07/08. tbl. 100. árg. 2014

Umræða og fréttir

Læknakandídatar 2014

Læknafélag Íslands bauð nýútskrifaða læknakandídata velkomna í Læknafélag Íslands í húsakynnum félagsins, Hlíðasmára 8, þann 19. júní síðastliðinn. Móttakan var hátíðleg að venju og hópur útskriftarnema glæsilegur.


Sprækir og eldklárir kandídatar frá læknadeild Háskóla Íslands vorið 2014. Mynd: Sigdís.

Þorbjörn Jónsson formaður Læknafélags Íslands bauð ungu læknana velkomna í félagið og talaði fyrir bjartari tíð í heilbrigðismálum á komandi tímum. Þegar hann hafði imprað á nokkrum vel völdum lífsreglum tók við deildarforseti læknadeildar, Magnús Karl Magnússon, en hann ávarpaði hópinn og þakkaði þeim samfylgdina í deildinni ásamt því að óska þeim heilla í starfi. Hann minnti meðal annars á að starf lækna er samstarfsverkefni þar sem gagnrýnin, frjó og forvitin hugsun er mikilvæg fyrir góðan lækni auk þess að vera ávallt opinn fyrir nýjungum. Því næst steig upp í pontu Ómar Sigurvin Gunnarsson, formaður Félags almennra lækna, en ásamt því að óska kandídötum til hamingju með áfangann kom hann inn á mikilvægi þess að huga að góðri heilsu í starfi, jafnt faglegri, andlegri og líkamlegri.

Eftir að viðstaddir höfðu notið veitinga og hlýtt á hamingjuóskir og föðurleg heilræði ræðuhaldara undirrituðu hinir nýútskrifuðu læknar heitorð lækna, Hippókratesareiðinn.

Læknablaðið óskar útskriftarhópnum 2014 bæði frá HÍ og annars staðar til hamingju með prófið og alls velfarnaðar í starfi.

Arnar Jan Jónsson

Arnar Sigurðsson

Árni Heiðar Geirsson

Ásgerður Þórðardóttir

Baldvin Ingi Gunnarsson

Bára Dís Benediktsdóttir

Bjarni Þorsteinsson

Björn Einar Björnsson

Björn Jakob Magnússon

Brynjar Þór Guðbjörnsson

Dagmar Dögg Ágústsdóttir

Dagrún Inga Þorsteinsdóttir

Dóra Erla Þórhallsdóttir

Edda Karlsdóttir

Einar Freyr Ingason

Elín Björnsdóttir

Elva Dögg Brynjarsdóttir

Emma Dögg Ágústsdóttir

Guðrún Björg Steingrímsdóttir

Gunnar Baldvin Björgvinsson

Hafdís Alma Einarsdóttir

Helga Harðardóttir

Hera Birgisdóttir

Hera Jóhannesdóttir

Hildur Jónsdóttir

Ingigerður S. Sverrisdóttir

Jóhann Páll Hreinsson

Jón Kristinn Nielsen

Júlíus Kristjánsson

Katrín Hjaltadóttir

Kjartan Bragi Valgeirsson

Kolfinna Snæbjarnardóttir

Kristín Magnúsdóttir

María Björg Magnúsdóttir

María Reynisdóttir

Ólafur Pálsson

Óli Andri Hermannsson

Pétur Sólmar Guðjónsson

Rósa Björk Þórólfsdóttir

Sigríður Sunna Gunnarsdóttir

Sigríður Ásta Þorgeirsdóttir

Sigrún Benediktsdóttir

Sonja Kristín Kjartansdóttir

Svala Aðalsteinsdóttir

Theodóra Rún Baldursdóttir

Tómas Andri Axelsson

Þorgeir Orri Harðarson

Þórarinn Árni Bjarnason

Þórir Bergsson

 

Frá HÍ í febrúar

Elmar Johnson

Hugrún Hauksdóttir

Sylvía Björg Runólfsdóttir

Þórunn Bjarnadóttir

 

 

Frá Ungverjalandi

Ester Kristínardóttir

Gylfi Jón Thorlacius Ásbjörnsson

Hildigunnur Úlfsdóttir

Kári Sigurðsson

Magnea Erna Auðunsdóttir

Magnús Ingi Gunnarsson

Nína Sigurveig Björnsdóttir

Njáll Ingi Dalberg

Ragnheiður Friðriksdóttur

Ragnheiður Hera Sigurðardóttir

 

Frá Svíþjóð

Henrik Klasson

Ola Jörnéus

 

Frá Danmörku

Sigrún Þorsteinsdóttir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica