt fyrir einhverja tilburði í þá átt að Læknafélagið skipti um bólstað á síðustu árum hefur ekki orðið af því. Nútíminn: skype og tölvupóstur, fttp og prentfælar, gemsar og feisbúkk, gerir heldur engar athugasemdir við staðsetningu fólks, hvorki um lyftur eða bílastæði, og miðja höfuðborgarsvæðisins hefur raunverulega færst til.

Á myndunum eru kápur blaðsins frá því í maí 1994, fréttabréfsins frá 1. júlí 1994 – og síðan kápa sameinaðs blaðs í ágúst 1994.

Jafnframt er mynd af opnu úr blaðinu 1994; 80: 262-3, þar sem getur að líta flutninginn í Hlíðasmára.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica